14/03/2026
Þjálfara kynning!!
Magnús Hrafn Einarsson 26 ára
1. Hvað ertu búin að vera lengi að þjálfa á Granda?
-Rúmt ár
2. Hvers vegna byrjaðir þú að þjálfa?
Ég hef mikinn áhuga á hreyfingu og elska athygli.
3. Æfðir þú einhverjar íþróttir sem barn?
Skylmingar (3 sæti Íslandsmeistaramóti 12 ára og yngri ) ég var samt lengst í frjálsum og þótti mjög efnilegur í 3 stökki.
4. Uppáhalds hreyfing?
Push press og front squat
5. Besta við Granda?
Að fá pepp frá öðrum í tímum. Það gerir mann miklu sterkari.
6. Hvenær finnst þér best að æfa?
Fyrir kl 10!
7. Eitthvað sem þú hefur lært og gæti gagnast öðrum?
Hvað maður kemst ótrúlega langt á jákvæðu og opnu hugarfari, svo hef ég líka lært Esperanto en það gagnast sennilega engum.
8. Fyndnasti starfsmaður?
Tiktok queen Elín.
9. Uppáhalds matur?
Saltkjöt.
10. Uppáhalds staður sem þú hefur heimsótt ?
Hornstrandir.
11. Ertu oftast sein/n eða of snemma?
Ég á það til að nýta mér akademíska korterið
12. Hvaða 3 hluti myndir þú taka á eyðieyju?
Snúð með hörðu súkkulaði, Kaffi og Garmin úrið mitt.