14/02/2017
Er einhver að tengja við þessa mynd?
Hafa ekki allir villst inn í þessum frumskóg af því hvað við megum og við eigum og hvað allsekki?
Þetta er allt spurning um að finna hvað hentar hverjum og einum bestum.
Mín upplýsta skoðun, og mín leið til að líða vel. Er að passa að það sé eitthvað prótein í öllum mínum máltíðum, þá helst í formi matar.
Morgunmat, hádegismat og kvöldmat.
Egg - tunfiskur - kjúklingabaunir - allur fiskur - kjúklingur - blátt skyr - fræ og aðrar baunir er eitthvað sem ég borða daglega.
Þannig líður mér best, þannig hef ég mesta orku og er alltaf þægilega mett yfir daginn.
Dagar sem byrja á brauðsneið, eða morgunkorni eru dagarnir sem maginn á mér virðist vera botnlaus - öll eigum við þannig daga!
Ég mæli með að þú prófir þetta - gæti verið leiðin útúr frumskóginum!