Haukar körfubolti

Haukar körfubolti Haukar basketball club

HUGI KVEÐUR HAUKAHugi Hallgrímsson sem leikið hefur stórt hlutverk með Haukum undanfarin ár hefur ákveðið að færa sig um...
18/06/2026

HUGI KVEÐUR HAUKA

Hugi Hallgrímsson sem leikið hefur stórt hlutverk með Haukum undanfarin ár hefur ákveðið að færa sig um set suður með sjó og leika með Njarðvík í Bónusdeildinni.

Við sjáum á eftir mjög góðum leikmanni og fyrirliða sem hefur verið lykilmaður í liði Hauka og var jafnframt valinn í úrvalslið 1.deildar eftir síðasta tímabil.

Kkd. Hauka þakkar Huga kærlega fyrir hans framlag til félagsins og óskar honum alls hins besta á nýjum vettvangi.

Frekari fregnir af leikmannamálum munu birtast næstu daga.

VIKTOR TEKUR VIÐ HAUKUMÞað er ánægjulegt að tilkynna nýjan þjálfara fyrir meistaraflokk kvenna. Viktor Marinó sem var að...
16/06/2026

VIKTOR TEKUR VIÐ HAUKUM

Það er ánægjulegt að tilkynna nýjan þjálfara fyrir meistaraflokk kvenna. Viktor Marinó sem var aðstoðarþjálfari sl. tvö ár mun taka við keflinu af Emil Barja. Viktor hefur þjálfað lengi elstu yngri flokka m.a. Stjörnunni og Haukum og verið aðalþjálfari yngri landsliða.

Þetta er stórt skref fyrir ungan þjálfara en Viktor hefur sýnt að hann er upprennandi og efnilegur þjálfari. Hann mun byggja á sinni reynslu undanfarin ár, þekkir leikmannahópinn mjög vel og er frábær kostur fyrir liðið.

Viktor hafði þetta að segja: “Það er mikill heiður að fá tækifæri til að stýra Haukaliðinu á komandi tímabili. Liðið er uppfullt af hæfileikaríkum heimamönnum og leikmönnum sem hafa verið lengi í félaginu. Ég þekki hópinn vel og hef ótrúlega mikla trú á hópnum og verkefninu framundan. Við byrjum snemma og teljum okkur eiga inni frá því fyrra og ég fer fullur tilhlökkunar inn í komandi tímabili”.

Þóra Kristín leikmaður liðsins hafði þetta að segja: “Ég er mjög ánægð að fá Viktor inn sem aðalþjálfara liðsins. Hann byggir á því sem hann og Emil unnu að sl. 2ár og kemur til með að bæta ofan á það. Leikmannaópurinn er mjög samstilltur og er tilbúinn í næsta tímabil með Viktor sem aðalþjálfara”.

Við bjóðum Viktor velkominn til leiks en undirbúningur fyrir næsta tímabil er þegar hafinn

Áftam Haukar💪❤️🏀

Haukar hljóta styrk til að efla farsæld barna í körfuknattleiksstarfiKörfuknattleiksdeild Hauka hefur hlotið styrk úr Fa...
10/06/2026

Haukar hljóta styrk til að efla farsæld barna í körfuknattleiksstarfi

Körfuknattleiksdeild Hauka hefur hlotið styrk úr Farsældarsjóði mennta- og barnamálaráðuneytisins til að þróa og innleiða verklag sem styður við farsæld barna og ungmenna í íþróttastarfi.

Verkefnið, sem ber heitið „Stígum farsældarskref í körfunni“, snýst um að byggja upp markvissa umgjörð utan um börn, foreldra og þjálfara með það að markmiði að efla vellíðan, öryggi og þátttöku allra iðkenda.

Körfuknattleiksdeild Hauka vill þakka mennta- og barnamálaráðuneytinu fyrir traustið og hlakkar til að nýta verkefnið til að styrkja enn frekar það mikilvæga starf sem unnið er með börnum og ungmennum á hverjum degi. „Við erum afar stolt af þessari úthlutun. Hún er viðurkenning á því mikilvæga starfi sem unnið er innan Hauka og gefur okkur tækifæri til að stíga enn stærri skref í að bjóða upp á öruggt og uppbyggilegt umhverfi fyrir börn og ungmenni,“ segir Brynjar Þór Þorsteinsson, formaður körfuknattleiksdeildar Hauka.

