27/05/2026
Fyrir alla íþróttaiðkendur sem vija bæta styrk, hraða og snerpu.
Styrktar- hraða- og snerpuþjálfun með Chase og Aftureldingu
Hver æfing hefst á stuttri kynningu þar sem farið verður yfir markmið æfingarinnar: AF HVERJU við erum að gera æfingarnar, HVERNIG æfingar virka fyrir iðkendur og HVERJU þær eiga að skila.
Hver hópur verður takmarkaður við 12 iðkendur til að tryggja persónulega þjálfun fyrir alla.
Æfingar á þriðjudögum verða á hlaupabraut og velli, með áherslu á hraða og snerpu.
Æfingar á fimmtudögum fara fram í líkamsræktarsal, þar sem styrktaræfingar munu innihalda sprengikraft (stökk og köst) ásamt styrktaræfingum fyrir kvið og neðri hluta líkamans. Styrkur er lykilatriði fyrir hraða og þetta prógramm mun taka á báðu.
Allir þátttakendur fá styrktar- og hraðaáætlun til að fylgja heima (ein æfing af hvoru á milli tímanna). Íþróttafólk fær einnig ítarlega greiningu á hlaupa- og lyftitækni út frá myndbandsupptökum og faglegum búnaði (hraðahlið og stökkmottur).
Skráning á abler ➡ https://www.abler.io/shop/afturelding?birthYear=2014&program=Q2x1YlNlcnZpY2U6NTU4NjY=