Golfklúbbur Mosfellsbæjar

Golfklúbbur Mosfellsbæjar Golfklúbbur Mosfellsbæjar heldur úti tveimur vallarsvæðum. Hlíðavelli í Mosfellsbæ og Bakkakoti í Mosfellsdal. Verið velkomin í golf í Mosfellsbæ!

Bændaglíma GM 2026 - liðsskipan!Hér að neðan má sjá liðsskipan og hverjir eru í rauða liðinu og hverjir í bláa liðinu.Þa...
08/09/2026

Bændaglíma GM 2026 - liðsskipan!

Hér að neðan má sjá liðsskipan og hverjir eru í rauða liðinu og hverjir í bláa liðinu.

Það komust því miður ekki allir að sem vildu og það er biðlisti hjá okkur. Ef einhver dettur út þá er tekið inn af biðlista eftir forgjöf til þess að liðin haldist sem jöfnust.

Ef þið komist ekki á laugardaginn þá biðjum við ykkur um að láta okkur vita sem allra fyrst svo við getum þá sett inn nýjan spilara í ykkar stað.

Þau ykkar sem ekki komast að fá mótsgjaldið endurgreitt.

Hlökkum til að sjá ykkur á laugardaginn :)

08/09/2026

Í dag er hinn alþjóðlegi "Thank a Greenkeeper day", eða "hin alþjóðlegi þökkum vallastarfsmönnum dagurinn". Við eigum fullt af frábæru starfsfólki sem leggur sig fram og vaknar löngu áður en flestir fara á fætur til að tryggja að völlurinn sé sem bestur fyrir ykkur kylfinga. Þið kannski klappið á bakið á okkar fólki í dag og þökkum fyrir þeirra framlag.

Haustútsala í golfbúð GM 🍁
08/09/2026

Haustútsala í golfbúð GM 🍁

08/09/2026

Klósettið á 8 braut verður lokað fram yfir hádegi vegna vinnu við vökvunarkerfi á 7 braut.
Við biðjumst velvirðingar á þessum óþægindum.

Ásgeir, Elísa og Anna sigruðu á síðasta móti sumarsins í Golf14Síðasta Golf14 mót sumarsins fór fram um helgina og var l...
07/09/2026

Ásgeir, Elísa og Anna sigruðu á síðasta móti sumarsins í Golf14

Síðasta Golf14 mót sumarsins fór fram um helgina og var leikið á Urriðavelli og Ljúflingi. Frábærar veðuraðstæður voru báða keppnisdagana og stóðu okkar kylfingar sig mjög vel.

Í flokki 13-14 ára drengja sigraði Ásgeir Páll Baldursson eftir baráttu við Jón Ómar og Emil Darra. Ásgeir lék hringina tvo á 71-75 (+4) og sigraði með 1 höggi. Emil Darri Birgisson einnig úr GM endaði í þriðja sæti á +7 (72-77).

í flokki 13-14 ára stúlkna á Ljúflingi sigraði Anna Dís Strange en hún lék hringina tvo á 41-41. Eygló Rún Ingadóttir einnig í GM varð önnur tveimur höggum á eftir Önnu en hún lék á 46-38.

Kristófer Jens Sandholt endaði í öðru sæti í flokki 13-14 ára drengja á Ljúflingi en hann lék á 40-38.

Elísa Bríet Róbertsdóttir sigraði í 11-12 ára stúlknaflokki á Ljúflingi en hún lék á 37-39 og sigraði með 5 högga mun.

Í flokki 10 ára og yngri stúlkna á Ljúflingi var Hrafnhildur Rún Björnsdóttir í 2. sæti á 37-44, fjórum höggum á eftir 1. sætinu. Emma Björk Hrannarsdóttir varð í 5. sæti í sama flokki.

Edvard Aron Magnússon var í 3. sæti í flokki 10 ára og yngri drengja á Ljúflingi á 38-39 höggum.

