29/04/2026
Hlauptu út í sumarið með Val skokk!
Langar þig að komast í betra form, takast á við ný markmið og njóta þess að hlaupa í góðum félagsskap? Valur skokk býður upp á tvö frábær hlaupanámskeið í sumar – fyrir byrjendur og lengra komna!
Byrjendanámskeið – Úr sófanum að 5 km
Upphafsdagur: 12. maí
Lengd: 6 vikur
Verð: 10.000 kr.
Fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu hlaupaskref eða eru að byrja aftur eftir hlé. Við æfum saman með 5 km í Miðnæturhlaupinu, 25 júní, að markmiði! Skemmtilegar æfingar, hvatning og stuðningur í hverju skrefi!
Byrjendanámskeiðið fer fram á þriðjudögum og fimmtudögum klukkan 17:00 og laugardögum kl 9:00 lagt af stað frá Valsheimilinu Hlíðarenda.
Sumarhlaupanámskeið – Taktu 10 eða 21 km í Reykjavíkurmaraþoninu!
Upphafsdagur: 2. júní
Lengd: 12 vikur
Verð: 15.000 kr.
Þetta námskeið er fyrir hlaupara sem stefna á 10 km eða hálfmaraþon í Reykjavíkurmaraþoninu 22 ágúst. Við vinnum markvisst að því að byggja upp úthald, styrk og hlaupatækni, án þess að gleyma því að hafa það gaman.
Sumarnámskeiðið fer fram á þriðjudögum og fimmtudögum klukkan 17:30 og laugardögum kl 9:00 lagt af stað frá Valsheimilinu
Það er hægt að taka bæði námskeiðin fyrir 22.000
Valur skokk – skemmtilegra saman!