08/12/2025
– Umsóknir um endurgreiðslur nú hafnar –
Kæru kylfingar og viðskiptavinir Eagle golfferða,
Við viljum byrja á að þakka ykkur fyrir þá miklu þolinmæði og skilning sem þið hafið sýnt á meðan við höfum unnið að því að leysa úr þeim flækjum sem sköpuðust eftir fall Play Air og þær miklu röskun á starfsemi okkar sem því fylgdi. Ferlið hefur verið bæði umfangsmikið og tímafrekt, og okkur þykir innilega leitt að uppgjör mála hafi dregist svona á langinn.
Nú getum við þó loks komið með mikilvægar og jákvæðar fréttir:
Viðskiptavinir geta nú sótt um endurgreiðslur úr Ferðatryggingasjóði.
Eftir töluverða vinnu við að ganga frá öllum nauðsynlegum upplýsingum, skjölum og staðfestingum saman við Ferðamálastofu og Ferðatryggingasjóð, liggur nú fyrir formleg heimild fyrir farþega til að leggja fram kröfur um endurgreiðslu vegna þeirra ferða sem aflýst var.
Við biðjumst velvirðingar á að þessi niðurstaða hafi tekið lengri tíma en við vonuðum, en við vildum tryggja að allt væri rétt framkvæmt frá upphafi og að málið leystist farsællega fyrir alla viðskiptavini, starfsmenn, viðskipta- og samstarfsaðila svo allir gangi sáttir frá borði.
Hvernig fer umsóknarferlið fram?
* Ferðatryggingasjóður tekur nú við umsóknum farþega vegna ferða sem ekki var hægt að endurgreiða beint af okkar hálfu.
* Nánari leiðbeiningar um framhald ferlisins, hvaða gögn þarf að skila og hvar sótt er um, má finna á vef Ferðamálastofu.
* Ef upp koma spurningar eða þörf á staðfestingum frá okkar hálfu, erum við reiðubúin að aðstoða eftir bestu getu.
Við skiljum vel að þessi staða hefur valdið mörgum vonbrigðum og óvissu. Markmið okkar frá fyrsta degi hefur verið að tryggja rétt farþega og vinna náið með viðeigandi aðilum að því að koma öllum málum í réttan og tryggan farveg.
Við erum þakklát fyrir þann skilning og stuðning sem margir hafa sýnt og höldum áfram að vera til staðar fyrir ykkur meðan endanlega er gengið frá öllum málum.
Með virðingu og vinsemd,
Árni Freyr Hallgrímsson