24/07/2026
Blesi frá Heysholti mun taka á móti hryssum í Árbæjarhjáleigu II sumarið 2026 ❤
Eftir annasamt sumar með knapa sínum Vilhelm Bjarti 10 ára fær Blesi loksins að fara í hólf. Hann er kurteis og tekur iðulega vel á móti 🥰
Þessi einstaklega fallegi 11 vetra hestur hefur allan pakkann
Frábæran lit, frábært geðslag, frábærar gangtegundir og frábært fas! 🤩
F: Jarl frá Árbæjarhjáleigu (aðaleinkunn 8.78)
M: Vakning frá Heysholti
Blesi hefur hlotið fyrstu verðlaun í kynbótadómi 🏆🏆🏆
Fyrir byggingu er Blesi með hvorki meira né minna en 8.58 og þar af 10 fyrir prúðleika, 8.5 fyrir háls/herðar og bóga, bak og lend, samræmi, fótagerð, réttleika og 9.0 fyrir hófa
Fyrir hæfileika er Blesi með 8.42, 8.5 fyrir tölt, 9 fyrir skeið með lýsingunni ferðmikið, sterk yfirlína, taktgott, öruggt. Einnig hefur Blesi hlotið 8.5 hægt tölt, greitt stökk og fegurð í reið og 9 fyrir samstarfsvilja
Blesi hefur í ár m.a. hlotið 8.70 í einkunn í úrslitum í Barnaflokk gæðingakeppni og 6.83 í T7 opnum flokk með knapa sínum Vilhelm Bjarti 🏆🏆🏆
Blesi hefur verið vinsæll undanfarin ár og sjálf höfum við notað hann töluvert 👍
Fyrstu afkvæmin eru komin á tamningaraldur og eru fallega byggð og lundgóð. Þau eru fasmikil eins og Blesi og ganglag lofar mjög góðu.
Verðið er 120.000 kr m/vsk. Innifallið er folatollur og hagagjald.
Til þess að panta fyrir þína hryssu er hægt að senda mér skilaboð hér eða á [email protected] eða í s: 8467960.