Skotveiðifélag Íslands Skotvís

Skotveiðifélag Íslands Skotvís Skotveiðifélag Íslands er landssamtök skotveiðimanna. Tilgangur félagsins er að standa vörð um hagsmuni og réttindi skotveiðimanna á Íslandi.

Sjá nánar um félagið hér:
https://skotvis.is/about/

Markmið félagsins er að stuðla að sameiningu skotveiðimanna og áhugamanna um skotveiðar og náttúruvernd og standa vörð um hagsmuni þeirra. Markmiði sínu hyggst félagið ná m.a. með því að:

Stuðla að útgáfustarfsemi og almennri fræðslu um málefni, sem snerta skotveiðar, náttúruvernd og almennan fróðleik um dýralíf landsins. Eiga samvinnu við önnur félög og samtök, innlend og erlend, sem hafa málefni tengd áhugamálum skotveiðimanna á stefnuskrám sínum. Stuðla að rannsóknum og gagnasöfnun um stofna veiðidýra. Eiga samvinnu við önnur félög og opinbera aðila um setningu laga og reglugerða um almannarétt, náttúruvernd, friðun og veiðar dýra og meðferð skotvopna. Aðstoða við stofnun félaga um skotveiðar og styðja við starfsemi þeirra. Greiða fyrir aðgangi veiðimanna að veiðilöndum. Gangast fyrir kynningu og fræðslu fyrir almenning um skotveiðar. Stuðla að aukinni hagkvæmni innkaupa fyrir félaga. Stuðla að sjálfbærri nýtingu dýrastofna.

Á heimasíðu félagsins er að finna umfangsmikinn fróðleik og m.a. yfirlit yfir lög og reglur er varða meðferð skotvopna á Íslandi. Formaður félagsins er Áki Ármann Jónsson
[email protected]

17/09/2026

LOFTSLAGSMARKMIÐ.

Það er undarleg tilfinning að sitja á skrifstofu SKOTVÍS við hliðina á Orku-og umhverfisstofnun sem hafnaði því að veita SR tímabundna undanþágu frá starfsleyfi.
Í dag eru 44 að koma í skotvopnapróf og þurfa núna að keyra í Varmahlíð eða Blönduós um helgina að fara í verklegt og svona er þetta búið að vera allt þetta ár.

Sama stofnun er ábyrg fyrir aðgerðum í loftslagsmálum.

Starfsleyfi SR var fellt úr gildi vegna formgalla við útgáfu leyfisins. Engar málsástæður sem snertu umhverfisimál felldu leyfið.

Heildarmyndin er svolítið skökk.

SKOTVÍS BLAÐIÐ 2026Blaðið er farið í prentun og verður dreift til félagsmanna næstkomandi föstudag.Ef þú átt eftir að bo...
14/09/2026

SKOTVÍS BLAÐIÐ 2026

Blaðið er farið í prentun og verður dreift til félagsmanna næstkomandi föstudag.

Ef þú átt eftir að borga félagsgjöldin er bankareikningurinn 516-04-763199, upphæð 6.500 og kennitala okkar er 620379-0269. Gefðu upp þína kennitölu sem tilvísun.

Ef þú vilt ganga í félagið þá ferðu inn á skotvis.is og smellir á GANGA Í SKOTVÍS.
Fyrsta árið er frítt í boði Hlað og fyrsti greiðsluseðill kemur ekki fyrr en í janúar 2028.

Allir saman nú!

Þessi fallegi dagur bauð upp á nýtt starfsleyfi og opnun hjá Skotreyn, margir mættu og mikið gaman!
05/09/2026

Þessi fallegi dagur bauð upp á nýtt starfsleyfi og opnun hjá Skotreyn, margir mættu og mikið gaman!

BLESGÆS – ALFRIÐUÐ TEGUNDMinnum veiðimenn á að blesgæsin er alfriðuð. Hún getur verið innan um aðrar gæsir og því er mik...
04/09/2026

BLESGÆS – ALFRIÐUÐ TEGUND
Minnum veiðimenn á að blesgæsin er alfriðuð. Hún getur verið innan um aðrar gæsir og því er mikilvægt að greina fuglana vel áður en skotið er, svo koma megi í veg fyrir að blesgæs sé felld í misgripum.

