Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands - ÍSÍ

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands - ÍSÍ Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands - ÍSÍ, er æðsti aðili frjálsrar íþróttastarfsemi í landinu og í erlendum samskiptum íþróttahreyfingarinnar.

Website: www.isi.is
Instagram: isiiceland

Um helgina fór Meistaramót Íslands í frjálsíþróttum fram á ÍR-vellinum og markaði um leið 100 ár frá því að mótið var fy...
27/07/2026

Um helgina fór Meistaramót Íslands í frjálsíþróttum fram á ÍR-vellinum og markaði um leið 100 ár frá því að mótið var fyrst haldið undir formerkjum ÍSÍ.

Afmælismótið sameinaði sögu og samtíð þegar fremsta frjálsíþróttafólk landsins kom saman til keppni um Íslandsmeistaratitla, met og persónulegar bætingar. Við setningu mótsins flutti Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, ávarp þar sem hann rifjaði upp sögu mótsins og minntist þeirra sem lögðu grunn að íslenskri íþróttahreyfingu.

Lesið fréttina á heimasíðu ÍSÍ 👇

Meistaramót Íslands (MÍ) í frjálsíþróttum fór fram á ÍR-vellinum um helgina og markaði um leið 100 ár frá því fyrsta meistaramótið var haldið undir formerkjum Íþróttasambands Íslands (ÍSÍ), forvera Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands.

Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, var gestur í þættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni á föstudaginn síðastliðinn þar sem...
26/07/2026

Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, var gestur í þættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni á föstudaginn síðastliðinn þar sem hann ræddi kostnað sem fylgt getur þátttöku ungmenna í landsliðsstarfi. Umræðan hefur verið áberandi undanfarið og snýst meðal annars um hvernig tryggja megi jöfn tækifæri til þátttöku í landsliðsverkefnum.

Í viðtalinu sagði Willum að ÍSÍ legði ríka áherslu á að vinna að því að jafna aðgengi að landsliðsstarfi og draga úr áhrifum fjárhags og búsetu á möguleika ungmenna til þátttöku. Hann benti á að á síðustu árum hefðu verið stigin mikilvæg skref í uppbyggingu afreksíþrótta hér á landi, meðal annars með stofnun Afreksmiðstöðvar Íslands og innleiðingu starfslauna fyrir afreksíþróttafólk.

Þrátt fyrir þann árangur sem náðst hefur sagði Willum að efla þyrfti umgjörð afreks- og landsliðsstarfs enn frekar. Hann benti á að þörfin væri enn meiri en það fjármagn sem nú stendur til boða og kvaðst vonast til þess að frekari framgangur næðist í komandi fjárlagavinnu. Að hans mati þurfa stjórnvöld að stíga hraðar og af meiri þunga inn í málaflokkinn svo kostnaður standi ekki í vegi fyrir þeim ungmennum sem fá tækifæri til að keppa fyrir Íslands hönd.

🎧 Hlusta má á viðtalið hér:👇

Willum Þór Þórsson forseti ÍSÍ um kostnað ungmenna vegna landsliðsferða.

🥇 Tæp tvö ár í Ólympíuleikana í Los Angeles 2028Niðurtalningin er hafin að næstu Ólympíuleikum sem fara fram í Los Angel...
24/07/2026

🥇 Tæp tvö ár í Ólympíuleikana í Los Angeles 2028

Niðurtalningin er hafin að næstu Ólympíuleikum sem fara fram í Los Angeles sumarið 2028.
Á leikunum verður keppt í 36 íþróttagreinum og 353 verðlaunakeppnum. Meðal nýrra greina á dagskrá verða hafnabolti, mjúkbolti, krikket, flag football, lacrosse og skvass. Þá verða konur í fyrsta sinn fleiri en karlar meðal keppenda á Ólympíuleikum.

