Hér má nálgast dagskrá Ólympíudagsins í Laugardal 23. júní 2011.
Ólympíudagurinn er haldinn hátíðlegur víðast hvar í heiminum þann 23. júní, en Alþjóðaólympíunefndin var stofnuð þennan dag árið 1894. Markmiðið með deginum er að bjóða almenningi að kynnast fjölbreyttum íþróttum, með áherslu á að uppgötva, læra og hreyfa sig. Í gegnum íþróttirnar er einnig verið að að kynna gildi Ólympíuhreyfingar
innar; Gera sitt besta - vinátta og virðing. Við bjóðum börn, fullorðna, fjölskyldur, skyldmenni, samstarfsfélaga, vini og kunningja velkomin í Laugardalinn í Reykjavík. Þar verður hægt að prófa íþróttagreinar undir handleiðslu landsliðsfólks í íþróttagreinum eins og skylmingum, tennis, krakkablaki, strandblaki, borðtennis, keilu, dansi og frjálsíþróttum. Einnig verður hægt að skoða keppnisbíla frá kvartmílu til gókart. Rathlaupsfélagið Hekla bíður upp á rathlaup í Laugardalnum. Deginum lýkur með hinu skemmtilega Miðnæturhlaupi sem hefst kl: 22:00. Þar er hægt að velja á milli þriggja vegalengda, 3 km, 5 km og 10 km. Skráning og nánari upplýsingar er hægt að finna á www.marathon.is og www.hlaup.is þátttakendur í hlaupinu fá svo frítt í sund að loknu hlaupi.
Ólympíudagurinn er haldinn í samstarfi við íþróttahreyfinguna og Ólympíufjölskyldu ÍSÍ. Dagskrá* í Laugardalnum 23. júní:
19:00 Setning við bílastæðin hjá Þrótti/Ármanni.
19:00 - 22:00 Akstursíþróttanefnd ÍSÍ/LÍA með sýningu á 4 til 5 keppnisbílum allt frá kvartmílu til gókart - þeir verða á bílastæðinu hjá Þrótti/Ármanni.
18:30 - 21:30 Skylmingar -
í Skylmingamiðstöðinni undir norðurenda stúku Laugardalsvallar- World Class megin
19:00 - 22:00 Keila
Verða á Melavelli en það er rýmið nefnt í glerhýsinu við stúku Laugardalsvallar
19:00 - 22:00 Skotíþróttir, hægt að skjóta úr loftriffli undir handleiðslu landsliðsmanna. Verða á Melavelli í glerhýsinu við stúku Laugardalsvallar
19:00 - 22:00 Krakkablak og strandblak
á grasinu við körfurnar hjá bílastæði Þróttar/Ármanns
19:00 - 22:00 Tennis
Á tennisvöllunum bak við húsnæði Þróttar (við Valbjarnarvöll)
19:00 - 22:00 Rathlaup í Laugardal, þau verða með kort og upplýsingar hjá merki Þróttar. sjá frekari upplýsingar á heimasíðu rathlaupsfélagsins Heklu á www.rathlaup.is,
21:00 - 21:40 Dans - danskóli Jóns Péturs og Köru verður með sýningu og létta kennslu við Laugardalslaug (bílastæðismegin).
22:00 Miðnæturhlaupið fer af stað
*Fyrirvari er á að dagskráin gæti tekið breytingum. Til þess að lífga upp á daginn þá væri gaman að sjá sem flesta í íþróttabúningum. Annað hvort í búningi síns félags, uppáhaldstreyjunni sinnii, landsliðsbúningi eða jafnvel sem Glanni glæpur. Skorum á þá sem geta að koma á gangandi, hjólandi eða með strætó til að létta á umferð og bílastæðum.