Fjallafélagið

Fjallafélagið Over 30 years experience of guiding adventure-seekers to mountains in Iceland and around the world Fagmennska á öllum sviðum er leiðarljósið okkar.

Við leggjum metnað okkar í að fjallafélagar njóti ferðarinnar með okkur og upplifi samspil manns og náttúru á sterkan og jákvæðan hátt.

Vorum að ljúka vel heppnaðri ferð til Kólumbíu. Það eru ekki allir sem vita hversu stórkostlegt land þetta er. Fólkið er...
31/01/2026

Vorum að ljúka vel heppnaðri ferð til Kólumbíu. Það eru ekki allir sem vita hversu stórkostlegt land þetta er. Fólkið er sérstaklega vingjarnlegt og náttúran einstök. Við byrjuðum á að skoða höfuðborgina Bogota. Gengum svo um kaffiekrur í hlíðum eldfjalla. Enduðum svo ferðina í hinni einstöku Cartagena við Karíbahaf.

Við eigum nokkur pláss laus í einstaka ferð til Japan sem er pökkuð af ævintýrum. Við göngum á Mt. Fuji, skoðum Tókýó, H...
15/01/2026

Við eigum nokkur pláss laus í einstaka ferð til Japan sem er pökkuð af ævintýrum. Við göngum á Mt. Fuji, skoðum Tókýó, Hakone, Kyoto, Hiroshima og margt fleira. Upplifðu einstaka náttúru, andstæður í menningu og aldagamlar hefðir Japans á göngu og á hjóli. Ferðin hefst 12. maí. Þessi brottför er fyrir vant göngufólk þar sem gengið verður í snjó á Mt. Fuji (10 tíma ganga). Verð kr. 690 þúsund. án flugs.
https://fjallafelagid.is/product/japan-gongur-hjol-menning-12-05-2026/

07/10/2025
Eftir mikla vinnu í sumar kynnum við nýjar leiðir í Fálkakletti. Ef þú hefur komið áður og vilt meira, þá er þetta eitth...
07/08/2025

Eftir mikla vinnu í sumar kynnum við nýjar leiðir í Fálkakletti. Ef þú hefur komið áður og vilt meira, þá er þetta eitthvað fyrir þig.

06/08/2025

Fjallafélagið er með vikulegar æfingar allt árið um kring. Við sérhæfum okkur í ferðum á hæstu og erfiðustu tinda landsins ásamt æfingum á lægri og auðveldari fjöll.

Við endurtökum magnaða ferð til Kólumbíu sem er ein af földu perlum Suður-Ameríku. Fjölbreytileiki er það sem einkennir ...
16/07/2025

Við endurtökum magnaða ferð til Kólumbíu sem er ein af földu perlum Suður-Ameríku. Fjölbreytileiki er það sem einkennir menningu og náttúru þessa einstaka lands. Ferðin byrjar 19. janúar og er tilvalið að stytta veturinn og upplifa stórbrotið ævintýri. Í þessari ferð förum við um fáfarnar gönguleiðir þar sem nánast engir ferðamenn eru. Við fáum mörg tækifæri til að hitta heimamenn á heimilum þeirra. Einnig skoðum við borgirnar Bogota, Salento og Cartagena. Allar upplýsingar eru á heimasíðu okkar:
https://fjallafelagid.is/product/kolumbia-eldfjoll-kaffi-og-karibahaf-19-januar-2026/

Við vorum að ljúka fyrstu ferðinni okkar í ár á Inkastíginn til Macchu Picchu í Perú. Ferðin heppnaðist frábærlega og er...
07/05/2025

Við vorum að ljúka fyrstu ferðinni okkar í ár á Inkastíginn til Macchu Picchu í Perú. Ferðin heppnaðist frábærlega og er það ekki síst að þakka okkar einstöku staðarleiðsögumönnum Edy og Kaya. Þau leiða hópinn í magnað ævintýri um sögu og menningu þessa framandi lands. Þetta er ein af okkar allra vinsælustu ferðum enda upplifun sem er engu lík. Ferðir 2026 eru þegar komnar í sölu og hægt að bóka á heimasíðunni okkar www.fjallafelagid.is

Í dag leggjum við í ævintýraferð á Inkastíginn til Macchu Picchu. Það eru spennandi dagar framundan. Við kynnumst náttúr...
28/04/2025

Í dag leggjum við í ævintýraferð á Inkastíginn til Macchu Picchu. Það eru spennandi dagar framundan. Við kynnumst náttúru, menningu og förum í gegnum andlegt ferðalag.

Ekki missa af þessu viðtali við okkar einu sönnu Hafdísi Huld sem er einn af umsjónarmönnum Fjallabandalagsins.
03/03/2025

Ekki missa af þessu viðtali við okkar einu sönnu Hafdísi Huld sem er einn af umsjónarmönnum Fjallabandalagsins.

Það er oft hlegið í samtalinu við Hafdísi Huld Björnsdóttur framkvæmdastjóra og stofnanda ráðgjafafyrirtækisins RATA.

Address

Esjumelar
Reykjavík
116

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Fjallafélagið posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Fjallafélagið:

Share