01/09/2026

VERKLEG SKOTVOPNANÁMSKEIÐ

AKRANES 5. september
AKUREYRI 5. september
BLÖNDUÓS 5. september, 19. september
EGILSSTAÐIR 5. september, 14.september
SAUÐÁRKRÓKUR 12. september, 3. október

Verklegt skotvopnanámskeið verður haldið 12. september á Geitasandi við Hellu fyrir þá sem hafa lokið bóklega hluta skotvopnanámskeiðs.

Skotsvæðið er því lokað frá kl. 12 - 18 12. sept vegna námskeiðshalds

Fundur Norrænu skotveiðisamtakanna(NHA) í NoregiStjórn Norrænu veiðimannasamtakanna (Nordic Hunters’ Alliance – NHA) kom...
27/08/2026

Fundur Norrænu skotveiðisamtakanna(NHA) í Noregi

Stjórn Norrænu veiðimannasamtakanna (Nordic Hunters’ Alliance – NHA) kom saman til fundar í höfuðstöðvum norsku samtakanna NJFF í Asker í Noregi dagana 25.–26. ágúst.
SKOTVÍS tók þátt í fundinum ásamt systursamtökum sínum á Norðurlöndunum.
Fjölmörg mikilvæg mál voru til umræðu, meðal annars sjálfbær nýting og veiðistjórnun fuglastofna, þátttaka veiðimanna í vöktun dýrastofna, staða stórra rándýra og áhrif evrópskrar löggjafar á veiðar og náttúrunýtingu.
Sérstaklega var rætt um fyrirhugaða veiðistjórnun rauðhöfðaandar og fleiri tegunda, alþjóðlegt samstarf um stjórnun gæsastofna og æðarfugls, breytingar á reglum um blýhögl og yfirstandandi endurskoðun á fugla- og búsvæðatilskipunum Evrópusambandsins.
Einnig var farið yfir samstarfið við FACE, Evrópusamtök veiðimanna, og undirbúning næsta aðalfundar samtakanna í Brussel.
Fundir sem þessir eru mikilvægir fyrir SKOTVÍS.
Þar gefst okkur tækifæri til að fylgjast með þróun mála, koma íslenskum sjónarmiðum á framfæri og vinna með norrænum systursamtökum að sameiginlegum hagsmunum veiðimanna, sjálfbærri nýtingu og ábyrgri náttúruvernd.

Fundur formanna skotveiðisamtaka á Norðurlöndum í Asker Noregi.
25/08/2026

Fundur formanna skotveiðisamtaka á Norðurlöndum í Asker Noregi.

GÆSAVEIÐIN ER BYRJUÐ OG ÞÁ SKAL SKILA GÆSAVÆNGJUM TIL ARNÓRS.Kæru veiðimennUndanfarin ár hef ég leitað til ykkar eftir a...
20/08/2026

GÆSAVEIÐIN ER BYRJUÐ OG ÞÁ SKAL SKILA GÆSAVÆNGJUM TIL ARNÓRS.

Kæru veiðimenn

Undanfarin ár hef ég leitað til ykkar eftir aðstoð við að safna gæsa- og andavængjum til aldursgreininga á veiðinni í þeim tilgangi að vakta ungahlutfall í veiðinni sem endurspeglar ungaframleiðslu veiðistofnanna. Og enn á ný leita ég til ykkar nú þegar gæsaveiðitímabilið hefst á miðnætti annað kvöld.

Gæsavarp virðist almennt hafa tekist vel í fyrra, árið 2025. Alls bárust um 2.400 gæsavængir frá veiðimönnum og er það talsvert minna en var áður en veiði á grágæsum virðist hafa minnkað við sölubann.

