HeilsuErla

HeilsuErla Fylgið mér endilega á heilsuerla.is og https://www.instagram.com/heilsuerla/

Miðasala er hafin!!!Kvennakvöld HeilsuErlu í samstarfi við Femarelle og Nutrilenk verður haldið á Spírunni í Garðheimum ...
10/09/2026

Miðasala er hafin!!!

Kvennakvöld HeilsuErlu í samstarfi við Femarelle og Nutrilenk verður haldið á Spírunni í Garðheimum laugardaginn 10.október.

Húsið opnar kl.18:15
Fordrykkur og matur innifalinn.

Formleg dagskrá hefst kl.19 og lýkur um kl.22.

Erla Guðmundsdóttir- Heildræn heilsa
Edda Björgvins- Húmor og heilsa
Elísabet Reynis- Næring og heilsa
Halldóra Skúla- Hormónar og heilsa
Kvöldið endar svo á sjúklega skemmtilegu Tingó með Hrund Scheving (Tónlistarbingó)

Að dagskrá lokinni er gestum velkomið að sitja áfram og spjalla og skemmta sér fram á kvöld.

Verð 10900kr. Aðeins 100 miðar í boði.

Ég hvet alla til að mæta tímanlega og njóta matarins eða kíkja á kynningarbása hjá samstarfsaðilum hlaðvarpsins, Virkja , Þ í N F E G U R Ð , Nutrilenk og Femarelle áður en formleg dagskrá hefst.

p.s. ef þig vantar dress fyrir kvöldið mæli ég með að kíkja í verslunina Systurogmakar í Síðumúla 21 eða skoða vefverslun þeirra systurogmakar.is.

Tryggðu þér miða hér: https://ordo.is/event/kvennakvold-heilsu-erlu

Í gær birtist viðtal við mig á mbl.is í gær. Áhugasamir geta fundið fréttina hér: https://www.mbl.is/smartland/heilsa/20...
07/09/2026

Í gær birtist viðtal við mig á mbl.is í gær.

Áhugasamir geta fundið fréttina hér: https://www.mbl.is/smartland/heilsa/2026/09/06/heilsuerla_sterkari_eftir_fertugt/

Brot úr viðtalinu.
Finnst þér þú búa að því í dag að hafa stundað íþróttir frá unga aldri, kannski sérstaklega eftir að þú komst yfir fertugt?

„Já, algjörlega. Ég finn það kannski sérstaklega núna hvað það eru mikil forréttindi að geta hreyft sig, æft verkjalaus og meira að segja keppt og haft gaman af því. Ég held að öll þessi ár í íþróttum hafi gefið mér mjög mikið og að heilsan hafi í raun alltaf verið ákveðinn rauður þráður í gegnum lífið, án þess þó að ég hafi verið eitthvað sérstaklega að rembast við það. Hreyfing hefur bara alltaf verið eðlilegur hluti af mínu lífi.“

Sem íþróttakona, bæði sem iðkandi og menntuð á þessu sviði, hvernig horfir þessi umræða á samfélagsmiðlum við þér – peptíð, „six-pack“, „skinny-tok“ og allt þar á milli?

„Mér finnst þetta ótrúlega sorgleg þróun og hún getur einfaldlega reynst hættuleg. Það er dapurlegt hvað margir eru að leita að einhverri skyndilausn til þess að líta vel út án þess að átta sig endilega á því að það getur komið niður á heilsunni. Núna er til dæmis komið í tísku að vera rosalega grannur og þegar fólk gengur of langt í þá átt getur það haft neikvæð áhrif á vöðvamassann. Vöðvamassi skiptir gríðarlega miklu máli fyrir heilsuna, meðal annars beinheilsu, og ef við hugsum ekki um þessa þætti getur það haft afleiðingar þegar við eldumst, til dæmis aukið hættuna á beinþynningu.“

Taktu frá laugardaginn 10.október.Fræðsla, skemmtun og góður matur. Húsið opnar kl.18:15. Fordrykkur og matur innifalinn...
06/09/2026

Taktu frá laugardaginn 10.október.
Fræðsla, skemmtun og góður matur.

Húsið opnar kl.18:15.
Fordrykkur og matur innifalinn.
Formleg dagskrá hefst kl.19 og lýkur um kl.21:30.
Húsið er opið til kl.23.

Erla Guðmundsdóttir- Heildræn heilsa
Edda Björgvins- Húmor og heilsa
Elísabet Reynis- Næring og heilsa
Halldóra Skúla- Hormónar og heilsa
Hrund Scheving- Tónlistarbingó (Tingó)

Verð 10900kr.
Miðasala hefst í næstu viku- Aðeins 100 miðar í boði.

05/09/2026

Nokkur hljóðbrot úr einlægu viðtali við Hlyn Kristinn Rúnarsson, pabba, lögfræðing, fíkniráðgjafa og stofnanda félagasamtakanna Það er Von um fíkn, hvað hún er í raun og veru, hvernig hún getur haft áhrif á einstaklinginn sjálfan og fólkið í kringum hann og hvers vegna við þurfum að tala um hana með meiri skilningi og minni skömm.

