31/05/2024
Tennisklúbbur Þróttar 2024
I Tennisklúbbur Þróttar
Tennisdeildin starfrækir tennisklúbb TÞ. Meðlimir eru félagar tennisdeildar TÞ og aðrir sem stjórn TÞ samþykkir og greitt hafa árgjald til TÞ.
Almennt árgjald Kr. 12.000
Fjölskyldugjald (Maki og börn innan 18 ára) Kr. 15.000
Unglingagjald (16 – 18 ára) Kr. 4.000
Þeir klúbbfélagar sem skrá sig á a.m.k. eitt tennisnámskeið á vegum deildarinnar fá helmingsafslátt af klúbbgjaldi.
II Vallarskilmálar.
Klúbbfélagar, sem greitt hafa árgjald, fá velli samkvæmt eftirfarandi skilmálum án greiðslu vallargjalds:
1. Völlur sé ekki frátekinn fyrir tennisnámskeið, klúbbtíma, mót eða er þegar í notkun af öðrum klúbbfélaga.
2. Þeim sem skráð sig hafa í klúbbinn og greitt hafa árgjald er heimilt á öðrum tímum að spila á tennisvöllunum félagsins.
3. Sýnum tillitssemi og hleypum öðrum að ef með þarf þegar við höfum leikið í klukkustund.
Þeir sem ekki eru í klúbbnum geta fengið völl með þessum skilmálum.
1. Greiða vallarleigu kr. 2.500 pr. klst. í félagshúsi Þróttar (s. 580-5900) áður en leikur hefst að því gefnu að völlur sé ekki í notkun eða frátekinn.
2. Börn og unglingar 15 ára og yngri, sem ekki eru klúbbfélagar, geta spilað endurgjaldslaust á völlunum en geta ekki pantað tíma og verða að víkja af velli fyrir klúbbfélögum og þeim sem kaupa staka tíma.
III Fastir tímar.
Almennt eru vellirnir fráteknir á neðangreindum tímum;
• Námskeið á mánudögum og miðvikudögum kl. 16:30-20:15 og á föstudögum kl. 17:00-18:00 (sjá auglýsingu um námskeið á vef Þróttar)
• Klúbbtímar opnir öllum félögum á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17:00 – 19:00. Nánari upplýsingar um fasta tíma eru kynntar félögum á póstlista.
IV Greiðslur
Föst klúbbgjöld má greiða í banka eða heimabanka á reikning tennisdeildar:
kt: 470678-0119, reikn: 0117-26-15758.
Staka tíma skal greiða hjá starfsmönnum í félagshúsinu.
V Nánari upplýsingar.
Nýjustu útgáfu af þessu skjali er að finna á vef félagsins, trottur.is, Loks má hafa samband við tengiliði tennisdeildarinnar, Indriða H. Þorláksson, [email protected] eða Ævar Ísberg, [email protected].