Hlaupahópur Breiðabliks

Hlaupahópur Breiðabliks Hlaupahópur Breiðabliks samanstendur af fjölbreyttum hópi fólks sem nýtur þess að hlaupa í góðum félagsskap. Yfirþjálfari er Sonja Sif Jóhannsdóttir

Skipulagðar æfingar eru þrisvar í viku, á mánudögum og miðvikudögum kl. 17:30 og á laugardögum kl. 9:00.

Í gær var Sonja Sif þjálfari hlaupahóps Breiðabliks með fyrirlestur og fór yfir mörg hagnýt atriði sem gott er að hafa í...
28/05/2026

Í gær var Sonja Sif þjálfari hlaupahóps Breiðabliks með fyrirlestur og fór yfir mörg hagnýt atriði sem gott er að hafa í huga þegar kemur að hlaupum hvort heldur sem er til yndisauka eða keppnisþjálfunnar.

Hér á meðfylgjandi mynd má sjá hvernig hlaupa zone er skipt upp eftir mismunandi álagi og hversu mikilvægt það er að hlaupa á réttu álagi til að sjá framfarir og umfram allt að líða vel 💚

Blikar mættu að sjálfsögðu í Kópavogsdalinn á þessum fallega sumardegi og tóku gæðaæfingu. Það er alltaf skemmtilegast a...
20/05/2026

Blikar mættu að sjálfsögðu í Kópavogsdalinn á þessum fallega sumardegi og tóku gæðaæfingu. Það er alltaf skemmtilegast að hlaupa í hóp og hvetja hvort annað áfram 💚

Við tökum vel á móti nýliðum og sjálfsagt að koma og prófa 😊

Fyrsta æfing tímabilsins hjá hlaupahópnum fór fram í rjómablíðu í gær 💚📨 Vegna margra fyrirspurna koma hér nokkur hagnýt...
05/05/2026

Fyrsta æfing tímabilsins hjá hlaupahópnum fór fram í rjómablíðu í gær 💚

📨 Vegna margra fyrirspurna koma hér nokkur hagnýt atriði varðandi hlaupahópinn og æfingar:

👉 Hlaupahópurinn er með þrjár skipulagðar æfingar á viku, á mánudögum og miðvikudögum kl. 17.30 og á laugardögum kl. 9:00

👉 Þjálfarar sjá um allar æfingar á mánudögum og miðvikudögum

👉 Hópurinn er með lokaða Facebook síðu þar sem fram kemur hvar hópurinn hittist hverju sinni og hvernig æfingin er þann daginn. Til að fá aðgang að þeirri síðu þarf að greiða árgjaldið en það er hægt að gera hér: https://xps.is/en/shop/breidablik/activities/96

Yfirþjálfari hlaupahóps Breiðabliks er Sonja Sif Jóhannsdóttir og hægt er að senda fyrirspurn á [email protected]

Aðstoðarþjálfarar eru:
Óskar Karlsson
Steinþóra Þórisdóttir
Halldóra Gyða Proppé
Fjalar Hauksson

Einnig er hægt að hafa samband í síma 899-9889 eða senda póst á [email protected]

Hlaupakveðja, Hanný Inga Birschbach

Kæru hlaupa Blikar, Gleðilegt nýtt hlaupaár og takk fyrir öll hlaupin og góðu stundirnar á liðnu ári 🥳Þó það sé dimmt og...
06/01/2026

Kæru hlaupa Blikar,
Gleðilegt nýtt hlaupaár og takk fyrir öll hlaupin og góðu stundirnar á liðnu ári 🥳
Þó það sé dimmt og kalt úti og ekki beint heillandi að reyma á sig skóna og fara út að hlaupa þá er þetta tíminn til að setjast niður og leggja drög að næsta hláupaári, setja sér markmið og skoða hvenær skráningar í næstu hlaup hefjast 📅
Framboðið af hlaupum á íslandi hefur vaxið ört síðastliðin ár en það ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi hvort sem það er í nágreni höfuðborgarsvæðisins eða á landsbyggðinni ⛺️
Poweraid hlaupin halda áfram en næsta hlaup er nk fimmtudag, þetta er mikið stemningshlaup og ég hvet alla til að mæta og hafa það gaman 😁
Að lokum langar mig til að koma því á framfæri að það er alltaf velkomið að koma að prufa æfingu með hópnum án skuldbindingar. Gott er að senda okkur skilaboð til að fá upplýsingar um hvar æfingin er þann daginn þar sem okkur þykir gaman að breyta til og fara nýjar leiðir 😉

Eins og venjulega var algjör TOPP! æfing í Krikanum í kvöld 💪 Áhersla á hraða og tækni 🏃 Skorum á alla að koma og prufa ...
19/11/2025

Eins og venjulega var algjör TOPP! æfing í Krikanum í kvöld 💪 Áhersla á hraða og tækni 🏃 Skorum á alla að koma og prufa að hlaupa með okkur 🏃 það sér enginn eftir því 💚 sjáumst 😀

🎄Það er heldur betur nóg framundan hjá Hlaupahóp Breiðabliks 🎄⛪️Kirkjuhlaupið fer fram laugardaginn 29. nóvember og eru ...
18/11/2025

