Fimleikafélagið Björk

Fimleikafélagið Björk Þetta er opinber heimsíða fyrir Fimleikafélagið Björk í Hafnarfirði.
Á þessari síðu koma

Enn er laust í Krílafimleika fyrir kríli fædd 2025 🤩 Skráning fer fram á Abler!
02/09/2026

Enn er laust í Krílafimleika fyrir kríli fædd 2025 🤩 Skráning fer fram á Abler!

CRAFT verslun kemur til okkar miðvikudaginn 2. september frá kl. 15:00 – 18:30 með Bjarkargallann og Bjarkarfatnað til s...
01/09/2026

CRAFT verslun kemur til okkar miðvikudaginn 2. september frá kl. 15:00 – 18:30 með Bjarkargallann og Bjarkarfatnað til sölu.

Við hvetjum foreldra að nýta sér tækifærið og næla í íþróttagalla félagsins fyrir allar deildir og Bjarkarvörur fyrir komandi vetur.

https://craftverslun.is/collections/bjork-fimleikar

Áfram Björk 💙

Craft er alþjóðlegt íþróttavörumerki sem hóf starfsemi 1977 og framleiðir hágæða fatnað fyrir flestar íþróttir sem hafa notið mikilla vinsælda um langt skeið. Á síðustu árum hefur Craft haslað sér völl á liðamarkaðnum með frábærum árangri þar sem má telja fjölda l...

Skráning í allar deildir félagsins opna 5.ágúst kl. 10:00 á Abler. Áfram Björk! 💙
04/08/2026

Skráning í allar deildir félagsins opna 5.ágúst kl. 10:00 á Abler.

Áfram Björk! 💙

Ingibjörg Erla með brons á Portugal Open! 🥉Helgina 24.-26.júlí tók íslenska landsliðið í taekwondo þátt í Portugal Open,...
28/07/2026

Ingibjörg Erla með brons á Portugal Open! 🥉

Helgina 24.-26.júlí tók íslenska landsliðið í taekwondo þátt í Portugal Open, alþjóðlegu G-1 stigamóti. Yfir þúsund keppendur voru skráðir til leiks en mótið fór fram í Porto, Portúgal.

Ingibjörg Erla Grétarsdóttir keppti í -62 kg flokki fullorðinna, en alls voru 20 keppendur skráðir í flokkinn. Hún sat hjá í 32 manna úrslitum en mætti síðan spænskum keppanda í 16 manna úrslitum. Þar vann hún öruggan 2–0 sigur!

Í átta manna úrslitum mætti Ingibjörg sterkum keppanda frá Frakklandi. Eftir spennandi viðureign tryggði hún sér 2–1 sigur og sæti í undanúrslitum 🤩

Í undanúrslitum mætti Ingibjörg firnasterkum keppanda frá Ekvador og varð að játa sig sigraða. Keppandinn frá Ekvador vann síðar úrslitaviðureignina og stóð uppi sem sigurvegari mótsins í flokknum!

Ingibjörg Erla tryggði sér þar með bronsverðlaun eftir frábæra frammistöðu gegn sterkum alþjóðlegum keppendum. Árangurinn er afar glæsilegur á jafn fjölmennu og sterku móti og Portugal Open og veitir henni mikilvæg stig á heimslista World Taekwondo! 😍

Auk Ingibjargar Erlu kepptu Guðmundur Flóki Sigurjónsson og Leo Anthony Speight fyrir hönd Íslands á mótinu. Þetta eru þriðju alþjóðlegu verðlaun landsliðsins á þessu ári þar sem Flóki tryggði sér einnig brons á British open og svo vann Leo silfurverðlaun á Bosnia Open.

Fimleikafélagið Björk óskar Ingibjörgu Erlu innilega til hamingju með bronsverðlaunin og íslenska hópnum öllum til hamingju með frammistöðuna á mótinu!
Við erum ótrúlega stolt af afreksíþróttafólkinu okkar 🤩

Áfram Björk! 💙

Fimleikafélagið Björk 75 ára! 💙Fimleikafélagið Björk var stofnað 1.júlí 1951 í Hafnarfirði. Tildrög stofnunarinnar var a...
01/07/2026

Fimleikafélagið Björk 75 ára! 💙

Fimleikafélagið Björk var stofnað 1.júlí 1951 í Hafnarfirði. Tildrög stofnunarinnar var að hópur stúlkna á táningsaldri hóf að æfa fimleika undir leiðsögn Þorgerðar M. Gísladóttur íþróttakennara, haustið 1949. Þorgerður var jafnframt fyrsti formaður félagsins.

