Lyftingasamband Íslands - Icelandic Weightlifting Federation

Lyftingasamband Íslands - Icelandic Weightlifting Federation Lyftingasamband Íslands - The Icelandic Weightlifting Federation

EM öldunga fer fram í Waregem í Belgíu dagana 19. - 27. júní. Meðal keppenda eru þessir flottu iðkendur 🤩Frá vinstri: Ma...
15/06/2026

EM öldunga fer fram í Waregem í Belgíu dagana 19. - 27. júní. Meðal keppenda eru þessir flottu iðkendur 🤩

Frá vinstri: Margrét Bára Þórkelsdóttir, Gísla Rún Kristjánsdóttir, Hrund Scheving, Erla Guðmundsdóttir, Steinunn Sveinsdóttir, Jóhannes Þór Ævarsson og Lína Viðarsdóttir.

Þjálfari þeirra er Kári Walter.

Þar að auki munu Dísa Edwards og Anna Guðrún Halldórsdóttir taka þátt á mótinu.

Við óskum þeim góðs gengis og áfram Ísland 🇮🇸

Vorum að fá þessar myndir frá EWF Media frá HM 2024 🤩Eygló Fanndal, -71 kg með 107 kg í snörun og 132 kg í jafnhendingu,...
11/06/2026

Vorum að fá þessar myndir frá EWF Media frá HM 2024 🤩

Eygló Fanndal, -71 kg með 107 kg í snörun og 132 kg í jafnhendingu, samanlagt 239 kg, sem tryggði henni 4. sætið. Þetta er jafnframt hennar önnur besta samanlagða þyngd.

Lyftingar eru uppi! 🏋️‍♀️

📸 European Weightlifting Federation

-----------------------------------

Hvetjum áhugasöm til að leita til aðildarfélaganna okkar og prófa þessa mögnuðu og kröftugu íþrótt, sjá upplýsingar um félögin hér lsi.is/felog

Guðmundur Sigurðsson lyftingafrömuður varð 80 ára þann 9. júní. Hann þarf vart að kynna til leiks en þó er líklegt að ek...
10/06/2026

Guðmundur Sigurðsson lyftingafrömuður varð 80 ára þann 9. júní. Hann þarf vart að kynna til leiks en þó er líklegt að ekki þekki allir af yngri kynslóðinni afrek hans og framlag til lyftinga.

Guðmundur Sigurðsson lyftingafrömuður varð 80 ára þann 9. júní. Hann þarf vart að kynna til leiks en þó er líklegt að ekki þekki allir af yngri kynslóðinni afrek hans og framlag til lyftinga. Guðmu…

08/06/2026

Svipmyndir frá Batumi 🇬🇪
European Weightlifting Federation

🤩🥳 EWF kynnti á dögunum nýja síðu (https://media.ewf.sport/) þar sem hægt er að skoða myndir frá stórmótum síðustu ára. ...
08/06/2026

🤩🥳 EWF kynnti á dögunum nýja síðu (https://media.ewf.sport/) þar sem hægt er að skoða myndir frá stórmótum síðustu ára. Það virðist vera mikill uppgangur hjá EWF og greinilegt að mikil vinna hefur verið lögð í að bæta umgjörð og sýnileika ólympískra lyftinga.

Við fögnum því með frábærum myndum frá EM fullorðinna sem fram fór í Batumi, Georgíu 🇬🇪

European Weightlifting Federation
Hiroki Nishioka

Sumarmót LSÍ fór fram sunnudaginn 24. maí í Íþróttahöllinni á Akureyri í umsjá lyftingadeildar KA. Óhætt er að segja að ...
25/05/2026

Sumarmót LSÍ fór fram sunnudaginn 24. maí í Íþróttahöllinni á Akureyri í umsjá lyftingadeildar KA. Óhætt er að segja að mótahaldið hafi verið til fyrirmyndar, skipulagið var til gott og fagleg vinnubrögð einkenndu mótið frá upphafi til enda.

