19/06/2026
Eysteinn Bjarni Ævarsson mætir í Smárann 💚
Körfuknattleiksdeild Breiðabliks og Eysteinn Bjarni Ævarsson hafa komist að samkomulagi um að Eysteinn leiki með meistaraflokki félagsins á næsta tímabili.
Eysteinn á farsælan feril að baki með Hetti, Keflavík, Stjörnunni og Álftanesi og kemur til Breiðabliks með mikla reynslu úr efstu tveimur deildum landsins. Á síðasta tímabili skilaði hann 10,6 stigum, 6,1 frákasti, 2,2 stoðsendingum og 1,5 stolnum bolta að meðaltali með toppliði Hattar.
Þetta verður jafnframt þriðja samstarf Eysteins og Hrafns Kristjánssonar, en þeir hafa áður unnið saman hjá Stjörnunni og Álftanesi.
„Eysteinn er leiðtogi og frábær liðsmaður sem mun styrkja okkur á báðum endum vallarins. Hann hefur mikla reynslu og getur miðlað henni til okkar ungu og efnilegu leikmanna,“ segir Hrafn Kristjánsson, þjálfari meistaraflokks.
Við bjóðum Eystein Bjarna hjartanlega velkominn í Breiðablik og hlökkum til að sjá hann í Smáranum 🏀
Áfram Breiðablik💚