15/06/2026
„Við erum á leið að sækja bikar!“ 🏆
Þessar geggjuðu vinkonur komu til okkar á föstudaginn áður en þær héldu á Kappahl mótið á Selfossi í bongó blíðu ☀️⚽
Jóhanna og Sóldís spila í 6. flokki kvenna hjá Breiðabliki og tilkynntu okkur það að þær væru á leið yfir heiðina að sækja bikar💪 Aðeins 5 tímum seinna fengum við svo senda mynd frá þeim stöllum þar sem þær stóðu við stóru orðin! Frábærar!
Með þeim á myndinni er Emma, systir Sóldísar, sem ætlaði að fara með þeim og hvetja þær áfram.
Það var ekkert vit í öðru en að leyfa þessum snillingum að velja sér plakat frá Heimavellinum 🎁✨ Þær ákváðu allar að velja sér plakat af Alexöndru Jóhannsdóttur, leikmanni íslenska landsliðsins og Kristianstad í Svíþjóð.
Plakatið er með hvatningarorðunum frá Alexöndru:
„Ég get. Ég ætla. Ég skal.“ ...og það var á leiðinni beint upp á vegg hjá þessum fótboltahetjum! ⚽️⭐️
Við höfum engar áhyggjur af framtíðinni þegar þessar taka yfir leikinn 🚀🔥
Við höldum með ykkur alla leið.