16/06/2026
Sumarnámskeið Breiðabliks í fullu fjöri
Sumarnámskeið Breiðabliks hafa farið afar vel af stað og hefur þátttaka verið mjög góð frá upphafi. Börnin hafa tekið virkan þátt í fjölbreyttri dagskrá þar sem áhersla er lögð á hreyfingu, leik, og ekki síst að hafa gaman.
Á námskeiðunum er farið yfir helstu undirstöðuatriði hverrar íþróttar undir leiðsögn reynslumikilla þjálfara og starfsfólks. Dagskráin hefur gengið einstaklega vel og markmiðið er ávallt að skapa jákvætt og uppbyggilegt umhverfi þar sem öll börn fá tækifæri til að njóta sín.
Sérstaklega ánægjulegt er að segja frá því að metþátttaka er í skráningu á mat þessa vikuna. Þrátt fyrir mikinn fjölda hefur skipulag gengið vel og allir þátttakendur fengið góðan og næringarríkan mat á hverjum degi.
Fram undan eru margar skemmtilegar vikur og hvetjum við foreldra og forráðamenn til að kynna sér fjölbreytt framboð sumarnámskeiða Breiðabliks, skráning er opin í allt sumar.
Nánari upplýsingar um námskeiðin og skráningu má finna á sumarnámskeiðasíðu Breiðabliks:
https://breidablik.is/um-okkur/sumarnamskeid/
Við hlökkum til að taka á móti sem flestum börnum í sumar fullt af hreyfingu, gleði og góðum minningum.
Sumarnámskeið Breiðabliks hafa farið afar vel af stað og hefur þátttaka verið mjög góð frá upphafi. Börnin hafa tekið virkan þátt í fjölbreyttri dagskrá þar sem áhersla er lögð á […]