september árið 2000 stóð Vala Flosadóttir á verðlaunapalli á Ólympíuleikunum í Sydney í Ástralíu. Hún tók við bronsverðlaunum í stangarstökki eftir að hafa sveiflað sér yfir rána í 4.50m hæð. Í tilefni af því verða Bronsleikar ÍR haldnir í þriðja sinn laugardaginn 29. september klukkan 9:30-12:30. Einu sinni áður höfðu ÍR-ingar eignast verðlaunahafa á Ólympíuleikum en það var þegar Vilhjálmur Ein
arsson fékk silfurverðlaun í þrístökki á Ólympíuleikunum í Melbourn árið1956 með stökki upp á 16,26m. Þess má geta að Vilhjálmur á enn Íslandsmetið í þrístökki 16,70m sem sett var 7. ágúst 1960. Til heiðurs Vilhjálmi heldur Frjálsíþróttadeild ÍR Silfurleika ÍR í nóvember ár hvert og til heiðurs Völu höldum við nú Bronsleika í annað sinn en þeir voru haldnir í fyrsta sinn í fyrra, á 10 ára afmæli verðlauna hennar. Til Bronsleika ÍR bjóðum við öllum börnum 10 ára og yngri. Á Bronsleikunum verður áhersla lögð á gleði og gaman og fjölbreyttar þrautir á stöðvum víðsvegar um Frjálsíþróttahöllina í Laugardal. Þessi íþróttahátíð hentar öllum börnum hvort sem þau æfa íþróttir eða ekki. Hér er áherslan ekki á keppni heldur skemmtilega og fjölbreytta þrautabraut þar sem allir eru með. Börnunum er skipt í 8 til 12 manna hópa eftir aldri og óskum barnanna og fullorðinn liðsstjóri fylgir hverjum hópi í gegnum þrautabrautina. Börn fædd 2004 og yngri verða saman í hópum og börn fædd 2002 og 2003 verða saman í hópum. Hver hópur verður myndaður og útbúin viðurkenningarskjöl sem verða aðgengileg til útprentunar á heimasíðu Frjálsíþróttadeildarinnar ÍR að leikunum loknum. Allir keppendur fá verðlaunapening að lokinni þátttöku.
Á Bronsleikum er keppt í Fjölþraut barna sem samanstendur af þrautum sem reyna á styrk, snerpu, úthald og samhæfingu. Þrautirnar eru þróaðar sérstaklega fyrir þann aldurshóp sem þær eru lagðar fyrir svo allir ættu að fá skemmtileg viðfangsefni við hæfi. Bronsleikarnir eru nú í fyrsta skipti hluti af Alþjóðlega hjartadeginum sem lesa má nánar um hér http://www.hjarta.is/upplysingatorg/hjartadagurinn en þess má geta að kl. 10:30 fer Hjartagangan (2,7km eða 3,8km) af stað frá Laugardalshöllinni. Kjörið er fyrir alla fjölskylduna að sameinast í Laugardalshöllinni, sumir fara í fjölþraut barna, aðrir fylgjast með eða skella sér í hjartagöngu.
Áhugasamir geta lesið nánar um fjölþrautamót sem þetta hér á heimasíðu deildarinnar. http://www.ir.is/Deildir/Frjalsar/FrjalsithrottavidburdirIR/StormotIR/Thrautabraut/