Ég útskrifaðist sem Íþróttafræðingur frá HR árið 2017. Hef stundað frjálsar íþróttir frá barnsaldri og hef þjálfað 6 - 18 ára í frjálsum í 3 ár. Einnig æfði ég handbolta í haukum í 4 ár frá 4 flokki upp í 2 flokk.
Ég tek að mér þjálfun byrjendur jafn sem lengra komna og legg mikið upp úr persónulegri þjálfun þar sem unnið er að markmiðum hvern og eins einstaklings. Einnig tek ég að mér hlaupatækn
iþjálfun. Aðstaðan sem ég þjálfa í heitir Elite þjálfun og er einn af eigendum þeirra stöðvar.
Í Elite þjálfun eru enginn svokölluð tæki, heldur eru mikið af handlóðum, ketilbjöllur, upphífingar stangir , trx bönd, dekk, hnébeygju rekkar, teygjur og ýmislegt fleira. Ekki þarf að binda sig við stöðina til þess að koma í þjálfun til mín.
Það sem er boðið upp á í þjálfun hjá mér:
- Líkamstöðu, hreyfigreiningu og mælingar.
- Ráðleggingar varðandi mataræði.
- Einstaklingsmiðaða þjálfun byggða á líkamsástandi og markmiðum hvers og eins. [email protected]
Sími: 777-8101
Elitethjalfun.is