🎄Það er heldur betur nóg framundan hjá Hlaupahóp Breiðabliks 🎄

⛪️Kirkjuhlaupið fer fram laugardaginn 29. nóvember og eru allir hvattir til að mæta og hlaupa með okkur milli kirkja. Að loknu hlaupi verður boðið upp á jólalegar veitingar í Safnaðarheimili Kópavogskirkju 🎅

✨Kakóhlaupið er fyrir meðlimi hlaupahópsins en það hefur alltaf verið mjög gaman og góð mæting á þennan viðburð. Jólaljósin skoðuð, dansað í kringum jólatréð á Austurvelli og farið á kaffihús í notalegan kakóbolla ✨

🏃‍♀️Poweraid hlaupin halda áfram en mæting hefur verið mjög góð í fyrstu tvö hlaupin. Veður og færð hafa verið eins og best væri á kosið og hlökkum til að fjölmenna áfram🏆

📌Krikaæfingar í Kaplakrika fara vel af stað enda kærkomið að komast inn úr kuldanum á braut einu sinni í viku. Þeir sem vilja taka þátt geta gengið frá skráningu inn á xps ⏱️

🎭Gamlárshlaupið er fastur liður hjá hlaupahópnum. Oftar en einu sinni hafa Blikar unnið búningaverðlaun hlaupsins en það er mikill metnaður lagður í hugmyndavinnu og framkvæmd🍾🥂

Eins og sjá má þarf engum að leiðast í desember og fullt af hlaupaviðburðum framundan💚

Topp! Topp! Topp! Æfing í Krikanum í kvöld 🏃💪💚 Ef þú vilt prufa að hlaupa með okkur 🏃 getur þú sent okkur skilaboð á Ins...
12/11/2025

Topp! Topp! Topp! Æfing í Krikanum í kvöld 🏃💪💚 Ef þú vilt prufa að hlaupa með okkur 🏃 getur þú sent okkur skilaboð á Instagram eða Facebook og við vísum þér leiðina inn í besta hópinn 💚 sjáumst 😀

Kæru Blikar, 💚 Þar sem snjórinn er komin í allri sinni dýrð er ekki seinna vænna en að skrá sig á hlaupaæfingar í Kaplak...
28/10/2025

Kæru Blikar,

💚 Þar sem snjórinn er komin í allri sinni dýrð er ekki seinna vænna en að skrá sig á hlaupaæfingar í Kaplakrika. Æfingar hefjast miðvikudaginn 5. nóvember og eru kl 19.15. Nauðsynlegt er að skrá sig á xps ⬇️ https://xps.is/shop/breidablik/activities/96/offerings/C66D4BCB-58EE-41C2-BBA6-A103639ACA51💚

🎉 Það styttist heldur betur í Uppskeruhátíðina sem verður haldin næsta föstudag en skemmtinefndin hefur verið önnum kafin við að skipuleggja kvöldið🕺💃

🏃‍♀️ Powerade-hlaupin eru hafin og við hvetjum alla til að mæta og taka þátt — hver skráning gefur eitt stig og í lok mars verða veitt verðlaun fyrir stigahæsta hlaupahópinn! 💪

🍔🍺Við höfum svo bókað borð á Mossley fyrsta laugardag hvers mánaðar í allan vetur fyrir hlaupahópinn en við fáum happy hour á bjór, hvítu og rauðu og 15% afsláttur af öllu à matseðli 😊

Sumarið og sólin kemur aftur áður en við vitum af ☀️🌷🌸

💚 Það er margt á döfinni hjá Hlaupahópi Breiðabliks! 💚🏃‍♀️ Powerade-hlaupin eru að hefjast og verða annan fimmtudag í hv...
08/10/2025

💚 Það er margt á döfinni hjá Hlaupahópi Breiðabliks! 💚

🏃‍♀️ Powerade-hlaupin eru að hefjast og verða annan fimmtudag í hverjum mánuði. Blikar hafa alltaf reynt að fjölmenna — hver skráning gefur eitt stig og í lok mars verða veitt verðlaun fyrir stigahæsta hlaupahópinn! 💪
Eftir hlaupið fara margir í Salalaug, svo ekki gleyma sundfötunum ☺️

🎉 Uppskeruhátíðin verður í lok október og er skemmtinefndin þegar farin að undirbúa veislu! Það má búast við miklu glensi eins og alltaf á þessum viðburðum 🕺💃

✈️ Ferðanefndin er líka á fullu að skipuleggja hlaupaferð næsta haust. Að þessu sinni verður farið til Bled í Slóveníu, þar sem við ætlum að hlaupa um Júlíönsku Alpana í þrjá daga undir leiðsögn 🏔️

💚 Haustnámskeiðið var vel sótt, en það er alltaf hægt að skrá sig í hópinn! Nú er meira að segja hægt að skrá sig með 35% afslætti á XPS 💲

Flottur hópur sem hljóp frá Kópavogslaug í morgun. Enduðum svo í pottinum og burger og bjór á eftir, hin fullkomna þrenn...
27/09/2025

Flottur hópur sem hljóp frá Kópavogslaug í morgun. Enduðum svo í pottinum og burger og bjór á eftir, hin fullkomna þrenna!
Það er alltaf gleði og glens þar sem við erum 💚

Address

Dalsmári 5
Kópavogur
201

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Hlaupahópur Breiðabliks posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share

Category