13/05/2026
Núvitund í hreyfingu ✨
Við lifum á tímum þar sem hraðinn er mikill og streitan oft komin í óhóf. Margir eiga erfitt með að koma hreyfingu í rútínu og þá getur
verið gott að fylgja fyrirfram ákveðnu plani til að ná stöðugleika.
En stundum er líka mikilvægt að staldra við og hlusta á líkamann.
Hvað þarf hann í dag?
Æfingaúrið segir okkur hversu mörg skref þú átt að taka þann daginn.
Æfingappið segir okkur hversu oft og lengi í viku við eigum að hreyfa okkur.
Æfingaplanið segir okkur hvaða vöðvahóp á að taka þann daginn.
En stundum gleymum við mikilvægasta mælikvarðanum: líkamanum sjálfum.
Núvitund í hreyfingu snýst um að mæta líkamanum þar sem hann er þann daginn — og stundum leggja planið til hliðar.
Kannski vaknar þú stíf/ur í baki,
þreytt/ur í fótunum,
stressuð/aður eftir erfiðan dag,
eða einfaldlega orkuminni en venjulega.
Þá þarf góð æfing ekki alltaf að vera þung fótaæfing, langhlaup eða að
“push through”.
Stundum er besta ákvörðunin að:
taka léttari eða styttri æfingu,
færa fókusinn yfir á efri hluta líkamans,
koma blóðflæðinu af stað,
teygja vel,
anda dýpra,
og bara vera.
Það er ekki merki um leti.
Það er líkamsvitund og þú að sýna þér sjálfsmildi.
Við náum oft meiri árangur til lengri tíma þegar við lærum að vinna með líkamanum í stað þess að berjast gegn honum.
Hreyfing þarf ekki alltaf að vera verkefni sem þarf að klára. Hún getur líka verið leið til að tengjast sjálfum sér betur.
Að mæta.
Hreyfa sig.
Hlusta.
Aðlaga.
Og fara heim með betri líðan.
Í Orkustöðinni trúum við að jafnvægi, sjálfsmildi og ánægja skili meiri árangri til lengri tíma en fullkomnun eða stíf plön ✨