Hlustaðu á þáttinn í heild sinni í hlaðvarpinu Með lífið í lúkunum á þinni uppáhalds hlaðvarpsveitu.

05/09/2026

Rakst á þetta eldgamla vídjó í drafts. Of gott til að deila ekki. 🤣🤣🤣

Kannski borgar sig ekki að vera OF nice

Ekki missa af nýjasta þættinum í hlaðvarpinu! Erla ræðir við Ragnheiði Söru Sigmundsdóttur um ótrúlega þrautargöngu henn...
04/09/2026

Ekki missa af nýjasta þættinum í hlaðvarpinu!

Erla ræðir við Ragnheiði Söru Sigmundsdóttur um ótrúlega þrautargöngu hennar síðastliðin ár en saga Söru snýst alls ekki bara um CrossFit heldur einnig um meiðsli, mótlæti, seiglu, pressu, sjálfsmynd, andlegt þol og það að læra að þekkja sjálfa sig og treysta líkama sínum aftur.

Síendurtekin meiðsli og mótlæti hafa breytt sýn hennar á lífið og hún hefur nú fundið nýjan tilgang.

Hlustaðu á þáttinn í heild sinni í hlaðvarpinu Með lífið í lúkunum á þinni uppáhalds hlaðvarpsveitu.

Í síðustu viku kom Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir afrekskona í CrossFit og gleðisprengja í viðtal til mín. Við ræddum um...
02/09/2026

Í síðustu viku kom Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir afrekskona í CrossFit og gleðisprengja í viðtal til mín.

Við ræddum um ótrúlega þrautargöngu hennar síðastliðin ár en saga Söru snýst alls ekki bara um CrossFit heldur einnig um meiðsli, mótlæti, seiglu, pressu, sjálfsmynd, andlegt þol og það að læra að þekkja sjálfa sig og treysta líkama sínum aftur.

Síendurtekin meiðsli og mótlæti hafa breytt sýn hennar á lífið og hún hefur nú fundið nýjan tilgang.

Hlustaðu á þáttinn í heild sinni á þinni uppáhalds hlaðvarpsveitu.

02/09/2026

Sterkur september 🍂 ókeypis heilsuáskorun

Langar þig að koma þér aftur í þínar góðu venjur eftir sumarfrí og þarft smá aðhald?

Taktu þátt í Sterkum september og nærðu þig andlega, líkamlega og félagslega.

sterkur líkami 💪🏻
sterkur hugur 🧠
sterk næring 🌱
sterk tengsl 🫶
= Sterk heild!

Þetta er afar auðvelt.
1. Kommentaðu hér fyrir neðan eða sendu mér skilaboð og ég sendi þér hlekk. (Hlekk má líka finna í story)
2. Prentaðu út blaðið
3. Skrifaðu inn þær venjur sem þig langar að tileinka þér í september. (1-10 venjur)
4. Merktu við daglega.

Þetta snýst ekki um fullkomnun, bara að gera sitt besta og hafa gaman.

Sterkur september 🍂Langar þig að koma þér aftur í góðar venjur eftir sumarfrí og þarft smá aðhald?Taktu þátt í Sterkum s...
31/08/2026

Sterkur september 🍂

Langar þig að koma þér aftur í góðar venjur eftir sumarfrí og þarft smá aðhald?

Taktu þátt í Sterkum september og nærðu þig andleg, líkamlega og félagslega.

sterkur líkami 💪🏻
sterkur hugur 🧠
sterk næring 🌱
sterk tengsl 🫶
= Sterk heild!

Þetta er afar auðvelt.
1. Sendu mér skilaboð og ég sendi þér hlekk.
2. Prentaðu út blaðið
3. Skrifaðu inn þær venjur sem þig langar að tileinka þér í september. (1-10 venjur)
4. Merktu við daglega.

Þetta snýst ekki um fullkomnun, bara að gera sitt besta og hafa gaman.

Hvað gerist þegar 100 konur koma saman í eina kvöldstund? 💗Það verður ekkert venjulegt kvöld… því get ég lofað. 😉 Hlátur...
29/08/2026

Hvað gerist þegar 100 konur koma saman í eina kvöldstund? 💗

Það verður ekkert venjulegt kvöld… því get ég lofað. 😉 Hlátur. Fræðsla. Tónlist. Matur. Stemmning.

😹 Edda Björgvins
🌱 Beta Reynis
✨ Halldóra Skúla
🎵 Hrund Scheving
🫶 HeilsuErla

📅 10. október á Spírunni
Settu daginn í dagatalið!

Miðasala opnar innan skamms!

Hverri ætlar þú að bjóða með þér? 👇🏼

Address

Kópavogur

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when HeilsuErla posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to HeilsuErla:

Shortcuts

Share

Category