Ungbarnasund Reykjanesbæ

Ungbarnasund Reykjanesbæ Skráning hér: https://www.abler.io/shop/thjalfunivatni Ungbarnasund er fyrir börn á aldrinum 3 mánaða til 4 ára. Námskeiðin eru í 8 vikur og er hver tími 40 mín.

Tímarnir eru á laugardags- eða sunnudagsmorgnum í sundlaug Akurskóla í Innri Njarðvík. Námskeiðið kostar 14.500 kr. Innifalið í því er ofan í laugina fyrir báða foreldra. Hóparnir skiptast eins og hér segir:

Sundskóli 2-4 ára kl. 9:15
Sundskóli 1-2 ára kl. 10:00
Byrjendahópur (2-12 mánaða) kl. 10:45
Framhaldshópur (5-15 mánaða) kl. 11:30
Byrjendahópur (2-12 mánaða) kl. 12:15

Tilgangur með ungbar

nasundi er að styrkja tengsl milli foreldra og barns, veita börnum markvissa örvun og aðlögun í vatni og auka þannig líkamlegan, félagslegan og tilfinningalegan þroska barnsins.

Þeir sem hafa áhuga á að skrá sig geta fyllt út skráningaform sem er efst á facebooksíðunni eða hér;
https://docs.google.com/forms/d/19l17jM0J4Kx3vft288wB1kS_6-acBldo2vkUHszyz6k/viewform
Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið [email protected] eða hringja í síma 693-2288. Jóhanna Ingvarsdóttir,
íþróttafræðingur og ungbarnasundskennari

25/06/2026

Sjáumst í sundlauginni í dag 🩷🩵

Framhaldshópur kl. 11:15
Byrjendahópur kl. 12:00

👉 Skráning fyrir næstu námskeið sem hefjast eftir sumarfríi koma inn í dag

Besta Kveðja. Jóhanna

23/06/2026

Sjáumst í sundlauginni í dag 🩷🩵

Framhaldshópur kl. 11:15
Byrjendahópur kl. 12:00

Kveðja. Jóhanna

11/06/2026

Sjáumst í sundlauginni í dag 🩷🩵

Framhaldshópur kl. 11:15
Byrjendahópur kl. 12:00

Ég hitti byrjendahóp í anddyri íþróttamiðstöðvar Akurskóli 5 mínútum áður en tíminn hefst og útskýri hvernig klefamálin ganga best fyrir sig.

Kveðja. Jóhanna

Heil og sæl,Ég minni á að námskeiðin hefjast á fimmtudaginn 11. júní.Æfingaáætlun hefur verið birt á Abler.io appinu end...
10/06/2026

Heil og sæl,

Ég minni á að námskeiðin hefjast á fimmtudaginn 11. júní.

Æfingaáætlun hefur verið birt á Abler.io appinu endilega sækið það til að fylgjast með.
Gott er að tilkynna mætingu eða forföll í appinu áður en tíminn hefst. (Mæti/mæti ekki)

Kennsla fer fram í Íþróttamiðstöð Akurskóla, Tjarnabraut 5, 260 Innri Njarðvík.

Foreldri/Foreldrar eða aðrir fullorðnir eru með barninu ofan í lauginni meðan á tímanum stendur.

Ég mun taka á móti byrjendahópum fyrsta daginn í anddyri íþróttahúss Akurskóla 5 mínútum áður en tíminn hefst og útskýra hvernig klefamálin ganga best fyrir sig.

Aðra hópa hitti ég á sundlaugarbakkanum.

Hvað þarf að hafa með:
Gott er að hafa barnið í sundfötum sem halda vel að lærum þess og/eða sundbleyju (þær fást m.a. í Nettó og Krónunni, Krambúð ofl).
Ég mæli með því að hafa með næringu fyrir barnið eftir sundið.
Einnig þarf að hafa með sundföt fyrir þau sem ætla með barninu ofan í laugina.

Verðmæti:
Geymið ekki verðmæti í klefum, þar sem ekki eru læstir skápar. Hægt er að geyma verðmæti á sundlaugarbakka, þar sem þau eru í augnsýn, hjá starfsmanni sundlaugar eða úti í bíl.

