19/05/2026
Eitthvað sem engin Enduro unnandi ætti að láta fram hjá sér fara aðeins 4 pláss eftir.
Aðeins 4 pláss eftir: Meistaranámskeið með Alex Salvini! 🏁🇮🇹
Það styttist í þennan skemmtilega viðburð. Ítalski heimsmeistarinn Alex Salvini mætir í Bolöldu miðvikudaginn 27. maí og nú eru einungis 4 pláss laus.
Þetta er einstakt tækifæri fyrir ökumenn sem vilja fínpússa tæknina fyrir 5 tíma keppnina á Flúðum undir handleiðslu eins færasta manns heims.
Hvers má vænta í Bolöldu?
Persónuleg leiðsögn: Alex gefur sig allan í hópinn og veitir hverjum og einum ráðgjöf um aksturslag, línuval og líkamsbeitingu.
Sérhæfð dekkjaráðgjöf: Sérfræðingar Plews Tyres aðstoða þig við að finna rétta dekkja- og músauppsetningu sem hámarkar gripið á Flúðum.
Prufu keyrsla á Fantic endurohjólum: Þú færð að kynnast og prófa frábær hjól frá Fantic (XE 300, XEF 310 og XEF 450).
Upplýsingar:
📍 Staður: Bolalda
📅 Dagsetning: Miðvikudagur 27. maí kl. 18:00 – 21:00+
💰 Námskeiðsgjald: 18.000 kr. (Léttar veitingar innifaldar)
Tryggðu þér eitt af síðustu fjórum plássunum og mættu með forskot á ráslínuna á Flúðum!
Skráning og nánari upplýsingar: á [email protected]