Á næstu tveimur árum mun íslenskt afreksíþróttafólk leggja hart að sér við að ná þeim árangri sem þarf til að tryggja sér þátttökurétt á leikunum og mun ÍSÍ að sjálfsögðu fylgjast vel með þeirri vegferð. 🇮🇸

Þið getið lesið nánar um leikana hér 👇

Niðurtalningin er hafin að Ólympíuleikunum í Los Angeles 2028 en tæp tvö ár eru nú þar til setningarhátíð leikanna fer fram 14. júlí 2028.

„Spurningin er ekki hvort við eigum að velja leikgleði eða afrek. Spurningin er hvernig við getum byggt kerfi þar sem le...
16/07/2026

„Spurningin er ekki hvort við eigum að velja leikgleði eða afrek. Spurningin er hvernig við getum byggt kerfi þar sem leikgleðin verður grunnurinn að afrekunum.“

Í skoðanagreininni Frá leikgleði til afreka, sem birtist á Vísi í dag, fjallar Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, um mikilvægi öflugrar grasrótar, þátttöku barna og ungmenna, sjálfboðaliðastarfs og markvissrar uppbyggingar afreksstarfs.

Lesið greinina á vef ÍSÍ:
🔗 https://www.isi.is/um-isi/frettir/fra-leik-gledi-til-af-reka

🎟️ Skráning í annan útdrátt aðgöngumiða á LA28 stendur yfir!Langar þig að upplifa Ólympíuleikana í Los Angeles árið 2028...
10/07/2026

🎟️ Skráning í annan útdrátt aðgöngumiða á LA28 stendur yfir!

Langar þig að upplifa Ólympíuleikana í Los Angeles árið 2028? Þá er nú opið fyrir skráningu í annan útdrátt aðgöngumiða og rennur fresturinn út 22. júlí.
Þeir sem fá úthlutaðan kauptíma geta keypt miða dagana 10.–20. ágúst 2026.

✅ Þeir sem skráðu sig í fyrsta útdráttinn en fengu ekki kauptíma fara sjálfkrafa áfram í annan útdrátt og þurfa því ekki að skrá sig aftur.

Nánari upplýsingar og leiðbeiningar má finna í frétt á vef ÍSÍ 👇

🔗

Frestur til að skrá sig í annan útdrátt aðgöngumiða á Ólympíuleikana í Los Angeles 2028 rennur út 22. júlí. Þátttakendur sem fá úthlutaðan kauptíma geta keypt miða dagana 10.–20. ágúst.

07/07/2026

💙 Keppnisandi eins og hann gerist bestur einkenndi Reykjavíkurþrautina sem Þríþrautasamband Íslands og Ægir3 stóðu að í hjarta Reykjavíkur um helgina. Umgjörð og aðstæður voru til fyrirmyndar og framlag keppenda og samstaða til mikillar fyrirmyndar.
Mótið markaði jafnframt tímamót en þetta var í fyrsta sinn sem Íslandsmótið í ólympískri þríþraut fór fram í Reykjavík og keppt var á lokaðri hjólabraut um götur miðborgarinnar.

🎥 RÚV fjallaði um mótið í skemmtilegri frétt sem fangar vel stemninguna á deginum. ⬇️💙

Langar þig að vera sjálfboðaliði á Evrópuleikum TAFISA? 🙌European Sport for All Games 2026 fara fram í Limerick á Írland...
06/07/2026

Langar þig að vera sjálfboðaliði á Evrópuleikum TAFISA? 🙌

European Sport for All Games 2026 fara fram í Limerick á Írlandi dagana 6.–11. ágúst 2026 og nú er leitað að sjálfboðaliðum til starfa á leikunum.

European Sport for All Games eru íþróttaleikar fyrir alla þar sem keppt er í hefðbundnum íþróttum. Auk þess er lögð áhersla á menningu og samfélag víðs vegar að úr Evrópu.

📍 Limerick, Írland
📅 6.–11. ágúst 2026
📝 Umsóknarfrestur: 19. júlí 2026

Athugið að um er að ræða ólaunuð sjálfboðaliðastörf. Sjálfboðaliðar bera sjálfir ábyrgð á ferðalagi og gistingu, en fá gjafakort sem stendur straum af hádegismat alla daga viðburðarins.

