CF SNB

Call Directions Website

CF SNB CF SNB var stofnað í maí 2019
Kristfríður Rós og Jón Steinar eru eigendur stöðvarinnar.
Þau reka stöðina og er Kristfríður Rós yfirþjálfari í stöðinni.

Viltu koma í einkatíma með hópinn þinn ?Við tökum á móti hópum hvort sem það er vinnustaðurinn, saumaklúbbar, prjónaklúb...
04/11/2026

Viltu koma í einkatíma með hópinn þinn ?

Við tökum á móti hópum hvort sem það er vinnustaðurinn, saumaklúbbar, prjónaklúbbar, vinkonu/vinahópar ofl.

Veldu hvernig tíma þú vilt fá fyrir hópinn þinn og við sjáum svo um restina 🎉

Hafðu samband ef þú vilt bóka fyrir þinn hóp 💌

HREKKJAVÖKU KRAKKAFIT 🎃Við gerðum okkur glaðan dag í gær fyrir haustfríið og tilefni hrekkjavöku á laugardaginn.Allir fe...
29/10/2026

HREKKJAVÖKU KRAKKAFIT 🎃

Við gerðum okkur glaðan dag í gær fyrir haustfríið og tilefni hrekkjavöku á laugardaginn.
Allir fengu að mæta í búning svo var skúffukaka, caprisun og ávextir í boði.
Farið var í allskonar leiki síðan fengu allir smá nammipoka í lok tímans 🕷️🕸️🦇

CF SNB er búið að iða af lífi 💙Frábær mæting í alla tíma og námskeið, og ótrúlega góður andi. Svona viljum við hafa þett...
23/10/2026

CF SNB er búið að iða af lífi 💙

Frábær mæting í alla tíma og námskeið, og ótrúlega góður andi.
Svona viljum við hafa þetta og við höldum áfram að mæta og toppa okkur, fyrir okkur sjálf !

Við erum svo sannarlega rík í Snæfellsbæ því við byggðum upp samfélag hér í CF SNB allt í gegnum hreyfingu, og er þetta meira en bara styrkur með hverri æfingu.

Mætingin hefur verið hrikalega góð síðan í ágúst og viljum við sjá þessa mætingu áfram, en á góðum degi eru 100+ manns að rúlla í gegnum stöðina !
Höldum þessari mætingu áfram fyrir okkur sjálf því það er líka skemmtilegra að mæta og æfa í tíma þegar það er góð mæting.

Hér í stöðinni byggjum við upp styrk með hverri æfingu, eflum einnig tengsl og eflum þannig samfélagið okkar bæði í stöðinni og í Snæfellsbæ og allt saman í gegnum hreyfing 💙

MÖMMUHREYSTI & MORGUNVERÐURVið buðum meðlimum í Mömmuhreysti upp á morgunverð og Homie eftir 40 mín PilatesMat æfingu þe...
23/10/2026

MÖMMUHREYSTI & MORGUNVERÐUR

Við buðum meðlimum í Mömmuhreysti upp á morgunverð og Homie eftir 40 mín PilatesMat æfingu þennan föstudag 💗
Gott að enda vikuna á notalegheitum með krílunum og smá spjalli í orlofinu 🤱🏼🤰🏼👩🏽‍🍼

Við reynum að gera upplifunina hjá meðlimum okkar í CF SNB meiri með því að brjóta upp á æfingarnar með slíkum hætti.

Veitingarnar keyptum við frá Elju kaffihúsinu í Þjóðgarðsmiðstöðinni á Hellissandi.

TÍSTA THE METHOD X HÓTEL BÚÐIR 🤍Mig langaði að skapa helgi sem væri aðeins öðruvísi.Ekki bara æfing.Ekki bara hótelgisti...
08/10/2026

TÍSTA THE METHOD X HÓTEL BÚÐIR 🤍

Mig langaði að skapa helgi sem væri aðeins öðruvísi.
Ekki bara æfing.
Ekki bara hótelgisting.
Heldur upplifun.

Þann 16.–17. janúar 2027 býð ég ykkur með mér á Hótel Búðir í fyrsta TÍSTA THE METHOD RETREAT.
Við byrjum á 50 mínútna styrktaræfingu, fylgjum henni eftir með 30–40 mínútna yoga/slökun með Unu stofnanda Offmode og njótum svo góðs hádegisverðar saman, þar sem hægt verður að velja fiskisúpu eða fisk dagsins, ásamt einu glasi af prosecco 🥂

Þú getur annaðhvort komið bara yfir daginn eða gert þetta að fullkominni hvíld og gist eina nótt á Hótel Búðum með morgunverði.

