Andartak jóga- og heilsustöð

Andartak jóga- og heilsustöð Guðrún Arnalds stofnaði Andartak árið 2010. Andartak býður upp á fjölbreytta möguleika og starf okkar snýst um hvatningu til að grípa augnablikið og njóta þess.

Ég heiti Guðrún og hef starfað við heildræna heilsuráðgjöf í um 30 ár auk þess að kenna jóga og leiðir til að styrkja tengslin milli hugar og líkama.
Ég trúi því að likami okkar kunni þá list að sigla í gegn um breytingar betur en við getum ímyndað okkur. Heimasíðan okkar: www.andartak.is

Andartak er rekið af Guðrúnu Arnalds.

Ég býð upp á námskeið fyrir konur á breytingaskeiði, námskeið í jóga, einkatíma í heildrænni heilsuráðgjöf, markþjálfun og fókusing. Andartak leggur áherslu á andrými og að njóta andartaksins. Í Andartaki kennum við meðal annars Kundalini jóga sem er mjög fljótvirkt, eflandi og umbreytandi form af jóga og hentar sérstaklega vel til að vinna gegn streitu og álagi. Kundalini jóga kemur jafnvægi á innkirtlakerfi, taugakerfi og ónæmiskerfi auk þess að styrkja hugann og líkama og kenna okkur að eiga nærandi samband við okkar innri mann og sálina okkar. Við virkjum andrými okkur og gerum lífið í senn innihaldsríkara og skemmtilegra. Í leiðinni styrkjum líkamann og aukum vellíðan.

Hvað viltu vökva í þínum garði? Vorið sem nýtt upphafÞað er ekki að ástæðulausu að vorið var í eldri samfélögum talið ve...
25/05/2026

Hvað viltu vökva í þínum garði?

Vorið sem nýtt upphaf
Það er ekki að ástæðulausu að vorið var í eldri samfélögum talið vera upphaf ársins. Ekki í janúar þegar jörðin er frosin og náttúran liggur í dvala, heldur núna þegar birtan fyllir skilningarvitin og nýir sprotar stinga höfðinu upp úr moldinni.

Og ef við horfum til baka þá er veturinn ekki endilega tími þar sem ekkert er að gerast. Heldur tími undirbúnings og ígrundunar. Tími til að hvíla sig og safna kröftum.

Við fluttum inn á nýtt heimili rétt fyrir jólin. Og í gær fékk ég heimsókn sem ég hafði lengi beðið eftir með eftirvæntingu: Garðyrkjumaður sem hjálpaði mér að endurskipuleggja garðinn. Ég nýt þess að vinna í garðinum en stundum hefur mig vantað stuðning við að sjá ...

Viska vetrarins og nýtt upphafNýtt ár gefur tilfinningu fyrir nýju upphafi. Hreinum snjó sem við getum þrammað út í og m...
03/01/2026

Viska vetrarins og nýtt upphaf

Nýtt ár gefur tilfinningu fyrir nýju upphafi. Hreinum snjó sem við getum þrammað út í og markað ný spor. Við setjum okkur markmið um að verða betri en á síðasta ári. Að skrifa nýja sögu á þetta auða blað sem nýtt ár færir okkur.

Nýtt ár er vissulega nýtt upphaf. En í náttúrunni er þetta nýja sem er að myndast enn undir yfirborðinu. Núna þegar sólin byrjar að hækka á lofti er náttúran að undirbúa sig að hefja nýtt líf að vori. Við búum okkur undir að vaxa, en vöxturinn er ennþá ósýnilegur.

Nýtt ár gefur tilfinningu fyrir nýju upphafi. Hreinum snjó sem við getum þrammað út í og markað ný spor. Við setjum okkur markmið um að verða betri en á síðasta ári. Að skrifa nýja sögu á þetta auða blað sem nýtt ár færir okkur. Nýársheit eiga það stundum til að sn....

07/12/2025

Svefntruflanir eru eitt algengasta og vanmetnasta einkenni BREYTINGASKEIÐSINS.

Flestar konur sofa verr – en tengja það ekki endilega við hormónabreytingar.

