Samskipadeildin, áhugamannadeild Spretts

Samskipadeildin, áhugamannadeild Spretts Deildin er röð fimm móta sem haldin eru aðra hverja viku á fimmtudögum.

Um er að ræða einstaklings- og liðakeppni þar sem knapar safna stigum fyrir sig og sitt lið.

Þriðja mót ársins, Brokk fimmgangur var haldin 22. Mars síðastliðinn
24/03/2026

Þriðja mót ársins, Brokk fimmgangur var haldin 22. Mars síðastliðinn

Keppni í fimmgangi í Samskipadeildinni, Áhugamannadeild Spretts, fór fram á sunnudaginn en fresta þurfti viðburðinum vegna óhagstæðra veðurskilyrða á

21/03/2026

Tillögur til lagabreytinga sem leggja skal fyrir aðalfund Spretts 24. mars 2025

Annað mót vetarins for fram í gærkvöldi þar sem keppt var í Sveifla slaktaumatölti. Þar sigraði Glódís Helgadóttir og Öt...
06/03/2026

Annað mót vetarins for fram í gærkvöldi þar sem keppt var í Sveifla slaktaumatölti. Þar sigraði Glódís Helgadóttir og Ötull fra Narfastöðum sigruðu.

Það voru þau Glódís Helgadóttir og Ötull frá Narfastöðum sem leiddu eftir forkeppnina og sýndu þau styrk sinn og héldu forystunni eftir sterk A-úrslit.

Önnur liðakynning í Samskipadeildin, áhugamannadeild Spretts Eiðfaxi TV fjórangurinn er fimmtudaginn 19. febrúar Samskip...
16/02/2026

Önnur liðakynning í Samskipadeildin, áhugamannadeild Spretts
Eiðfaxi TV fjórangurinn er fimmtudaginn 19. febrúar Samskipadeildin - Áhugamannadeild Spretts - Eiðfaxi TV Fjórgangur V2

Keppni í Samskipadeildinni, Áhugamannadeild Spretts hefst með Eiðfaxa TV fjórganginum í Samskipahöllinni 19. febrúar kl. 18:30

Deildin hefst í næstu viku á Eiðfaxi TV fjórgangi.Fyrstu liðin voru kynnt í dag
10/02/2026

Deildin hefst í næstu viku á Eiðfaxi TV fjórgangi.
Fyrstu liðin voru kynnt í dag

Nú þegar 9 dagar eru í fyrsta mót tímabilsins er ekki seinna vænna en að byrja að kynna liðin sem taka þátt.

Staðan þegar aðeins ein keppni er eftir spennandi. Þetta ræðst allt á morgun, hver stigar hæðst í gæðingarskeiði.Staðan ...
25/04/2025

Staðan þegar aðeins ein keppni er eftir spennandi. Þetta ræðst allt á morgun, hver stigar hæðst í gæðingarskeiði.
Staðan í einstaklingskeppninni og liðakeppninni.

Eftir frábært kvöld og frábærar sýningar. Þá stóð Þórunn Kristjánsdóttir upp sem sigurvegari í töltinu og Pula-Votumýri-...
25/04/2025

Eftir frábært kvöld og frábærar sýningar. Þá stóð Þórunn Kristjánsdóttir upp sem sigurvegari í töltinu og Pula-Votumýri- Hofstaðir uppi sem sigurvegarar í liðakeppni kvöldsins með þrjá liðsmenn í A-úrslitum.

Stiginn í einstaklingskeppninn í Icewear fimmgangi og staðan eftir þjár greinar. Einnig staðan í liðakeppninni fyrir Ice...
29/03/2025

Stiginn í einstaklingskeppninn í Icewear fimmgangi og staðan eftir þjár greinar. Einnig staðan í liðakeppninni fyrir Icewear fimmganginn og eftir þjár greinar.