DAGPASSI 22.900 kr.
Æfing · Offmode · hádegisverður · prosecco

RETREAT MEÐ GISTINGU frá 59.900 kr.
Æfing · Offmode · hádegisverður · prosecco · gisting · morgunverður
Early bird 54.900kr.-

Tveir dagar til að hreyfa þig, styrkjast, slaka á og njóta og í einu fallegasta umhverfi á Íslandi að mínu mati 🤍

Skráning [email protected] | 844 8102

TÍSTA THE METHOD
Hótel Búðir

21/09/2026

Snæfellsbær gerir heilsu hátt undir höfði dagana 23.-30. september og heldur heilsuviku Snæfellsbæjar í níunda skipti. Vikan er haldin á sama tíma og íþróttavika Evrópu.

Í heilsuvikunni er lögð áhersla á að kynna íþróttir, hreyfingu og heilsutengda viðburði sem eru nú þegar í boði í Snæfellsbæ og standa vonir til að allir geti fundið viðburð við hæfi eða sem vekur áhuga.

Jafnframt býður Snæfellsbæjar frítt í sund alla vikuna og þá verða áhugaverðir fyrirlestrar og sérfræðingar á svæðinu sem vert er að kynna sér.

🤝 Íþróttahús og sundlaug Snæfellsbæjar
👏 UMF Víkingur
💪 CF SNB
🏋 Sólarsport líkamsrækt
🐕 Hundahornið
💯 Bowen Anna
+ Hlaupahópur Snæfellsbæjar, Jón Pétur, eldriborgarar og allir hinir sem taka þátt í vikunni fyrir íbúa.

Hér að neðan má sjá glæsilega dagskrá íþróttaviku Evrópu og Snæfellsbæjar árið 2026.

Íbúar eru hvattir til að nýta vikuna vel og skella sér í sund, stunda útivist eða aðra hreyfingu og anda að sér fersku lofti í okkar fallega sveitarfélagi.

💯🤸👇

HEILSUVIKA SNÆFELLSBÆJAR HJÁ CF SNBVið hjá CF SNB erum að sjálfsögðu með í Heilsuviku Snæfellsbæjar í ár, líkt og undanf...
17/09/2026

HEILSUVIKA SNÆFELLSBÆJAR HJÁ CF SNB

Við hjá CF SNB erum að sjálfsögðu með í Heilsuviku Snæfellsbæjar í ár, líkt og undanfarin ár! 🎉

Dagana 23.–30. september verður áherslan á hreyfingu, heilsu, samveru og það að gefa sér tíma til að hugsa vel um sjálfan sig.
Við viljum því nota tækifærið og bjóða öllum í Snæfellsbæ og nágrenni að koma til okkar og prófa það sem við höfum upp á að bjóða í stöðinni okkar 🏋🏼‍♀️

ALLIR ERU VELKOMNIR! 💙

Það skiptir engu máli hvort þú hefur verið að æfa lengi, hefur aldrei æft hjá okkur, ert að koma aftur eftir langt hlé eða ert einfaldlega að leita að skemmtilegri leið til að hreyfa þig.

Allar æfingar eru aðlagaðar að einstaklingnum og við finnum leið fyrir þig til að taka þátt, sama hvert þitt getustig er.
Markmiðið er ekki að allir geri það sama eða lyfti sömu þyngd, markmiðið okkar er að allir geti hreyft sig, haft gaman og upplifað sig velkomna.

Í tilefni Heilsuvikunnar verur frítt í CF SNB dagana 23.–30. september.

Þetta er því fullkomið til að koma sér aftur af stað eða taka skrefið að hreyfingu!

Sjáumst á Heilsuviku Snæfellsbæjar 23.-30. september 💙

07.-13. september Taktu einhvern með þér eða mættu og prufaðu það sem er í boði !Hlökkum til að sjá þig 👋🏼
03/09/2026

07.-13. september
Taktu einhvern með þér eða mættu og prufaðu það sem er í boði !
Hlökkum til að sjá þig 👋🏼

Vertu með okkur í haust/vetur ✨Frí prufuvika í alla tíma 31.ágúst - 06.september
17/08/2026

Vertu með okkur í haust/vetur ✨

Frí prufuvika í alla tíma 31.ágúst - 06.september

Yoga & bandvefslosun 🧘🏼‍♀️
17/08/2026

Yoga & bandvefslosun 🧘🏼‍♀️

Address

Smiðjugata 5
Hellissandur
355

Telephone

+3548448102

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when CF SNB posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share

Nearby gyms & sports facilities


Other Hellissandur gyms & sports facilities

Show All