Svefnleysi hefur áhrif á allt:
🌿 orku
🌿 líðan
🌿 skapsveiflur
🌿 hitakóf
🌿 heilaþoku

Á þessu fría örnámskeiði færð þú
✨ yfirsýn yfir algengustu orsakir svefntruflana
✨ hvernig hormón, lífsstíll og blóðsykur trufla svefninn
✨ leiðir til að róa hormónakerfið og sofa betur
✨ skýringu á muninum á hitakófi og nætursvita – og hvað þú getur gert

ÉG HEITI GUÐRÚN

Ég styð konur í að hlusta á líkama sinn, styrkja innri visku og finna nýjan takt á breytingaskeiðinu.

Í yfir 30 ár hef ég starfað á sviði heildrænnar heilsu og leiðbeint konum í gegnum umbreytingar – með líkamsvitund, náttúrulegum aðferðum og djúpri virkri hlustun.

Þegar þú skilur hvað er að gerast í líkamanum, verður auðveldara að finna lausnir.

Skráðu þig hér og fáðu aðgang strax.
https://nam.andartak.is/shk

07/12/2025

SVEFNTRUFLANIR eru eitt algengasta og vanmetnasta einkenni breytingaskeiðsins

Flestar konur sofa verr – en tengja það ekki endilega við hormónabreytingar.

Svefnleysi hefur áhrif á allt:
🌿 orku
🌿 líðan
🌿 skapsveiflur
🌿 hitakóf
🌿 heilaþoku

Á þessu fría örnámskeiði færð þú
✨ yfirsýn yfir algengustu orsakir svefntruflana
✨ hvernig hormón, lífsstíll og blóðsykur trufla svefninn
✨ leiðir til að róa hormónakerfið og sofa betur
✨ skýringu á muninum á hitakófi og nætursvita – og hvað þú getur gert

ÉG HEITI GUÐRÚN

Ég styð konur í að hlusta á líkama sinn, styrkja innri visku og finna nýjan takt á breytingaskeiðinu.

Ég hef starfað í yfir 30 ár á sviði heildrænnar heilsu og leiðbeint konum í gegnum umbreytingar – með líkamsvitund, náttúrulegum aðferðum og djúpri virkri hlustun.

Þegar þú skilur hvað er að gerast í líkamanum, verður auðveldara að finna lausnir.

Skráðu þig hér og fáðu aðgang strax.
https://nam.andartak.is/shk

03/10/2025

Hefur þú tekið eftir að þær leiðir sem áður virkuðu duga ekki lengur?

Kannski hefurðu alltaf getað haldið bara áfram – sama hvað. Haldið áfram, klárað verkefnin, þraukað í gegn um þreytuna, staðið þig.

En nú vaknarðu þreytt, átt erfitt með að einbeita þér og ert lengi að ná þér eftir álag.

Það sem áður var sjálfsagt er orðið erfitt.

🌸 Þú gætir verið að hugsa:
„Af hverju er ég svona orkulaus?“
„Af hverju get ég ekki sofið eins og áður?“
„Er þetta það sem ég þarf að sætta mig við?“
Svarið er: Nei. Þú þarft ekki að sætta þig við þetta.

Það sem gerist á breytingaskeiði er að líkaminn breytist – hormónin, taugakerfið og jafnvægið sem áður hélt. Þess vegna duga gömlu aðferðirnar ekki lengur. En það eru til nýjar leiðir sem virka.

Ég heiti Guðrún og hef í yfir 30 ár kennt jóga, öndun og heildræna heilsu. Ég veit af eigin raun hvernig það er að glíma við þreytu og ofvirkan huga – og hvernig hægt að finna aftur jafnvægi.

👉 Ég býð þér að vera með á fríu 3 daga netnámskeiði: Bætt líðan á breytingaskeiði – Finndu þinn takt.
Dagana 7.–9. október kl. 17:30 á Zoom.

Þú lærir að:
🌿 Skilja hvað er að gerast í líkamanum og sjá einkennin í nýju ljósi.
🌿 Kynnast einföldum daglegum venjum sem róa hugann og gefa líkamanum öryggi.
🌿 Taka fyrstu skrefin í átt að meiri ró, orku og jafnvægi í daglegu lífi.

✨ Skráðu þig hér – og finndu takt sem styður þig í þessum nýja kafla lífsins. https://nam.andartak.is/baett-lidan

Address

Ránargötu 18
Reykjavík
101

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Andartak jóga- og heilsustöð posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share

Category