20/12/2023
Mér þykir gott að hugsa fram í tímann, þegar aðventan byrjar og þegar hún er búin, þegar sumarfríið byrjar og þegar því lýkur. Í grunninn þykir mér gott að hafa plan. Til dæmis núna á þessum skemmtilega og hlýja aðventu tíma er ég spennt fyrir janúar því ég hlakka til að takast á við það sem ég ætla að fókusa á þá.
Það allra fyrsta sem að talaði til mín (fyrir utan það að læra að hlusta og heyra hvað aðrir höfðu að segja) í markþjálfa náminu var “Hvað viltu?”
Þessi tvö orð létu mig ekki í friði til að að byrja með pirraði þetta mig ægilega hvað rugl er þetta það er ekkert hægt að ákveða það!! Hvað vil ég?
Í stuttu máli þá gjörbreyttu þessi tvö orð lífi mínu. Ég er þekkt fyrir að vaða áfram takast á við það sem til mín hefur komið án þess að hika leysa vandamál og verkefni.
Það sem ég áttaði mig á var að ég hafði fram að þessu alls ekki verið við stjórn ég var alls ekki að gera það sem ég helst vildi, ég var að gera það sem ég hélt að aðrir vildu að ég gerði og ég var mjög góð í því.
Ég fór sem sagt að rannsaka þessi tvö orð - sjö árum seinna er ég komin áleiðis á þann stað sem ég vil vera á.
Ég komst að því að ég var einni ákvörðun frá því að breyta færast áfram og nær því sem ég vildi. Allt ferlið sem er enn í gangi snýst um að forgangsraða og velja til að byrja með tók þetta á ég upplifði samviskubit og að ég væri eigingjörn og sjálfselsk að velja og setja mikilvægið í fyrsta sætið - ég er komin mjög langt frá þessum tilfinningum í dag og sú tilfinning er sú besta sem ég hef upplifað.
Ég skil þess vegna svo vel þegar ég heyri sagt “Ég get ekkert verið að rugla í þessu þetta er bara ágætt svona það er orðið of seint að standa í þessu eða "Það er ekkert fengið með þessu það er ekkert víst að þetta verði betra”
Gott og vel það er allt í fínu lagi að hafa allt eins og það hefur verið ef að það gengur vel upp fyrir þig en… ef það er ekki þá get ég sagt með 100% vissu að það er hægt að gera breytingar þú getur farið þangað sem þú vilt, gert það sem þig hefur alltaf langað til að gera og upplifað innihaldsríkt og fullnægjandi líf.
Er það einfalt - ekki í byrjun en það verður einfaldara og eftir sjö ár eins og að drekka vatn sem sagt hluti af lífinu.
Ég óska öllum friðsældar gleði og ró í hjarta ❤️