02/01/2026
Kennaranámskeið helgina 10. - 11. janúar nk!
Kennaranámskeið Akademíunnar fyrir alla áhugasama tilvonandi Taekwondo kennara.
Farið verður yfir kennslu á grunntækni, fyrir börn á aldrinum 3-4 ára, 5-7 ára og eldri. Einnig verður lögð áhersla á framkomu kennara, notkun á röddinni og agastjórn á æfingum.
Lágmarksaldur er 14 ára. Félög ákveða sjálf hvern þau vilja senda óháð belti og reynslu.
Dagskrá
Laugardagur 10. janúar
kl. 10.00-12.00 Grunntækni, kennsla og áherslupunktar
kl. 12.00-12.30 Hádegishlé
kl. 12.30-15.00 Framkoma í sal
Sunnudagur 11. janúar
kl. 10.00-12.00 Agastjórnun
kl. 12.00-13.00 Hádegishlé
kl. 13.00-15.00 Kennsla í hópum
Skráning í gegnum yfirkennara og sendist á [email protected].
Verð 19.900kr og greiðist inn á Akademíuna áður en námskeið hefst.