Skíðakennsla Oddnýjar og Sveins Gauta

Skíðakennsla Oddnýjar og Sveins Gauta Við bjóðum upp á skíðakennslu í Bláfjöllum og af og til annars staðar. Verðskrá og nán

Við erum bæði með Austurrísk skíðakennararéttindi og höfum mikla reynslu af skíðakennslu fyrir allan aldur, bæði byrjendur og lengra komna. Oddný
Ég starfaði sem skíðakennari í skíðaskóla veturinn 2014-2015 og er ég með austurrísk skíðakennararéttindi frá Skíðasambandinu í Tyrol.

Ég tek að mér skíðakennslu fyrir allan aldur en ég hef sérhæft mig í kennslu fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skre

f á skíðum, og þá sérstaklega börn. Fyrir mér er það mjög mikilvægt að kennsla fyrir börn er ekki einungis að kenna barninu sín fyrstu skref, en einnig að leiðbeina foreldrunum, hver séu næstu skref til þess að þeir geti haldið áfram að kenna barninu. Ég býð líka upp á kennslu fyrir lengra komna sem vilja bæta tæknina. Sveinn Gauti
Ég starfaði sem skíðakennari í skíðaskóla veturinn 2008-2009 og síðan þá hef ég farið reglulega út og kennt í styttri tíma. Ég hef einnig unnið fyrir skíðaskóla Bláfjalla. Ég er með austurrísk skíðakennararéttindi frá skíðasambandinu í Salzburgerland.

Ég kenni bæði byrjendum sem og lengra komnum, en ég hef mest verið að kenna góðu skíðafólki að bæta tæknina síðustu ár. Ég er líka vanur því að kenna byrjendum, jafnt börnum
sem og fullorðnum. Verð

8000 kr/klst ef einn er í tíma
10.000 kr/klst ef tveir eru í tíma
12.000 kr/klst ef þrír eru í tíma

Til að panta tíma er hægt að senda okkur skilaboð hér á síðunni eða hafa samband í síma 895-0219

Það stefnir í bestu páska í Bláfjöllum í áraraðir. Allt á kafi í snjó og veðurspáin meira og minna góð. Við erum farin a...
31/03/2026

Það stefnir í bestu páska í Bláfjöllum í áraraðir. Allt á kafi í snjó og veðurspáin meira og minna góð. Við erum farin að taka við bókunum í kennslu á morgun, miðvikudag og svo á föstudag. Nú er tækifærið til að koma fjölskyldunni á skíði! Frekari upplýsingar í skilaboðum og á skidakennsla.is

Loksins loksins kom snjórinn! Það er eitthvað laust hjá okkur í kennslu á morgun (sunnudag) í Bláfjöllum og á mánudaginn...
28/02/2026

Loksins loksins kom snjórinn! Það er eitthvað laust hjá okkur í kennslu á morgun (sunnudag) í Bláfjöllum og á mánudaginn í Ártúnsbrekku. Áhugasamir geta sent skilaboð eða hringt í 895-0219.

Við erum að fá mjög mikið af fyrirspurningum um kennslu um næstu helgi. Staðan er þannig að það eru mjög miklar líkur á ...
06/01/2025

Við erum að fá mjög mikið af fyrirspurningum um kennslu um næstu helgi. Staðan er þannig að það eru mjög miklar líkur á slæmu veðri um helgina og í næstu viku. Við tökum þess vegna bara við bókunum í kennslu fram á föstudaginn næsta.

Góðu fréttirnar eru þær að við eigum eitthvað af lausum tímum núna í vikunni, spáin er góð og færið flott. Um að gera að nýta sér það þar sem hlákan um helgina gæti brætt mikið af snjónum í fjöllunum

Vegna forfalla eru lausir tímar í kennslu á morgun sunnudag og veðurspáin frábær.Líka eitthvað laust í næstu viku. Best ...
20/01/2024

Vegna forfalla eru lausir tímar í kennslu á morgun sunnudag og veðurspáin frábær.

Líka eitthvað laust í næstu viku. Best að panta tíma með því að senda okkur skilaboð.

