Bako Verslunartækni

Bako Verslunartækni Bako Verslunartækni - fagmenn og ástríðukokkar
Allt fyrir verslanir, vöruhús, stóreldhús, veitingastaði, bakstursiðnað, hótel & bari.

Við vinnum að hagkvæmum og árangursríkum lausnum með þér

BAKO VERSLUNARTÆKNI býður fjölbreyttar lausnir fyrir verslanir, vöruhús, hótel, veitingastaði, bari og bakstursiðnað. Við höfum áralanga reynslu og sérhæfum okkur í þjónustu og lausnum í verslanir og stórmarkaði, hvort heldur er kælikerfi, hillukerfi, öruggishlið eða annað sem þarf til að láta verslunarreksturinn virka sem best. Vöruhúsalausnir frá sterkbyggðum brettarekkum og í nettari og snyrtilegri hillukerfi. Í boði eru bæði sérhannaðar og sérsmíðaðar lausnir auk tilbúinna lausna frá okkar erlendu birgjum sem eru í sérflokki á lausnasviði. Opnunartími er frá kl. 08:00-17:00 (mán-fim) og 08:00-16:00 (fös) en utan þess tíma ef nauðsyn krefur er hægt að ná beint í starfsmann í gsm. Við teiknum grunnmyndir af verslunarplássum, eina sem þarf að gera er að senda okkur útlínuteikningu á viðurkenndu teikniforriti, gefa okkur eins góða lýsingu og hægt er af væntanlegri uppröðun og tækjanotkun. Við sendum síðan hugmyndir innan fárra daga. Við sjáum um eða útvegum iðnaðarmenn í uppsetningar á hillum og kælum sé þess óskað.

Öll varahluta og viðgerðarþjónusta er til staðar og leggjum við mikinn metnað í að leysa öll þau mál sem upp koma fljótt og örugglega. Hafðu samband í síma 5351300 eða með því að senda tölvupóst á [email protected]

Við bjóðum einnig uppá útkeyrslu á öllum okkar vörum á höfuðborgarsvæðinu, ásamt keyrslu á flutningsaðila fyrir landsbyggðina.

Hótel- og matvælaskólinn fagnaði 30 ára afmæli sínu á laugardaginn og þökkum við kærlega fyrir skemmtilegan dag!Pétur S....
07/09/2026

Hótel- og matvælaskólinn fagnaði 30 ára afmæli sínu á laugardaginn og þökkum við kærlega fyrir skemmtilegan dag!

Pétur S. Pétursson, bakarameistari og söluráðgjafi hjá okkur, sat í dómnefnd kleinuhringjakeppninnar ásamt Ásdísi Kristjánsdóttur, bæjarstjóra Kópavogs, Unnari Þór, verkefnastjóra Samfélagslögreglunnar, og Billy Long, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi.🍩

Keppnin var hörkuspennandi enda voru þar glæsilegir og fjölbreyttir kleinuhringir. Að lokum stóð Marína Björk Halldórsdóttir, bakaranemi hjá Gulla Arnari, uppi sem sigurvegari og hlaut glæsileg verðlaun. Allir keppendur fengu gjafapoka frá okkur með ýmsum vörum sem nýtast vel í bakaraiðninni.

Gaman er að geta þess að bakaraiðndeild skólans tók nýlega í notkun fjórar nýjar RONDO Econom 4000 rúlluvélar frá okkur. Vélarnar eru nettar en virkilega öflugar miðað við stærð. RONDO hefur verið leiðandi í þróun rúlluvéla og lausna fyrir lagskiptingu deigs frá árinu 1948 og er vörumerkið þekkt fyrir áreiðanleika og endingu.

