Grandi101 - er staðsett á Fiskislóð 49-51, 101 Reykjavík í rúmlega 1000m2 húsnæði.
Á Granda101 aðstoðum við einstaklinga við að verða besta útgáfan af sjálfu sér með aukinni hreyfingu og skemmtilegu samfélagi. Áhersla er lögð á fagmennsku, persónulega þjónustu og skynsemi í þjálfun. Við mælum með að þeir sem ekki hafa stundað Functional Fitness áður taki grunnnámskeiðið hjá okkur, annars er það
ekki krafa heldur það sem við mælum með.
Þá bjóðum við einnig upp à tæknitíma í ólympískum lyftingum og fimleikum sem og teygjutíma og tíma með áherslu á slökun og öndun. Þessir tímar eru opnir meðlimum. Hreysti101 - Áhersla lögð á lyftingar (ólympískar- og kraftlyftingar), fimleikaæfingar og úthaldsæfingar. Notast er við lyftingarstangir og lóð, ketilbjöllur, handlóð, bolta, sippubönd, róðarvélar, hjól o.s.frv.
Þrek101 - Áhersla lögð á lengri úthaldsæfingar og einfaldar styrktaræfingar (engar ólympískar lyftingar). Notast er við ketilbjöllur, handlóð, bolta, sippubönd, róðravélar, hjól o.s.frv. Réttstöðulyftur, hnèbeygjur, pressur og tog í ólíku formi er aðal undirstaðan í þessum tímum.