Félagið sendir hlýju og þakkarkveðjur til alls starfsfólks, iðkenda, og sjálfboðaliða sem hafa síðastliðin 75 ár verður partur af sögu félagsins. Við horfum björtum augum til næstu 75 ára með öllu Bjarkarfólki nær og fjær.

Afmælinu var fagnað með hátíðarkvöldi í Flensborg þann 6.júní.sl. Þar mætti fjöldi manns og áttum við saman góða stund þar sem gamlir og góðir tímar voru rifjaðir upp og hluti af því frábæra fólki sem hefur staðið við félagið á einn eða annan hátt fékk viðurkenningu og Hafsteinn Þórðarson var gerður að heiðursfélaga. Við þökkum öllum þeim sem fögnuðu með okkur fyrir ánægjulega kvöldstund ✨

Við fögnum þessum merka afmælis áfanga, þökkum brautryðjendum fyrri ára fyrir allt sitt starf, hlökkum til framtíðarinnar með komandi kynslóðum og stöndum saman, enda væri ekkert félag án þjálfara, sjálfboðaliða og að sjálfsögðu okkar flottu iðkenda, til hamingju með daginn öllsömul 💙

Meðfylgjandi er brot af myndbandi sem gert var í tilefni afmælisins og verður birt í fullri lengd síðar í sumar.

https://www.youtube.com/watch?v=Jhcxa1UBiRU

Leo Anthony og Ingibjörg Erla kepptu á sterkum alþjóðlegum stigamótum 😍Við óskum Leo og Ingibjörgu til hamngju með árang...
24/06/2026

Leo Anthony og Ingibjörg Erla kepptu á sterkum alþjóðlegum stigamótum 😍

Við óskum Leo og Ingibjörgu til hamngju með árangurinn og erum stolt af afreksíþróttafólkinu okkar! Frétt inn á heimasíðu félagsins!

Áfram Björk! 💙

Nýliðna helgi fóru Leo Anthony Speight og Ingibjörg Erla Grétarsdóttir til Bosníu til að keppa á tveimur fyrna sterkum alþjóðlegum stigamótum sem gilda til stiga á heims- og Ólympíulistum World Tekwondo. Á laugardag var komið að fyrra móti ferðarinnar European Club Championship ...

🎉 Dregið hefur verið í happdrætti Fimleikafélagsins Björk! 🎉Við viljum þakka öllum sem keyptu miða og studdu félagið. 💙N...
23/06/2026

🎉 Dregið hefur verið í happdrætti Fimleikafélagsins Björk! 🎉

Við viljum þakka öllum sem keyptu miða og studdu félagið. 💙

Nú hefur verið dregið úr öllum seldum miðum og vinningaskrá er birt hér fyrir neðan. Við óskum öllum vinningshöfum innilega til hamingju! 🥳

Vinningshafar geta sótt vinninga sína á skrifstofu félagsins frá og með morgundeginum.

Takk kærlega fyrir stuðninginn

Við viljum þakka öllum sem keyptu miða og studdu félagið. 💙Nú hefur verið dregið úr öllum seldum miðum og vinningaskrá er birt hér fyrir neðan. Við óskum öllum vinningshöfum innilega til hamingju! 🥳Vinningshafar geta sótt vinninga sína á skrifstofu félagsins frá og með...

Address

Haukahraun 1
Hafnarfjörður
220

Opening Hours

Monday 10:00 - 17:00
Tuesday 10:00 - 17:00
Wednesday 10:00 - 17:00
Thursday 10:00 - 17:00
Friday 10:00 - 17:00

Telephone

+3544160160

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Fimleikafélagið Björk posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Fimleikafélagið Björk:

Share