Ungahlutfall hjá grágæs haustið 2025 var um 53% og var nokkuð yfir meðaltalinu sem er 45%. Þetta er marktækt hærra hlutfall en var 2024 þegar það var um 47%. Ungahlutfall hjá heiðagæsinni var um 31% sem er rétt yfir meðallagi en það er um 30% og svipað og það var 2023. Ungahlutfall hjá helsingjum var um 27% sem er í meðallagi en meðaltal hjá helsingja er um 27% og nær það sama og 2024

En að vængjasöfnuninni. Eins og áður þá bið ég ykkur veiðimenn að senda mér annan vænginn af þeim gæsum og öndum sem þið skjótið og alltaf væng sömu megin. Þið getið komið þeim til mín á Verkís, Ofanleiti 2 í Reykjavík eða ég sótt þá til ykkar á höfuðborgarsvæðinu ef það hentar betur. Einnig get ég komið og skoðað gæsirnar fyrir verkun ef því verður við komið ef þið eruð á höfuðborgarsvæðinu. Þeir sem búa úti á landi geta sent mér vængina með Landflutningum eða Eimskip og greiði ég sendingarkostnaðinn. Síðustu ár hefur mér borist nokkuð af ljósmyndum af vængjum frá veiðimönnum utan af landi og gengur það yfirleitt vel. Best er þegar myndirnar eru sendar með Messenger í Facebook. Það tekur minna pláss en að senda stórar myndir í tölvupósti. Meðfylgjandi mynd barst mér á þann hátt frá Tómasi Árdal og sýnir vel það sem ég þarf að sjá af vængnum. Hafa hann svona útbreiddan svo vængþökur sjáist (gulur hringur) og gott er að sjá endann á dvergvængsfjöður, sú sem sést undir þumlinum (rauður hringur). Einnig gott að sjá svona í bakið en ekki nauðsynlegt. Þið fáið síðan sendar niðurstöður greininga á vængjum frá ykkur til baka.

Stundum heyri ég að mönnum finnist ekki taka því að senda mér vængi ef einungis fáeinir fuglar eru veiddir. Það skiptir engu máli hve margir vængirnir eru, alltaf dýrmætt að fá vængi óháð fjölda. Einnig hvet ég veiðimenn af landsbyggðinni til að vera duglegir að senda og þar hentar vel að taka myndir. Nú liggur fyrir að veiðitími á helsingja verði frá 1. september til 20 september sem er heldur lengra en í fyrra en styttri en var áður. (sjá Veiðitímabil helsingja 2026 staðfest - Nattúra). Ég vil sérstaklega hvetja þá veiðimenn sem veiða helsingja að senda mér vængi eða myndir af þeim.

Þið getið haft samband við mig á netfangið [email protected], í GSM síma 8434924 og á FB finnið þið mig á https://www.facebook.com/arnor.sigfusson/ ef þið viljið senda á mig

Ef þið hafið áhuga á að fylgjast með ferðum merktra grágæsa og helsingja þá getið þið farið inn á Gæsavefsjá Verkís. Slóðin er www.verkis.is/gaesavefsjar. Facebook bætir oft einhverjum táknum við slóðina svo best er að afrita hana og líma í vafra.

Kveðja

Arnór

ESBMikið er spurt þessa dagana um áhrif þess á skotveiðar að ganga í ESB.Hér eru því glærur sem skýra málið og samningsm...
19/08/2026

ESB

Mikið er spurt þessa dagana um áhrif þess á skotveiðar að ganga í ESB.
Hér eru því glærur sem skýra málið og samningsmarkmið sem Ísland þarf að huga að verði niðurstaðan já í kosningum.
Þessar glærur voru áður birtar í vor og eru unnar í samstarfi við lögfræðing okkar í NHA(Nordic Hunters Alliance) sem vinnur í Brussel.

Veiðitímabil helsingja 1-20. september 2026.
17/08/2026

Veiðitímabil helsingja 1-20. september 2026.

📃 Veiði­tíma­bil hels­ingja 2026 staðfest

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur staðfest tillögur Náttúruverndarstofnunar um að veiðitímabil helsingja árið 2026 verði frá 1.–20. september um allt land.

Meira í frétt í athugasemdum 👇

Mynd: Jóhann Óli Hilmarsson

Address

Suðurlandsbraut 22, 2. H. H
Reykjavík
108

Telephone

8349933

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Skotveiðifélag Íslands Skotvís posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Skotveiðifélag Íslands Skotvís:

Shortcuts

Share