Skautafélag Reykjavíkur Íshokkí

Skautafélag Reykjavíkur Íshokkí Skautafélag Reykjavíkur,íshokkídeild, hefur aðsetur í Skautahöllinni í Laugardal. Skautafélag Reykjavíkur er eitt elsta íþróttafélag landins.

Heimavöllur þess er Skautahöllin í Laugardal, þar sem æfingaaðstaða, skrifstofa og félagsheimili er til húsa. Íshokkídeild

Ísland sendi U14 Selects lið stúlkna á sterkt mót í Svíþjóð nýverið, nánar tiltekið í Solna rétt norðan við höfuðborgina...
29/05/2026

Ísland sendi U14 Selects lið stúlkna á sterkt mót í Svíþjóð nýverið, nánar tiltekið í Solna rétt norðan við höfuðborgina Stokkhólm. Þar keppti liðið við önnur Selects lið frá New York, Finnlandi, Svíþjóð (tvö lið), Noregi og Tékklandi. Liðið endaði í 6. sæti en stóð sig vel í frumraun sinni á erlendri grundu. Unnu tvo leiki í undanriðli og en töpuð svo naumlega leik gegn Tékklandi í leik um 5. sætið. SR átti tvo flotta fulltrúa þær Tinnu Viktorsdóttur og Gabríellu Jóhannsdóttur.

Viltu fá þitt lógó á nýjar treyjur SR?Við erum að endurnýja treyjur meistaraflokka fyrir næsta tímabil og nú gefst tækif...
19/05/2026

Viltu fá þitt lógó á nýjar treyjur SR?

Við erum að endurnýja treyjur meistaraflokka fyrir næsta tímabil og nú gefst tækifæri til að tryggja þínu vörumerki pláss á treyjunum um leið og þú styrkir starf félagsins.

Margar góðar staðsetningar eru í boði í öllum verðflokkum.

Fyrir nánari upplýsingar hafðu samband við okkur á
[email protected] eða við Bjarna í síma 844-4590.

Ísland sendi U13 Selects lið á 12 liða mót í Bordeaux í Frakklandi nýverið þar sem það atti kappi við félagslið frá Frak...
11/05/2026

Ísland sendi U13 Selects lið á 12 liða mót í Bordeaux í Frakklandi nýverið þar sem það atti kappi við félagslið frá Frakklandi og Spáni. Liðið endaði í 5. sæti og stóð sig með stakri prýði. SR átti þrjá flotta fulltrúa þá Ámunda Kuylen Drífuson, Viktor Loga Torfason og Nikulás Mána Birgisson en Sölvi Atlason leikmaður SR var þjálfari liðsins.

Julianna markvörður er að leita að íbúð fyrir næsta tímabil! Endilega hafið samband við hana á juliannamthomson@gmail.co...
11/05/2026

Julianna markvörður er að leita að íbúð fyrir næsta tímabil! Endilega hafið samband við hana á [email protected] ef þið eruð með eitthvað sem hentar henni. Fær okkar bestu meðmæli!

Hi, my name is Julianna, and I am a Canadian hockey player currently playing and working in Iceland. I am looking for a furnished apartment to rent for next season, preferably in the 105 Reykjavík area.
I have stable employment with my hockey club and will be staying in Iceland throughout the season. I am looking for a clean and comfortable furnished apartment, ideally for no more than 180.000 ISK per month including utilities.

I am a responsible, respectful, and quiet tenant who takes very good care of the places I stay. My lifestyle is mainly focused on training, work, and hockey. I am also a non-smoker and have no pets.
If you have an available apartment, or know of someone renting in the area, I would really appreciate hearing from you. Thank you very much for your time and help!

Síðasti dagurinn í dag til að hafa áhrif á hver verður valinn uppáhaldsleikmaður stuðningasmanna SR----Sveitastjórnarkos...
10/05/2026

Síðasti dagurinn í dag til að hafa áhrif á hver verður valinn uppáhaldsleikmaður stuðningasmanna SR

----

Sveitastjórnarkosningar nálgast en það er kosið víðar en bara þar.
Nú geta fylgjendur okkar kosið sinn uppáhaldsleikmann úr kvenna og karlaliðum SR þetta tímabil.
Kosningin er opin til sunnudagsins 10. maí og verða niðurstöður hennar kunngjörðar á árshátíð okkar 13. maí nk. ásamt öðrum verðlaunum tímabilsins.

