15/09/2026
Þjálfarar U20 karlalandsliðs Íslands hafa valið í lokahóp. U20 karlaliðið mun ferðast til Largs í Skotlandi og keppa á Evrópumóti Smáþjóða dagana 15. – 19. október. Það mót er jafnframt undankeppni Evrópumótsins 2027 (CEV).
Eftirtaldir leikmenn HK voru valdar í landsliðin:
Alexander Máni Guðbjargarson
Einar Bjartur Ævarsson
Fjölnir Logi Halldórsson
Símon Þór Gregorsson
Auk þess er hann Markús Freyr Arnarsson í hópnum en hann er uppalinn HK-ingur sem mun spila í Danmörku í vetur.
Blakdeild HK er ákaflega stolt af fulltrúum okkar í U20 liðinu og óskum þeim innilega til hamingju með valið.
❤🤍