25/03/2012
Kæru meðlimir í fit 40 hópnum.
Þá styttist í að þetta námskeið klárist og nýtt er handan við hornið .
Ég hef fengið nokkrar spurningar sem mig langar að svara snöggvast.
1. Fyrir þá sem eiga svolítið erfitt með að mæta alltaf á réttum tíma, ekki hafa áhyggjur! Betra er að koma í halftíma og taka vel á því en að mæta ekki.
2. Varðandi mataræðið: ég er ekki lærður næringafræðingur (frekar en 95% af einkaþjálfurum) og þar af leiðandi finnst mér ekki við hæfi að leiðbeina ykkur varðandi mataræði ykkar (ekki frekar en næringafræðingur eigi að þjálfa ykkur). Ég get gefið ykkur góð og skynsamleg ráð sem allir þekkja, t.d. minnka matarskammtinn og borða meira grænmeti. En ég get mælt með 2 virkilega góðum vefsíðum, ein fyrir þá sem vilja vinna sjálfstætt sem heitir myfitnesspal.com. Þess má geta að ég er byrjaður sjálfur á því sem hluta af undirbúningi mínum fyrir laugarvegs hlaupið í ár. Þess má geta að myfitnesspal.com er frítt og mjög auðvelt í framkvæmd. Svo er http://heilsugeirinn.is/ íslensk síða sem lofar góðu og er virkilega fræðandi. Þess má geta að heilsugeirinn býður einnig upp á ráðgjöf gegn gjaldi. Mig langar að þakka Birgittu Haskell fyrir ábendinguna.
3. Fyrir þá sem hafa dottið út af einhverjum ástæðum en langar að byrja aftur og jafnvel stökkva inn á milli þegar tækifæri gefst eruð þið alltaf velkomin!! Gjaldið fyrir að koma inn á milli er bara hlutfallsleg upphæð af námskeiðinu, t.d. ef þú ert með í 4 vikur af 6 vikna námskeiði þá borgar þú tvo þriðju af námskeiðinu. Stakur tími kostar 1.000 kr. og allir eru velkomnir.
mbk. Stefán
oftast valið milli hollustunnar eða óhollustunnar. Mig langar í þessum fyrsta pistli að vekja ykkur til umhugsunnar um val á matvörum.