01/03/2025
Með þungum hug kveðjum við okkar ástkæra vin 💔
Teddy, sem kvaddi þennan heim 28. febrúar 2025, tæplega 14 ára gamall. Á stundu sem þessari er undirstrikað hversu mikil merking er á bak við orðin að hundurinn er besti vinur mannsins. Að kveðja hundinn minn er talsvert erfiðara en ég hafði getað ímyndað mér. Teddy var einstakur hundur, skemmtilegur persónuleiki sem fékk mann reglulega til að brosa. Daglegu göngutúrarnir okkar sem og fallegu hvolpaaugun að sníkja mat hjá okkur við matarborðið munu lifa í minningunni um ókomna tíð.
Teddy fæddist í Malasíu árið 2011 og flutti til Noregs með fyrri eigendum sínum. Hann kom inn í líf okkar Írisar í janúar 2013 þegar við bjuggum í Stavanger. Íris mín vildi mikið fá hund og fann hún Teddy okkar sem flutti með okkur til Íslands sumarið sama ár. Þegar Júlíus fæddist tók Teddy hlutverki sínu sem eldri bróðir alvarlega. Hann passaði upp á litla bróður sinn frá fyrsta degi, sat við hlið barnastólsins eða lagðist hliðina á honum á gólfinu.
Teddy var ekki aðeins fjölskyldumeðlimur, heldur einnig ómissandi hluti af Toppþjálfun líkamsræktarstöðinni. Það voru forréttindi að geta tekið hann með mér daglega í vinnuna. Hann fékk að njóta sín í botn enda mikil félagsvera og heilsaði alltaf upp á viðskiptavinina. Innan veggja Toppþjálfunar var hann kallaður aðstoðarþjálfarinn og hressti upp á viðskiptavini eftir erfiðar æfingar.
Í júlí 2024 kom ný viðbót í fjölskylduna þegar kötturinn Leo flutti inn á heimilið. Teddy og Leo urðu miklir vinir og nánast óaðskiljanlegir allt til loka.
Það var þriðjudaginn 25. febrúar þegar rann upp fyrir mér sá raunveruleiki að ég myndi þurfa að kveðja minn besta vin. Heilsubrestirnir voru farnir að leika hann grátt og taka sinn toll á heilsu hans. Ég gerði það sem ég g*t til að nýta daginn með honum fara í langan göngutúr og njóta síðustu augnablikanna með honum.
Við erum óendanlega þakklát fyrir öll árin og stundirnar sem við áttum saman í gegnum þessi 12 ár.
Teddy, þú munt alltaf eiga sérstakan stað í hjörtum okkar. Hvíl í friði elsku vinur 🕊️