02/07/2025
The End
Þetta skemmtilega og lærdómsríka ævintýri er búið
Ég hef mikinn metnað og ákvað fyrir fjórum árum að opna gym í bílakjallaranum í Höfðatorgi. Það var mögulega aðeins of hátt markmið en lærdómurinn mikill.
Þetta hefur verið skemmtilegt ferðalag og ég er glaður að hafa kynnst öllum sem mættu á æfingarnar mínar. Vonandi náði ég að hafa góð áhrif á ykkur sem munu nýtast ykkur áfram á ykkar heilsuferðalagi. Nú hefur annar aðili tekið við þessu glæsilega rými sem við gerðum að okkar. Óska þeim velfarnaðar og vonandi ná þau að þjónusta ykkur vel🫶🏼
Við eigum vonandi eftir að hittast í framtíðinni 🫡