18/04/2024
Siglunes – starfsemi sumarið 2024
Skráning hefst 23. apríl kl 10:00 á www.fristund.is
Námskeiðið heitir: Siglingar róður ævintýri.
Markmið námskeiðs: Að þátttakendur læri grunnatriði siglinga og róðurs.
Um námskeiðið: Spennandi og skemmtilegt námskeið þar sem þátttakendur læra tökin á mismunandi bátum, læra um öryggisatriði og notkun björgunarvesta. Námskeiðið er hlaðið spennu og ævintýrum. Þátttakendur munu takast á við nýjar og spennandi áskoranir á hverjum degi. Námskeiðið er tilvalið fyrir þá sem vilja taka þátt í starfsemi Vatnasportklúbbs Siglunes.
Bátar: Siglt er á seglbátum, róið á kayökum og árabátum og margt fleira skemmtilegt prófað.
Klæðnaður: Þátttakendur þurfa að vera klæddir í hlý og skjólgóð föt og hafa meðferðis aukaföt og nesti. Hægt er að hita mat í örbylgjuofni og grilla samlokur.
Námskeiðin eru 3 klukkutímar á dag og eru námskeiðin haldin fyrir hádegi kl. 9:00 – 12:00 og eftir hádegi kl. 13:00 – 16:00.
Námskeiðin eru 5 dagar frá mánudegi - föstudags.
Dagssetningar: 10. – 14. júní, 18. – 21. júní*, 24. – 28. júní, 1. – 5. júlí, 8. – 12. júlí, 15. – 19. júlí, 22. – 26. júlí, 29. júlí – 2. ágúst.
Verð kr. 11.400
*4 dagar verð kr. 9.080
Öryggisatriði: Á námskeiðinu læra þátttakendur hvernig á að velja sér björgunarvesti og klæðast því á réttan hátt.
Allir þátttakendur verða að klæðast björgunarvesti út á sjó, á bryggjunni og í heita pottinum.
Þátttakendur í starfi Siglunes eru alltaf undir eftirliti starfsfólks.
Gæslubátar fylgjast með allri starfsemi á sjó og eru alltaf til taks.
Allt starfsfólk Siglunes fer á skyndihjálparnámskeið og öryggis- og fræðslunámskeið Siglunes samtals 40 klst. á hverju ári.
Skráning á www.fristund.is
Vatnasportklúbbur Siglunes sumarið 2024
Skráning hefst 23. apríl kl 10:00 á www.fristund.is
Vatnasportklúbbur Siglunes er fyrir 10 – 16 ára. Fyrir börn fædd 2008 – 2014.
Vatnasportklúbburinn er fyrir þá sem hafa farið á námskeið, eða eru vanir að sigla og róa, og/eða hafa mikinn áhuga á að kynnast vatnasporti og ævintýrum.
Vinsamlega athugið að vatnasportklúbburinn er ekki siglinga- og róðranámskeið. Þetta er frábær klúbbur fyrir þá sem vilja halda áfram eftir námskeiðið að sigla og róa og kynnast fleiri hliðum þess sem ævintýraheimur vatnaíþrótta býður uppá. Klúbbfélagar ákveða í samráði við starfsfólk hvaða bátum þeir sigla eða róa hverju sinni.
Bátar: Klúbbfélagar hafa daglega aðgang að seglbátum, kayökum, kanóum, róðrabrettum (SUP) og árabátum.
Fatnaður: Klúbbfélagar þurfa að vera klæddir hlýjum og skjólgóðum fötum og hafa aukaföt og handklæði meðferðis.
Klúbbfélagar eru undir eftirliti starfsfólks Siglunes. Starfsfólk Siglunes sér um að leiðbeina og gefa góðar ráðleggingar svo að allir geti bætt færni sína.
Mælt er með að hafa nesti með sér. Hægt er að hita mat í örbylgjuofni og grilla samlokur.
Klúbbastarfið er á tímabilinu 10. júní – 2. ágúst.
Opið mánudaga til föstudaga kl. 13:00 – 17:00.
Eingöngu er hægt að kaupa heilar vikur:
Dagssetningar: 10. – 14. júní, 18. – 21. júní*, 24. – 28. júní, 1. – 5. júlí, 8. – 12. júlí, 15. – 19. júlí, 22. – 26. júlí, 29. júlí – 2. ágúst.
Verð kr. 8.130
*4 dagar kr. 6.550
Öryggisatriði: Allir þátttakendur í klúbbastarfinu verða að klæðast björgunarvesti út á sjó, á bryggjunni og í heita pottinum.
Þátttakendur í klúbbastarfinu mega ekki fara út fyrir siglingasvæði Sigluness sem er merkt sérstaklega með baujum.
Þátttakendur í starfi Siglunes eru alltaf undir eftirliti starfsfólks.
Gæslubátar fylgjast með allri starfsemi á sjó og eru alltaf til taks.
Allt starfsfólk Siglunes fer á skyndihjálparnámskeið og öryggis- og fræðslunámskeið Siglunes samtals 40 klst. á hverju ári.
Skráning á www.fristund.is.
Siglunes – starfsemi sumarið 2024
Skráning hefst 23. apríl kl 10:00 á www.fristund.is
Skráning á www.fristund.is.
Upplýsingavefur um frístundastarf í Reykjavík