21/12/2023

Hægt er að kaupa gjafabréf í skíðakennslu á síðunni okkar, https://skidakennsla.is Tilvalin jólagjöf! Einnig er hægt að nota hreyfistyrk frá stéttarfélögum og vinnustöðum til að borga fyrir gjafabréf frá okkur.

08/02/2023

Það eru ennþá lausir tímar hjá okkur á morgun fimmtudag og veðurspáin ótrúlegt en satt ágæt og snjórinn mættur í fjöllin

Eftir það tökum við okkur frí til 20. febrúar en höldum uppteknum hætti seinnipartinn í febrúar!

Það eru komnar tvær nýjar stólalyftur í Bláfjöllum og fullt af nýjum brekkum. Er ekki tilvalið að bæta stílinn aðeins og...
05/01/2023

Það eru komnar tvær nýjar stólalyftur í Bláfjöllum og fullt af nýjum brekkum. Er ekki tilvalið að bæta stílinn aðeins og koma í skíðakennslu?

Við eigum lausa tíma í dag (fimmtudag), föstudag og laugardag. Erum líka byrjuð að taka við bókunum í næsu viku, en það er meiri óvissa með veðrið þá.

Við kennum börnum og fullorðnum, byrjendum og lengra komnum. Best að bóka með því að senda skilaboð á Facebook.

Skíðakennsla á milli jóla og nýars! Við verðum að kenna í Bláfjöllum á milli jóla og nýárs. Bjóðum upp á einkakennslu fy...
26/12/2021

Skíðakennsla á milli jóla og nýars! Við verðum að kenna í Bláfjöllum á milli jóla og nýárs. Bjóðum upp á einkakennslu fyrir byrjendur sem og lengra komna, bæði börn og fullorðna.

Tíminn kostar 8.000 krónur. Bókað með skilaboðum á Facebook

Nú eru nær fullkomnar aðstæður í Bláfjöllum, allt á kafi í nýjum snjó.Það er ennþá laust í kennslu hjá okkur í dag (mánu...
13/12/2021

Nú eru nær fullkomnar aðstæður í Bláfjöllum, allt á kafi í nýjum snjó.

Það er ennþá laust í kennslu hjá okkur í dag (mánudag). Hægt að bóka með því að senda skilaboð.

Vegna veðurs er ekki útlit fyrir að það verði meira opnað þessa vikuna. Við tökum því ekki við bókunum fyrir aðra daga í þessari viku, en um að gera að nýta tækifærið og skella sér á skíði í dag!

Gleðilagan vetur! Við verðum að kenna seinnipartinn í dag miðvikudag og á morgun fimmtudag (ef snjóalög leyfa) í Breiðho...
01/12/2021

Gleðilagan vetur! Við verðum að kenna seinnipartinn í dag miðvikudag og á morgun fimmtudag (ef snjóalög leyfa) í Breiðholti.

Frekari upplýsingar og tímabókanir í skilaboðum.

Við höfum fengið talsvert af fyrirspurnum um skíðakennslu næstu daga. Þrátt fyrir að lyftur megi opna frá og með morgund...
14/04/2021

Við höfum fengið talsvert af fyrirspurnum um skíðakennslu næstu daga. Þrátt fyrir að lyftur megi opna frá og með morgundeginum er ekki útlit fyrir að nægur snjór verði í Bláfjöllum næstu daga og líklegast verður ekki skíðað meira þar þennan veturinn. Við tökum því ekki við bókunum í kennslu á næstunni.

Annars er nægur snjór fyrir norðan og austan og um að gera að skella sér þangað á skíði.

Address

Bláfjöll
Kópavogur
200

Opening Hours

Monday 16:00 - 21:00
Tuesday 16:00 - 21:00
Wednesday 16:00 - 21:00
Thursday 16:00 - 21:00
Friday 16:00 - 21:00
Saturday 10:00 - 17:00
Sunday 10:00 - 17:00

Telephone

+3548950219

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Skíðakennsla Oddnýjar og Sveins Gauta posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share