Skipulagsnefndin mun hafa samband við umsækjendur eftir að umsóknarfresti lýkur og staðfesta hlutverk og verkefni. Mest þörf er á aðstoð laugardag og sunnudag, sem eru annamestu dagar leikanna.

👉 Skráning fer fram hér: https://limericksportforall.ie/volunteer/

📌 Á meðfylgjandi mynd má finna frekari upplýsingar um dagskrá leikana og sjálfboðaliðastörfin.

🏃‍♀️🎉 Hátíðarstemning í SuðursveitNýr frjálsíþróttavöllur var vígður við Hrollaugsstaði í Suðursveit um helgina samhliða...
28/06/2026

🏃‍♀️🎉 Hátíðarstemning í Suðursveit
Nýr frjálsíþróttavöllur var vígður við Hrollaugsstaði í Suðursveit um helgina samhliða fjölbreyttu frjálsíþróttamóti þar sem keppendur víðs vegar að af landinu komu saman og tóku þátt í fjölmörgum greinum.

Við vígsluna flutti Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, ávarp og rifjaði meðal annars upp að Ungmennafélagið Vísir og ÍSÍ voru bæði stofnuð árið 1912. Hann lagði áherslu á mikilvægi góðrar íþróttaaðstöðu fyrir börn og ungmenni og nefndi að á vellinum kynnu að vaxa úr grasi afreksíþróttafólk og jafnvel ólympíufarar.

Það var því vel við hæfi að nýtt Íslandsmet var sett í 60 metra hlaupi kvenna utanhúss á mótinu. Jafnframt náðist besti tími sem skráður hefur verið í 60 metra grindahlaupi karla utanhúss.

Þórey Edda Elísdóttir, Hafsteinn Pálsson og Ragnheiður Ríkharðsdóttir úr framkvæmdastjórn ÍSÍ voru einnig meðal gesta, ásamt öðru starfsfólki ÍSÍ sem tók þátt í deginum.

👉 Lesa má nánar um vígslu vallarins og frjálsíþróttamótið hér: https://www.isi.is/um-isi/frettir/nyr-frjalsithrottavollur-vigdur-i-sudursveit

26/06/2026

🏅 Ólympíudagur við Vísisvöll í Suðursveit ☀️
Mikil gleði og góð þátttaka einkenndu Ólympíudaginn við Vísisvöll í Suðursveit í dag. Fjöldi barna og ungmenna frá Höfn og nærsveitum tók þátt í fjölbreyttri dagskrá þar sem gleðin var í fyrirrúmi.

Þátttakendur fengu að spreyta sig í fjölmörgum greinum, meðal annars fótbolta, körfubolta, ýmsum kastgreinum, borðtennis, pickleball, spikeball, hlaupum og fleiri skemmtilegum þrautum. Stemningin var frábær og greinilegt að dagskráin höfðaði til þátttakenda á öllum aldri.

Starfsfólk ÍSÍ stýrði leikjum og þrautum dagsins ásamt Jóhönnu Írisi, svæðisfulltrúa á Austurlandi, Björgu Gunnarsdóttur frá FRÍ og Bjarna Malmquist Jónssyni, formanni Ungmennafélagsins Vísis.

KSÍ og KKÍ gáfu Ungmennafélaginu Vísi einnig fjölda fótbolta og körfubolta sem eiga eftir að nýtast vel í starfinu. ⚽🏀

Sólin lét sjá sig allan daginn og þótt vindurinn væri hressilegur kom það ekki að sök. Aðstaðan við Vísisvöll reyndist afar vel og lofar góðu fyrir áframhaldandi íþróttastarf á svæðinu. 💙

Address

Engjavegur 6
Reykjavík
104

Opening Hours

Monday 08:30 - 16:30
Tuesday 08:30 - 16:30
Wednesday 08:30 - 16:30
Thursday 08:30 - 16:30
Friday 08:30 - 16:00

Telephone

+3545144000

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands - ÍSÍ posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share