29/04/2025
Aftur líða tvær vikur hjá mér á milli pistla ... en ... 🙂
Síðasta þriðjudag var fámennt og góðmennt hjá okkur, það var ennþá páskafrí í huga margra, í dag hins vegar fundum við einhvern vegin fyrir því að sumarið væri alveg á næsta leiti.
En við fengum bæði síðast og í dag góðar heimsóknir fólks sem var að koma með ýmis dýrindis í pokum 🙂 Garn, efni ... þúsund þakkir. Einhver hafði komið og fengið að skilja eftir hjá þeim í Fíladelfíu en okkur finnst svo mikils virði að sjá fólkið sem er að koma með til okkar og bjóða amk í kaffibolla sem margir sem betur fer þiggja.
Í dag gerðum við mikið grín að kónum! Flestir Íslendingar vita um þá skilgreiningu á kónum að það þýði misyndismenn en ekki allir vita að kónar eru líka sívalningar sem mjókka í efri endann og eru þétt vafðir af garni. Fyrir nokkrum vikum fengum við s.s. æðislega gjöf, einhver slatti kóna! Í dag voru tvær sem komu með græjur til að vinda upp af kónunum og í viðráðanlega hnykla. En kappið var þvílíkt í vindingunni að borðið lék á reiðiskjálfti og það var öldugangur í vatnsflösku 🙂
Annað gerðist í dag alveg hreint ótrúlegt. Í fyrra fengum við ansi mikið af lopa sem var prufukeyrsla og hafði eitthvað ekki alveg verið eins góð og áætlanir stóðu til en algjörlega vel nothæfur. Það var ein af konunum okkar sem kom til okkar og spurði hvort við ættum einhvern lopa sem hún gæti fengið til að senda vinkonu sinni í Úkraínu sem prjónaði fyrir hermenn. Við héldum það og hún fékk eins mikinn lopa og hún g*t troðið í tösku sem hún ætlaði með. Vinkona hennar hefur í tvígang sent okkur myndir af afrakstrinum hennar. Í dag kom til okkar kona og sagði að þetta er handa ykkur frá henni. Þá var það ótrúlega fallegur útsaumur. Hann er svo smár að það er undrun að hún hafi séð til að sauma og bakhliðin ekki síður fögur en framhliðin. Myndin er hér í myndasúpunni ásamt mynd frá innrömunarþjónustu sem við ákváðum að væri besta aðferðin til að varðveita þessa gríðarlega ótrúlega fallegu mynd. Við ákváðum að við myndum bara leggja í púkk fyrir þessu sem er eins gott því verðmiðinn verður yfir 20.000 !!!! En sama er. Svona falleg mynd á allt fallegt skilið til að vera haldið til haga á sem bestan hátt sem mögulegt er. Þið njótið bara myndanna og við höldum áfram að vinda upp kóna í næstu viku - ekki s.s. misyndismennina 🙂