Keppendur stóðu sig frábærlega og sýndu margir hverjir feiknagóða takta á pallinum. Hér á eftir fylgja helstu úrslit dagsins.

Sumarmót LSÍ fór fram sunnudaginn 24. maí í Íþróttahöllinni á Akureyri í umsjá lyftingadeildar KA. Óhætt er að segja að mótahaldið hafi verið til fyrirmyndar, skipulagið var til gott og fagleg vinn…

Sumarmót LSÍ - keppendalisti.
22/05/2026

Sumarmót LSÍ - keppendalisti.

18 keppendur eru skráðir á sumarmót LSÍ sem fer fram í Íþróttahöllinni á Akureyri, sunnudaginn 24. maí. Lyftingadeild KA hefur umsjón með mótinu. Vigtun hefst kl. 10:30 fyrir alla keppendur Keppni …

Athygli er vakin á því að stjórn LSÍ hefur uppfært viðmið um keppnisrétt á mótum í ljósi þyngdarflokkabreytinga sem taka...
21/05/2026

Athygli er vakin á því að stjórn LSÍ hefur uppfært viðmið um keppnisrétt á mótum í ljósi þyngdarflokkabreytinga sem taka gildi 1. ágúst næstkomandi.

Lesa nánar hér:

Lágmörk_2026_210526Download

SUMARMÓT LSÍ OG KA ☀️💫Skráning hafin á abler.io/shop/lyftingasamband/1/ Ekki láta þig vanta á heitasta mót ársins 🤩Sérst...
12/05/2026

SUMARMÓT LSÍ OG KA ☀️💫

Skráning hafin á abler.io/shop/lyftingasamband/1/

Ekki láta þig vanta á heitasta mót ársins 🤩

Sérstakt forskráningargjald gildir til og með sunnudagsins 17. maí.

Mótinu er stillt þannig upp að hægt er að koma með fyrsta flugi frá Reykjavík og beint í vigtun.

Samstarfsaðilar LSÍ eru:
Craftverslun
Frumherji
SBD
Gatorade

Skráning á sumarmót LSÍ í ólympískum lyftingum sem fer fram sunnudaginn 24. maí 2026: https://www.abler.io/shop/lyftinga...
12/05/2026

Skráning á sumarmót LSÍ í ólympískum lyftingum sem fer fram sunnudaginn 24. maí 2026: https://www.abler.io/shop/lyftingasamband/1/?program=Q2x1YlNlcnZpY2U6NTc4ODA=

Skráningu lýkur 21. maí 2026 kl. 23:59.

Mótið er í umsjá lyftingadeildar KA og fer fram í Íþróttahöllinni við Skólastig á Akureyri

Mótið er Sinclair stigamót og þrír stigahæstu einstaklingarnir af hvoru kyni eru verðlaunaðir.

Keppnisgjald er kr. 10.000,- og bera keppendur ábyrgð á greiðslu keppnisgjalds (breytingar á mótareglum og þ.m.t. gjaldskrá, tóku gildi 6. maí).

Forskráningargjald er kr. 8.000,- og gildir til og með sunnudagsins 17. maí.

*Stefnt er að því að hefja vigtun kl. 10:30 til að koma til móts við þá sem koma með flugi um morguninn (áætluð koma til Akureyrar með fyrsta flugi frá Reykjavík er kl. 10:15).

Frekari upplýsingar um mótið veitir Birkir Örn Jónsson fyrir hönd KA, á netfangið [email protected] eða í síma 844 7377.

Skráningareyðublað fyrir Sumarmót LSÍ í ólympískum lyftingum sem fer fram sunnudaginn 24. maí 2026.Skráningu lýkur 21. maí 2026 kl. 23:59.Mótið er í ums...

Address

Engjavegur 6
Reykjavík
104

Telephone

+3548490772

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Lyftingasamband Íslands - Icelandic Weightlifting Federation posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Lyftingasamband Íslands - Icelandic Weightlifting Federation:

Share