19/06/2026
Íslandsmótið í holukeppni 2026 fer fram dagana 19.–21. júní.
Karlaflokkur mótsins verður leikinn á Hólmsvelli í Leiru en kvennaflokkurinn á Urriðavelli hjá Golfklúbbnum Oddi.
Golfklúbbur Suðurnesja á fimm fulltrúa á mótinu í ár. Í karlaflokki keppa Snorri Rafn William Davíðsson, Gunnar Þór Ásgeirsson, Pétur Þór Jaidee og Ingi Rafn William Davíðsson. Í kvennaflokki keppir Fjóla Margrét Viðarsdóttir.
Mótið hefst á föstudag með 36 holu höggleik. Að honum loknum komast 16 efstu kylfingarnir í hvorum flokki áfram í holukeppnina þar sem leikið verður um Íslandsmeistaratitlana.
Hólmsvöllur er í frábæru ástandi fyrir mótið og erum við stolt af því að taka á móti bestu kylfingum landsins í Leirunni. Við kunnum vallarstarfsmönnum okkar og fjölmörgum sjálfboðaliðum bestu þakkir fyrir þeirra framlag við undirbúning mótsins.
Við óskum öllum keppendum góðs gengis og hlökkum til spennandi keppni um helgina.