Flughátíðin Allt sem flýgur

Flughátíðin Allt sem flýgur Hápunktur flugsumarsins er flughátíðin Allt sem flýgur á Hellu. Stanslaust flug alla helgina, karamellurigning, grillveisla og skýlisball.

15/07/2026

Allir dansa konga

Flugmálafélag Íslands þakkar öllum gestum og gangandi fyrir komuna á Flughátíðin allt sem flýgur 2026. Hátíðin gekk vel ...
12/07/2026

Flugmálafélag Íslands þakkar öllum gestum og gangandi fyrir komuna á Flughátíðin allt sem flýgur 2026. Hátíðin gekk vel þrátt fyrir döpur flugveðurskilyrði á laugardeginum. Allir sem mættu voru með bros á vör og nutu þess sem var í boði.

Félagið vill líka þakka öllum þeim sjálfboðaliðum sem hjálpuðu við að tryggja vel heppnaða hátíð. Án ykkar væri þetta ekki hægt.

Endilega deilið myndum og myndefni.

Sjáumst á Hellu á Allt sem flýgur 2027!

11/07/2026
Stórhljómsveitin byrjar að spila kl 22 í kvöld. Algerir meistarar. Drykkir gegn vægu gjaldi: Rautt, hvítt, bjór og gos! ...
11/07/2026

Stórhljómsveitin byrjar að spila kl 22 í kvöld. Algerir meistarar. Drykkir gegn vægu gjaldi: Rautt, hvítt, bjór og gos! Þetta verður eitthvað!

11/07/2026

Karamellukastið frá öðru sjónarhorni!

Það þarf enginn að grilla í kvöld. Veislan verður á sínum stað. Lambalæri og kjúklingur ásamt dýrindis meðlæti. 3.500 fu...
11/07/2026

Það þarf enginn að grilla í kvöld. Veislan verður á sínum stað. Lambalæri og kjúklingur ásamt dýrindis meðlæti. 3.500 fullorðnir, 1.750 12-18 ára, 0-11 ára ókeypis. Byrjum kl 18:00 en gestir geta komið til 19:00. Þarf ekki að panta fyrirfram.

11/07/2026

Sjoppan opin og varningur til sölu. Bolirnir í takmörkuðu upplagi. Selt í grillið í kvöld - fyrst kl 18:00, 18:30 og 19:00.

Þeir gestir hátíðarinnar sem koma fljúgandi eru vinsamlegast beðnir um að kynna sér efni NOTAM sem hefur verið gefið út ...
09/07/2026

Þeir gestir hátíðarinnar sem koma fljúgandi eru vinsamlegast beðnir um að kynna sér efni NOTAM sem hefur verið gefið út og gildir um helgina. Þar segir að braut 04/22 sé aðal brautin og þverbrautin sé lokuð nema í neyð. Umferðarhringur er austan við flugvöllinn. Tíðnin er 118.4 Mhz og menn kalla sig inn c.a. 5 NM frá flugvellinum. Flugvöllurinn er óstjórnaður og því mikilvægt að flugmenn tali saman.

Við biðjum þá sem eru að koma á Hellu (inbound) að halda sig undir 1.500 fetum og þá sem eru að fara frá Hellu (outbound) eða fljúga framhjá að vera í 1.500 fetum eða ofar.

Við biðjum flugmenn jafnframt um að sýna nágrönnum flugvallarins tillitssemi bæði á Hellu sem og á bæjunum í kring og lágmarka lágflug yfir þessa staði. Hátíðin er unnin í miklu og góðu samstarfi við þessa aðila og viljum við halda því góða samstarfi áfram.

Lágflug yfir tjaldsvæði er með öllu bannað.

Hér er hægt að skoða kort með nokkrum punktum í nágrenni flugvallarins sem er hægt að nota sem stöðumið.

https://www.google.com/maps/d/u/2/embed?mid=1yfysAsm5KrL5IxI4fJ9BWCJqdR1zBVpU&ehbc=2E312F

Flughátíðin allt sem flýgur 2026

Allt sem flýgur

Nú styttist í Flughátíðina hjá okkur. Við höfum fylgst grannt með veðurspám og sjáum að þær eru með okkur þetta árið. Vi...
09/07/2026

Nú styttist í Flughátíðina hjá okkur. Við höfum fylgst grannt með veðurspám og sjáum að þær eru með okkur þetta árið. Vissulega ekki heitasti staður á landinu þessa helgina en við verðum að mestu laus við úrkomu, sól á köflum og enginn sem þarf að kvarta yfir hita. Meðfylgjandi er skjáskot frá Bliku en spáin hjá þeim byggir á gervigreind til viðbótar við spálíkön. Sjáumst í góðum fluggír á Hellu!

Flughátíðin allt sem flýgur 2026

Flughátíðin allt sem flýgur 2026 er handan við hornið. Hér fara forseti og varaforseti Flugmálafélagsins yfir það helsta...
08/07/2026

Flughátíðin allt sem flýgur 2026 er handan við hornið. Hér fara forseti og varaforseti Flugmálafélagsins yfir það helsta sem henni tengist.

Address

Hella Airport
Hella
850

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Flughátíðin Allt sem flýgur posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Flughátíðin Allt sem flýgur:

Shortcuts

Share