18/06/2026
Skráning á Landsmót.
Skilafrestur til miðnættis 22.júni
Gæðingakeppni
Hvert hestamannafélag ber ábyrgð á skráningu sinna knapa og eins að senda upplýsingar um varahesta og knapa. Í sérstakri forkeppni hefur knapinn val upp á hvora höndina hann vill ríða og því mikilvægt að það sér rétt skráð.
Því er mikilvægt að þeir knapar sem hafa þátttökurétt á LM 26 í öllum flokkum sendi inn upplýsingar á email: [email protected] með upplýsingum um hestinn sinn (IS númer), kennitölu og uppá hvaða hönd þið viljið ríða í sérstöku forkeppninni.
Nauðsynleg er að skrá varahest í hverjum flokk fyrir sig svo hann sé gjaldgengur í keppni á LM 2026 ef hestur forfallast í viðkomandi flokk. Því bið ég þá sem vilja vera varahestar (4 hestur inn ) að senda mér sömu upplýsingar um hest og kennitölu.
Til viðbótar þeim hestum sem vinna sér þátttökurétt á Landsmóti í öllum flokkum í gegnum úrtökur hestamannafélaganna, fá efstu 6 hestar á stöðulistum sem ekki komust inn í gegnum úrtökur hjá sínum félögum, þátttökurétt á Landsmóti. Staða á stöðulistum er tekin að loknum úrtökum hestamannafélaganna sem haldnar eru fyrir kl. 23:59 þann 22. júní 2026. Haft verður sambandi við þá knapa sem komast inn í gegnum stöðulista.
Kær kveðja
Stjórn Ljúfs