Ættingjar og systkini:
Til þess að námskeiðið gangi vel fyrir sig er ekki er æskilegt að systkini yngri en 9 ára komi með ofan í laugina en þau mega að sjálfsögðu horfa á með forráðamanni.
Ættingjar og vinir eru alltaf velkomnir að horfa á sundtíma, sæti eru við laugina.

Myndatökur:
Foreldrum og aðstandendum er velkomið að taka myndir í sundtímunum, bæði ofan í lauginni og af bakka og með þátttöku á námskeiðinu samþykkið þið myndatökur í sundtímum.
Kafmyndataka með ljósmyndara er í boði við lok námskeiðs, það er þó mælt með því að börn ljúki a.m.k. tveimur námskeiðum áður en þau fara í kafmyndatökuna. Verð fyrir hana er 8.000 kr. Nánar auglýst síðar.

Ef þið hafið einhverjar spurningar, ekki hika við að hafa samband

Hlakka til að sjá ykkur og krílin!

Besta kveðja, Jóhanna

** FJÖRFISKAR -  SUMARNÁMSKEIÐ **                    Hæhæ, eru einhverjir sem hefðu áhuga á að koma með barn í Fjörfiska...
08/06/2026

** FJÖRFISKAR - SUMARNÁMSKEIÐ **

Hæhæ, eru einhverjir sem hefðu áhuga á að koma með barn í Fjörfiskahóp fyrir 8 mánaða til 3ja ára í sumar, frá 11.-30. Júní?

Ég er að velta því fyrir mér, þar sem tímarnir eru þriðjudaga og fimmtudaga kl. 12:45 að einhver börn séu kannski hjá dagmömmu eða í leikskóla 🥰

EF ÞAÐ ERU EINHVEJIR SEM HAFA ÀHUGA AÐ KOMA MEÐ BARN Í FJÖRFISKA Í SUMAR ÞÁ MEGIÐ ÞIÐ KVITTA NAFN BARNS HÉR UNDIR EÐ SENDA MÉR Í SKILABOÐUM.
*Ef það eru 6 börn eða fleiri sem hafa áhuga þá verðum við með hóp 😁

Framhaldshópurinn sem er kl. 11:15 er fyrir börn á aldrinum 4-14 mánaða og það er velkomið að skrá barn í hann oftar en einu sinni ef það er áhugi fyrir því.

https://www.abler.io/shop/thjalfunivatni/1

Bestu kveðjur
Jóhanna

**SUMARNÁMSKEIÐ - UNGBARNASUND**  Námskeiðin eru frá 11.-30. Júní Kennt er þriðjudaga og fimmtudaga í yndislegri sundlau...
28/05/2026

**SUMARNÁMSKEIÐ - UNGBARNASUND**

Námskeiðin eru frá 11.-30. Júní
Kennt er þriðjudaga og fimmtudaga í yndislegri sundlaug Akurskóla.

Námskeiðin eru fyrir börn frá aldrinum 2-14 mánaða.

Eftirfarandi hópar eru í boði:
12:00 Byrjendahópur (2-10 mánaða)
11:15 Framhaldshópur (4-14 mánaða)
(*tímasetningar birtar með fyrirvara um breytingar)

*Íbúar Voga og Suðurnesjabæjar geta nýtt hvatastyrk.
*Flest stéttarfélög veita styrk fyrir námskeiðsgjaldi.

Skráning og nánari upplýsingar hér:
https://www.abler.io/shop/thjalfunivatni/1

💙 Sjáumst í sundlauginni á morgun í síðasta tíma námskeiðsins.🩷 Ég minni á að systkini eru velkomin með ofan í laugina. ...
22/05/2026

💙 Sjáumst í sundlauginni á morgun í síðasta tíma námskeiðsins.

🩷 Ég minni á að systkini eru velkomin með ofan í laugina.

10:00 Fjörfiskar
10:45 Byrjendahópur
11:30 Framhaldshópur
12:15 Byrjendahópur

Address

Tjarnabraut 5
Njarðvík
260

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Ungbarnasund Reykjanesbæ posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Ungbarnasund Reykjanesbæ:

Share