Verkfæralagersfjórgangurinn í Samskipadeildinni fór fram á fimmtudaginn síðastliðinn. Við þökkum Verkfæralagernum kærleg...
23/02/2025

Verkfæralagersfjórgangurinn í Samskipadeildinni fór fram á fimmtudaginn síðastliðinn. Við þökkum Verkfæralagernum kærlega fyrir stuðninginn og sjalfboðaliðum fyrir þeirra vinnu.
Húsið opnaði kl. 17:30 og var veislusalurinn þéttsetinn meðan matur var borinn fram af frábæru kokkunum hjá Flóru veisluþjónustu.
Mikil stemning myndaðist í stúkunni yfir kvöldið og þökkum við áhorfendum kærlega fyrir komuna í Samskipahöllina.
Alls voru 70 keppendur úr 15 liðum skráðir til leiks. Gaman var að sjá hversu prúðbúnir knapar voru og margir hestar greinilega komnir í fanta form.
Það var mikil spenna fyrir B-úrslitunum, enda munaði ekki nema 0,06 á efsta og neðsta knapa inn í úrslitin. En þá setti Sigurbjörn Viktorsson í liði Nýsmíði og hestur hans Seifur frá Brekkubæ í næsta gír og uppskar að lokum öruggan sigur með 6,57 í einkunn.
Þar á eftir voru Gunnar Tryggvason og Katla frá Brimilsvöllum sem kepptu fyrir lið Bifreiðaverkstæðis Böðvars og Borgarverk með einkunnina 6,33. Því næst kom Þórdís Sigurðardóttir á Árvaki frá Minni-Borg fyrir lið Pulu-Votamýri-Hofsstaða með einkunnina 6,30. Þær stöllur, Sarah Maagaard Nielsen og Eyrún Jónasdóttir úr liði Hótel-Rangá, komu þar á eftir og náðu í dýrmæt stig í liðakeppninni. Gaman að sjá þær mæta í glæsilegu grænu Geysis-jökkunum.
Kristín Ingólfsdóttir og hestur hennar Ásvar frá Hamrahóli sem keppa fyrir lið Nýsmíði var efst eftir forkeppni og gaf ekkert eftir í úrslitunum og landaði gullinu með glæsilega einkunn, 6,93. Fast á hæla hennar voru tveir liðsmenn Trausta, Darri Gunnarsson og Draumur frá Breiðsstöðum og Þorgerður Gyða Ásmundsdóttir og Hnokki frá Áslandi, með jafna einkunn 6,83. Þar á eftir komu Erla Guðný Gylfadóttir og hryssa hennar Fluga frá Garðabæ sem keppa fyrir liðið Pula-Votamýri-Hofsstaðir, Rúnar Freyr Rúnarsson og Kári frá Björgum í liði Réttverks og Kolbrún Grétarsdóttir og Jaðrakan frá Hellnafelli í liði Sindrastaða.

Árangur Erlu Guðnýjar í A-úrslitum, Þórdísar Sigurðardóttur í B-úrslitum og Gunnars Más sem var rétt utan úrslita skilaði liði þeirra, Pulu-Votamýri-Hofsstaða, 109 stigum í liðakeppninni og hlutu þau því liðaskjöldinn eftirsótta.

Staðan í einstaklingskeppninni eftir kvöldið er þessi:
Kristín Margrét Ingólfsdóttir 12 stig
Þorgerður Gyða Ásmundsdóttir 9 stig
Darri Gunnarsson 9 stig
Erla Guðný Gylfadóttir 7 stig
Rúnar Freyr Rúnarsson 6 stig
Kolbrún Grétarsdóttir 5 stig
Sigurbjörn Viktorsson 4 stig
Gunnar Tryggvason 3 stig
Þórdís Sigurðardóttir 2 stig
Sara Maagaard Nielsen 1 stig

Staðan í liðakeppninni eftir kvöldið er þessi:

Pula-Votamýri-Hofsstaðir 109 stig
Réttverk 99 stig
Trausti 99 stig
Hótel Rangá 94 stig
Nýsmíði 93 stig
Stafholthestar 85 stig
Bifreiðaverkstæði Böðvars og Borgarverk 84,5 stig
Tommy Hilfiger 76 stig
Sindrastaðir 73 stig
Sveitin 65,5 stig
Lið Spesíunnar 40 stig
Hrossaræktin Strönd II 33,5 stig
Vörðufell 29 stig
Stólpi Gámar 27,5 stig
Hrafnsholt 27 stig

Næsta keppniskvöld í Samskipadeildinni, Áhugamannadeild Spretts, fer fram 13. mars en þá verður keppt í slaktaumatölti – T4.

23/02/2025

Staðan í einstaklingskeppninni eftir fjórganginn er þessi:

Kristín Margrét Ingólfsdóttir 12 stig
Þorgerður Gyða Ásmundsdóttir 9 stig
Darri Gunnarsson 9 stig
Erla Guðný Gylfadóttir 7 stig
Rúnar Freyr Rúnarsson 6 stig
Kolbrún Grétarsdóttir 5 stig
Sigurbjörn Viktorsson 4 stig
Gunnar Tryggvason 3 stig
Þórdís Sigurðardóttir 2 stig
Sara Maagaard Nielsen 1 stig

Staðan í liðakeppninni eftir fjórganginn er þessi:

Pula-Votamýri-Hofsstaðir 109 stig
Réttverk 99 stig
Trausti 99 stig
Hótel Rangá 94 stig
Nýsmíði 93 stig
Stafholthestar 85 stig
Bifreiðaverkstæði Böðvars og Borgarverk 84,5 stig
Tommy Hilfiger 76 stig
Sindrastaðir 73 stig
Sveitin 65,5 stig
Lið Spesíunnar 40 stig
Hrossaræktin Strönd II 33,5 stig
Vörðufell 29 stig
Stólpi Gámar 27,5 stig
Hrafnsholt 27 stig

Síðasta (en ekki sísta) liðið sem við kynnum til leiks fyrir Samskipadeildina, Áhugamannadeild Spretts 2025, er liðið Hó...
21/02/2025

Síðasta (en ekki sísta) liðið sem við kynnum til leiks fyrir Samskipadeildina, Áhugamannadeild Spretts 2025, er liðið Hótel Rangá. Liðið kemur nýtt inn í deildina og samanstendur af Geysisfólki sem við erum glöð með að fá inn í deildina. Spurningin er, mæta þau í grænu jökkunum ?
Eyrún Jónasóttir er liðsstjóri

Sarah Maagaard Nielsen, Hestamannafélaginu Geysi, 43 ára, 163 cm, Naut
Sigurlín F Arnarsdóttir, Hestamannafélaginu Geysi, 24 ára, 181 cm, Vatnsberi
Steingrímur Jónsson, Hestamannafélaginu Geysi, 54 ára, 181 cm, Meyja
Renate Hannemann, Hestamannafélaginu Geysi, 55 ára, 172 cm, Meyja
Eyrún Jónasdóttir, Hestamannafélaginu Geysi, 56 ára, 162 cm, Ljón
Samskipadeildin hefst í dag! Frítt inn og veitingasalan á sínum stað. Snillingarnir hjá Flóru veisluþjónustu
sjá um matinn sem sló í gegn í fyrra.
Keppnin verður einnig sýnd á Eiðfaxa TV, endilega tryggið ykkur áskrift þar og fylgist með.

Fylgið okkur á samfélagssmiðlum,
Instagram.com/ahugamannadeildspretts -
Facebook.com/ahugamannadeildin

Address

Hestheimar 14-16
Kópavogur
203

Opening Hours

18:30 - 17:00

Telephone

+3546204500

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Samskipadeildin, áhugamannadeild Spretts posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Samskipadeildin, áhugamannadeild Spretts:

Share

Category