11/07/2022
Síðastliðna helgi, dagana 9.-10. júlí fór fram MÍ 11-14 ára á Akureyri. Kormákur átti þar tvo keppendur. Bragi Hólmar Guðmundssons keppti í flokki 13 ára pilta og Ingi Hólmar Guðmundsson keppti í fjölþrautarkeppninni fyrir 11 ára. Fjölþrautarkeppnin er nýtt fyrirkomulag á mótinu þar sem nú er eingöngu veitt verðlaun fyrir samanlagðan árangur úr öllum greinunum s*x sem keppt er í en ekki verðlaun fyrir einstakar greinar. Greinarnar eru 60 m hlaup, 400 m hlaup, langstökk, hástökk, kúluvarp og spjótkast.
Bræðrunum gekk vel um helgna. Ingi Hólmar stóð uppi sem sigurvegari fjölþrautarinnar og þá Íslandsmeistari. Hann átti líka besta árangurinn í langstökki þar sem hann stökk 4,05 m og í spjótkastinu þar sem hann kastaði því 20,57 m. Næst besta árangurinn átti hann í 400 m hlaupinu en hann kom í mark á tímanum 71,22 s. Þriðji varð hann í 60 m hlaupi á 9,28 s og fimmti í hástökki með 1,21. Í kúluvarpi endaði hann í 18. sæti með 5,81 m.
Bragi Hólmar varð Íslandsmeistari í tveimur greinum, hástökki með 1,52 m og í 300 m grindahlaupi en hann kom í mark á tímanum 51,27 s. Þriðji varð hann í 80 m grindahlaupi á 13,89 s og einnig þriðji í 300 m hlaupi á 45,69 s. Fjórði varð hann í 80 m hlaupi (11,23 s) og í langstökki (4,45 m). Fimmti varð hann í þrístökki (9,50 m) og 9. sæti í spjótkasti með 23,19 m. Í kringlukasti varð hann í 12. sæti (15,40 m) og í kúluvarpi í 14. sæti (7,52 m). Að lokum hljóp hann í gestasveit FH í boðhlaupi en þá voru þrír FH-ingar í liðinu ásamt Braga frá Kormáki. Enduðu þeir í þriðja sæti en hlutu engin verðlaun þar sem árangur þeirra telst ekki til verðlauna þar sem þeir koma úr mismunandi liðum. En gaman var þetta í rigningunni.