Hér er tengill á kosninguna: https://forms.gle/VTk73LDoDscnEnRm8

Hér er tengill á miðasölu Árshátíðar en það eru allir velkomnir, leikmenn, aðstandendur, sjálfboðaliðar og annað stuðningsfólk: abler.io/shop/srishokki

Sveitastjórnarkosningar nálgast en það er kosið víðar en bara þar. Nú geta fylgjendur okkar kosið sinn uppáhaldsleikmann...
07/05/2026

Sveitastjórnarkosningar nálgast en það er kosið víðar en bara þar.
Nú geta fylgjendur okkar kosið sinn uppáhaldsleikmann úr kvenna og karlaliðum SR þetta tímabil.
Kosningin er opin til sunnudagsins 10. maí og verða niðurstöður hennar kunngjörðar á árshátíð okkar 13. maí nk. ásamt öðrum verðlaunum tímabilsins.

Hér er tengill á kosninguna: https://forms.gle/VTk73LDoDscnEnRm8

Hér er tengill á miðasölu Árshátíðar en það eru allir velkomnir, leikmenn, aðstandendur, sjálfboðaliðar og annað stuðningsfólk: abler.io/shop/srishokki

Við bendum á að aðalfundur SR (aðalfélags) verður haldinn miðvikudaginn 20. maí n.k.
05/05/2026

Við bendum á að aðalfundur SR (aðalfélags) verður haldinn miðvikudaginn 20. maí n.k.

Boðað er til aðalfundar Skautafélags Reykjavíkur (aðalfélags) miðvikudaginn 20. maí kl. 20.00. Fundurinn er haldinn í sal Skautahallarinnar í Laugardal. Dagskrá aðalfundar samkvæmt lögum félagsins 1. Kosinn fundarstjóri og fundarritari. 2. Lesin upp fundargerð síðasta aðalfundar...

Viltu eignast hluta af sögu SR? Nú getur þú keypt „game worn“ keppnistreyju án nafns en með númeri á sérstöku sumartilbo...
04/05/2026

Viltu eignast hluta af sögu SR?

Nú getur þú keypt „game worn“ keppnistreyju án nafns en með númeri á sérstöku sumartilboði - aðeins 10.000 kr. sem gildir eingöngu í maí. Nú er tækifærið að galla sig upp fyrir pallana á næsta tímabili.

Treyjurnar voru notaðar tímabilin 2023/2024-2025/2026.
Karlalið SR varð tvisvar Íslandsmeistari í þeim, einu sinni deildarmeistari og tók þátt í Continental Cup í fyrsta sinn í þessum treyjum. Kvennalið SR spilaði til úrslita í fyrsta skipti og var Íslandsmeistari í fyrsta skiptið í sögunni í þessum treyjum.

Skoðaðu úrvali og verslaðu hér: https://www.abler.io/shop/srishokki/?program=Q2x1YlNlcnZpY2U6NTczOTA=

Skráning á kampinn hjá okkur í Skautahöllinni fyrstu vikuna í ágúst er í fullum gangi. Í síðustu viku var búið að skrá í...
30/04/2026

Skráning á kampinn hjá okkur í Skautahöllinni fyrstu vikuna í ágúst er í fullum gangi. Í síðustu viku var búið að skrá í 40% af plássunum, bæði íslenskir og erlendir leikmenn. Kampurinn er fyrir bæði útileikmenn og markmenn og eru leikmenn úr öllum félögum velkomnir.

Við bendum á að heilir 18 tímar af ísæfingum eru í boði á þessum fjórum dögum ásamt videofundum og afís-æfingum.

Kampurinn er haldinn af Precision Hockey UK, þaulvönu fyrirtæki í kömpum, þjálfun, ráðgjöf og fleiru tengdu þjálfun og þróun íshokkíleikmanna í Englandi. Eigandi og aðalþjálfari þess er Jamie Elson, en hann kom og var hjá SR í haust að ráðleggja okkur með þjálfun, skipulag og stefnu félagsins. Jamie er reynslubolti úr ensku íshokkí með yfir 22 ára þjálfunarreynslu á öllum stigum, allt frá unglingum upp í atvinnumennsku. Hann hefur starfað sem þjálfari hjá Cardiff Devils í bresku Elite-deildinni, Bristol Pitbulls í bresku 1. deildinni og Okanagan Hockey Academy í Kanada. Hann hefur verið þjálfari U16 landsliðs Bretlands síðustu fjögur ár og stýrði U18 drengjalandsliðinu á þessu tímabili.

Ekki missa af þessu tækifæri til að mæta á alþjóðlegan kamp í bakgarðinum heima!

Allar upplýsingar og skráning á vef Precision Hockey:
https://precisionhockey.squarespace.com/on-ice-camps/p/gold-package-g8p7l-2zdc6-zjskx-k98my-82sng-kktw3-bhr3f-74txn-a8bdp-8tgpy-brsbb-m6pjp

Address

Múlavegur 1
Reykjavík
104

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Skautafélag Reykjavíkur Íshokkí posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Skautafélag Reykjavíkur Íshokkí:

Share

Category