Undir rúlluvélarnar voru sérsmíðuð borð frá Vitrum, sem eru með fellanlegum hliðum svo auðvelt sé að flytja vélarnar milli rýma og taka þær með á sýningar og keppnir. Virkilega skemmtilegt samstarf með deildinni fyrir bakara framtíðarinnar. 🥐🧑‍🍳

📸 Myndir frá myndasafni MK

Við vorum að fá glæsilega ferðabari sem sameina léttleika og stöðugleika. Þeir eru traustir, öruggir og fljótlegir í upp...
04/09/2026

Við vorum að fá glæsilega ferðabari sem sameina léttleika og stöðugleika. Þeir eru traustir, öruggir og fljótlegir í uppsetningu. Með hverjum bar fylgja ílát fyrir klaka og meðlæti ásamt flöskurekka. Auk þess er hægt að sérmerkja barinn með þínu vörumerki og skapa þannig eftirtektarverða og faglega aðstöðu.
Sjá nánar hér: https://bvt.is/ferdabar-giovanni-mini-click-bar.html

Kíktu á lagersöluna í vefverslun. Fjölbreytt úrval af vörum fyrir fagfólk og ástríðukokka! https://bvt.is/lagersala
31/08/2026

Kíktu á lagersöluna í vefverslun. Fjölbreytt úrval af vörum fyrir fagfólk og ástríðukokka! https://bvt.is/lagersala

13/08/2026

Fallegu bleiku innkaupakerrurnar í Bónus eru uppáhald margra, bæði vegna litsins og þægilegrar stærðar. 🐷 Hér fáum við innsýn inn í framleiðsluferlið hjá Damix, þar sem þær verða til eftir hæstu gæðakröfum.

Kæru viðskiptavinir, Miðvikudaginn 12. ágúst lokar verslun, þjónustuverkstæði og vöruhús kl. 16, vegna almyrkva á sólu. ...
10/08/2026

Kæru viðskiptavinir,
Miðvikudaginn 12. ágúst lokar verslun, þjónustuverkstæði og vöruhús kl. 16, vegna almyrkva á sólu. 🌞

Þökkum skilninginn og vonum að þið njótið upplifunarinnar!

31/07/2026

Lokað á frídegi verzlunarmanna 🌤️
Opnum aftur þriðjudaginn 4. ágúst kl. 08:00

27/07/2026

🌞 Við lokum kl. 13 í dag út af gulri veður viðvörun 🌞

Sypiik brettatjakkurinn stendur alltaf fyrir sínu 💪Með mjúkum gúmmíhjólum á harðri felgu sem fara vel og hljóðlega yfir ...
12/07/2026

Sypiik brettatjakkurinn stendur alltaf fyrir sínu 💪

Með mjúkum gúmmíhjólum á harðri felgu sem fara vel og hljóðlega yfir öll gólf ásamt því að lyfta 2.500 kg. örugglega. Þetta er eitt af mörgum vörunúmerum sem hefur verið í úrvalinu okkar í meira en 10+ ár ✅

Ekki að ástæðulausu að hann fær sinn eigin sýningarpall hjá okkur að Draghálsi 22 📍

Við breytum og bætum í sýningarsalnum okkar 🔨 Að sjálfsögðu er ennþá opið hjá okkur en það er minna af borðbúnaði og glö...
22/05/2026

Við breytum og bætum í sýningarsalnum okkar 🔨

Að sjálfsögðu er ennþá opið hjá okkur en það er minna af borðbúnaði og glösum til sýnis þessa stundina en venjulega 🍽

Hlökkum til að sýna ykkur loka útkomuna á næstu dögum!

📍 Dragháls 22
📞 595-6200
📧 [email protected]
🖥 bvt.is

Er útisvæðið klárt fyrir sumarið?Við eigum úrval af útihúsgögnum m.a. frá Zederkof sem skapa einstaka stemningu og uppli...
20/05/2026

Er útisvæðið klárt fyrir sumarið?
Við eigum úrval af útihúsgögnum m.a. frá Zederkof sem skapa einstaka stemningu og upplifun.

Kynntu þér útihúsgögn fyrir útisvæðið hér:
https://bvt.is/fagfolk/utihusgogn.html

Hafðu samband við sérfræðinga okkar fyrir frekari upplýsingar:
📱 595-6200
📧 [email protected]

Útihúsgögn. Bako Verslunartækni selur tæki, vörur og þjónustu fyrir fagfólk og ástríðukokka. Stóreldhús, hótel-, veitingahús, bakarí og vöruhús

Address

Draghálsi 22
Reykjavík
110

Opening Hours

Monday 08:00 - 17:00
Tuesday 08:00 - 17:00
Wednesday 08:00 - 17:00
Thursday 08:00 - 17:00
Friday 08:00 - 16:00

Telephone

+3545351300

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Bako Verslunartækni posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share