Edvard Aron Magnússon var í 3. sæti í flokki 10 ára og yngri drengja á Ljúflingi á 38-39 höggum.

https://www.golfmos.is/asgeir-elisa-og-anna-sigruu-a-siasta-unglingamotinu

07/09/2026

Hlíðavöllur 2x 9 holur🍁
Við minnum kylfinga á að nú er Hlíðavöllur 2x 9 holur og kylfingar þurfa að bóka sig bæði á fyrri og seinni 9 ef þeir ætla 18 holur.

Ef þið ætlið að bóka ykkur í 18 holur þá verðið þið að passa það að hafa að lágmarki 2 klst og 10 mínútur á milli hringja.

Athugið að þeir sem eiga rástíma hafa fullan forgang á sinn tíma, ef tafir eru á vellinum og kylfingar missa af sínum bókaða rástíma fyrir seinni 9 eiga þeir ekki forgang á þann hluta vallarins sem eftir á að leika.

Bændaglíma GM 2026!!!Nú styttist heldur betur í veisluna og því ekki seinna vænna en að kynna bændurna til leiks :)Bændu...
07/09/2026

Bændaglíma GM 2026!!!

Nú styttist heldur betur í veisluna og því ekki seinna vænna en að kynna bændurna til leiks :)

Bændurnir í ár ólust báðir upp í Mosfellssveit og þekkja hér hverja þúfu.

Þetta eru þeir Eyjólfur Jónsson frá stórbýlinu Reykjum í Mosfellssveit sem fer fyrir rauða liðinu og Haraldur Sverrisson frá fyrrum kúabúinu, Hulduhólum í Mosfellsveit sem fer fyrir bláa liðinu. Þeir bændur eru verðugir fulltrúar sveitarinnar og það er ljóst að framundan er spennandi keppni milli uppsveitunga og niðursveitunga og verður gaman að sjá hvor bóndinn vinnur glímuna.

Liðin verða svo kynnt á morgun :)

06/09/2026

Getum við ekki verið sammála um að slá ekki á starfsmenn við vinnu? Þessu verður að linna. Höfum September án heimskulegar högga. Vallastjóra er heitt í hamsi!

05/09/2026

Grastilraunir og höfundarréttarvarin grös? Er Bjarni farinn að rifja upp Braggamálið? 🤔

Hola í höggi á Hlíðavelli.Helga Dögg Reynisdóttir slúttaði sumrinu með holu í höggi á Hlíðavelli á sjöundu braut, með lé...
04/09/2026

Hola í höggi á Hlíðavelli.

Helga Dögg Reynisdóttir slúttaði sumrinu með holu í höggi á Hlíðavelli á sjöundu braut, með léttri sjöu ⛳️

Hér kemur frásögn Helgu af högginu:
Helga Dögg bókstaflega hljóp á völlinn til að ná seinni níu eftir að hafa ljósmyndað okkar góða fólk í bæjarstjórn í Hlégarði 💛
Boltinn lenti um hálfum metra frá og rann svo fallega í holuna við algjöra dauðaþögn… þar til hollið sprakk! 🎉
Það er eitt að fá holu í höggi ⛳️ Það er annað að vera í “holli” sem fagnar eins og þú hafir unnið stærsta lottóvinninginn og láta upplifunina verða svo miklu stærri og dýrmætari. 🏆❤️
Þær gleymdu meira að segja að slá sjálfar, svo dásamlegar voru þær… alvöru klappstýrur 💪 Það má því segja að hollið hafi fengið holu í höggi! Við spiluðum síðustu tvær brautirnar í algjöru óráði og þoku, hlægjandi og flissandi 🤣
Svo var auðvitað fagnað fram eftir kvöldi á Blik 🥂
Mig dreymdi meira að segja nóttina áður að ég færi holu í höggi og að ég myndi vinna í lottói.
Holan kom ⛳️ Nú bíð ég bara eftir lottóinu 😂🤞

Við óskum Helgu Dögg til hamingju með draumahöggið.

Address

Hlíðavöllur/Bakkakot
Mosfellsbær
270

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Golfklúbbur Mosfellsbæjar posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Golfklúbbur Mosfellsbæjar:

Shortcuts

Share

Category