Keflavík, Íþrótta og Ungmennafélag

Keflavík, Íþrótta og Ungmennafélag Keflavík er fyrirmyndarfélag ÍSÍ

Innan Keflavíkur eru 9 deildir starfræknar þar sem fjölbreyttar íþróttir eru í boði

15/06/2026
Það er með miklum trega sem Keflavík kveður Þorstein Ólafsson, fyrrum markvörð félagsins, sem fallinn er frá.Þorsteinn s...
10/06/2026

Það er með miklum trega sem Keflavík kveður Þorstein Ólafsson, fyrrum markvörð félagsins, sem fallinn er frá.

Þorsteinn stóð vaktina í marki Keflavíkur um árabil og var mikilvægur hluti af einu sterkasta tímabili í sögu félagsins. Hann var lykilmaður í gullaldarliði Keflavíkur sem vann Íslandsmeistaratitilinn þrisvar á fimm ára tímabili, 1969-73.

Á ferli sínum lék Þorsteinn m.a. með IFK Gautaborg í Svíþjóð, og var ávallt öflugur fulltrúi Keflavíkur og íslenskrar knattspyrnu. Hann á að baki 16 landsleiki fyrir Íslands hönd.

Keflavík þakkar Þorsteini fyrir ómetanlegt framlag til félagsins í gegnum árin. Minning hans mun lifa áfram í sögu Keflavíkur og hjá öllum þeim sem fengu að kynnast honum.

Aðstandendum og vinum sendum við okkar dýpstu samúðarkveðjur 🔵⚪️

Vertu velkominn til okkar í Keflavík 💙
09/06/2026

Vertu velkominn til okkar í Keflavík 💙

Leifur Steinn Àrnason kemur til Keflavíkur!

Barna og unglingaráð körfuknattleiksdeildar Keflavíkur hefur ráðið Leif Stein Àrnason til starfa í þjálfun fyrir veturinn 2026/2027.

Leifur mun þjálfa nokkra flokka hjá okkur í vetur:
7.-8. bekk karla
9.-10. bekk kvenna
11. flokk / 12. flokk / b-lið karla (Meira um það verkefni síðar)

"Við erum gríðarlega spennt fyrir því að fá Leif til starfa hjá okkur. Það er okkur mikill heiður að Leifur, sem hefur víðtæka reynslu að þjálfun vilji koma til Keflavíkur og þjálfa hjá okkur. Hann er mjög metnaðarfullur þjálfari. Okkur hlakkar til að vinna með honum í vetur." Sagði Garðar Örn ný kjörinn formaður BUR.

Tilkynnt verður um frekari þjálfara ráðningar fyrir næsta vetur á næstu dögum.

Áfram Keflavík

Við leitum af yfirþjálfara Rafíþróttadeildar Keflavíkur - skemmtilegt og spennandi starf í boði
09/06/2026

Við leitum af yfirþjálfara Rafíþróttadeildar Keflavíkur - skemmtilegt og spennandi starf í boði

Keflavík, íþrótta- og ungmennafélag, leitar að öflugum og metnaðarfullum yfirþjálfara til að leiða rafíþróttadeild félagsins. Rafíþróttir eru ört vaxandi íþróttagrein og hjá Keflavík bjóðum við upp á metnaðarfullt og faglegt starf þar sem áhersla er lögð á jákvæt...

Við erum endalaust stolt af okkar iðkendum 💙
05/06/2026

Við erum endalaust stolt af okkar iðkendum 💙

Við stöndum með Ingvari og fjölskyldu💙
01/06/2026

Við stöndum með Ingvari og fjölskyldu💙

Keflvíkingar allir standa heilshugar við bakið á Ingvari Jónssyni og fjölskyldu í þeirri erfiðu baráttu sem þau heyja 💙

Fótboltafjölskyldan á Íslandi er samheldin og viljum við sýna stuðning okkar í verki. Fjölskylda Ingvars stendur okkur nærri en börn Ingvars æfa hjá félaginu og þá er Ingvar einnig mágur Haraldar Guðmundssonar, þjálfara meistaraflokks karla.

Við hvetjum alla sem geta til að leggja sitt af mörkum og bendum á styrktarreikning fyrir Ingvar.

Reiknisnr. 0357-22-8868
Kt. 420787-1469

Það þarf fólk eins þig 💙

Við stöndum með Ingvari ❤️ og viljum deila þessu fallega framtaki.Ingvar Jónsson markmaður Víkings stendur í erfiðri bar...
26/05/2026

Við stöndum með Ingvari ❤️ og viljum deila þessu fallega framtaki.

Ingvar Jónsson markmaður Víkings stendur í erfiðri baráttu við krabbamein og viljum við hvetja alla að standa saman og leggja málefninu lið.

Hægt verður að kaupa styrktarmiða á Stubb í tengslum við leik Stjörnunnar og Víkings í kvöld.
5.000 kr. | 10.000 kr. | 15.000 kr.

Einnig er hægt að leggja beint inn á styrktarreikning:
0357-22-008868
kt. 420787-1469

Við íþróttasamfélagið stöndum saman fyrir Ingvar og fjölskyldu ❤️💙
Víkingur Fótbolti

Kæru Víkingar. Við höfum heyrt frá nokkrum sem vilja vera með en komast ekki á leikinn. Við minnum því aftur á að það er hægt að kaupa styrktarmiða á Stubb þó þú komist ekki
https://stubb.is/events/bpOdWo

Knattspyrnudeild Víkings hefur einnig stofnað styrktarreikning sem hægt er að leggja inn á:
0357-22-008868
kt 420787-1469

❤️🖤

Við sendum innilegar hamingjuóskir til félaga okkar í Körfuknattleiksdeild Grindavíkur með Íslandsmeistaratitilinn í Bón...
18/05/2026

Við sendum innilegar hamingjuóskir til félaga okkar í Körfuknattleiksdeild Grindavíkur með Íslandsmeistaratitilinn í Bónus deild karla 🏆💛💙

Address

Sunnubraut 34
Keflavík
230

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Keflavík, Íþrótta og Ungmennafélag posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Keflavík, Íþrótta og Ungmennafélag:

Share

Category