Áhersla verður lögð á fræðslu og stuðning við þjálfara, öflugt foreldrasamstarf, markvissari upplýsingamiðlun og eftirfylgni með iðkendum, bætt viðbrögð við áskorunum sem geta komið upp í starfinu ásamt uppbyggingu gæðakerfis sem styður við vellíðan og jákvætt félagslegt umhverfi.

„Af eigin reynslu veit ég hversu mikilvægt það er fyrir barn að tilheyra liði og eiga öruggan stað innan íþróttafélags. Með þessum styrk getum við byggt upp sterkari umgjörð í kringum börnin okkar og skapað varanlegt kerfi sem styður við iðkendur, foreldra og þjálfara. Markmiðið er að hvert barn upplifi að það skipti máli og eigi sinn stað í Haukafjölskyldunni.“ segir Benedikt S. Benónýsson, formaður Barna- og unglingaráðs körfuknattleiksdeildar Hauka.

Sumaríþróttaskóli Hauka er framundan og hefst 15.júní, áfram Haukar.
09/06/2026

Sumaríþróttaskóli Hauka er framundan og hefst 15.júní, áfram Haukar.

Sumaríþróttaskóli Hauka hefst 15 júní næstkomandi en þar bjóða boltagreinar félagsins uppá námskeið þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, félagsskap og þjálfun við allra hæfi.

Skráning á vikunámskeið og í hádegismat fer fram í gegnum Abler.
https://www.abler.io/shop/haukar/sumarskoli

Allar nánari upplýsingar
https://www.haukar.is/sumarithrottaskoli-hauka-2026/

🔴HAUKAR - FÉLAGIÐ MITT🔴

FULLTRÚAR HAUKA Í YNGRI LANDSLIÐUMLokahópar yngri landsliðanna hafa verið valdir fyrir landsliðsverkefni sumarsins og ei...
06/06/2026

FULLTRÚAR HAUKA Í YNGRI LANDSLIÐUM

Lokahópar yngri landsliðanna hafa verið valdir fyrir landsliðsverkefni sumarsins og eiga Haukar efnilega leikmenn sem valdir voru í lokahópana til að keppa á norðurlandamóti og Evrópumóti. U20 ára landsliðshópur karla verður tilkynntur í næstu viku.

Luciana Líf Björnsdóttir - U15 stúlkna
Eva Bryndís Ingadóttir - U16 stúlkna
Hildur E. Kristinsdóttir -U16 stúlkna
Sindri Logason - U16 drengja
Arnheiður Ólafsdóttir - U18 kvenna

Haukar eru afar stoltir af þessum iðkendum og óskar þeim góðs gengis í æfingum og keppni framundan.

Áfram Haukar.

ÓLAFSSALUR NÝR HEIMAVÖLLUR ICEBOXKörfuknattleiksdeild Hauka og Davíð Bjarnason, mótshaldari Icebox, hafa náð samkomulagi...
03/06/2026

ÓLAFSSALUR NÝR HEIMAVÖLLUR ICEBOX

Körfuknattleiksdeild Hauka og Davíð Bjarnason, mótshaldari Icebox, hafa náð samkomulagi um að ICEBOX verði haldið í Ólafssal næstu 2 skipti að minnsta kosti.

ICEBOX er stærsta hnefaleikakeppni á Íslandi og næsti viðburður verður föstudagskvöldið 12.júní en nálgast má frekari upplýsingar og miða hér að neðan.

https://tix.is/event/21663/icebox

KRISTÓFER BREKI ÁFRAM HJÁ HAUKUM Kristófer Breki Björgvinsson hefur skrifað undir 2ja ára samning við Hauka og verður þv...
01/06/2026

KRISTÓFER BREKI ÁFRAM HJÁ HAUKUM

Kristófer Breki Björgvinsson hefur skrifað undir 2ja ára samning við Hauka og verður því áfram hjá sínu uppeldisfélagi næsta vetur í baráttunni um sæti í Bónusdeildinni.

Kristófer Breki varð fyrir slæmum meiðslum í fyrra en eftir stífa endurhæfingu hefur hann jafnað sig á þeim. Hann sýndi frábæra leiki með ungmennaflokki félagsins á dögunum og átti stóran þátt í að tryggja liðinu titilinn. Kristófer Breki hefur verið fastamaður í yngri landsliðum Íslands og verið valinn einn af efnilegustu leikmönnum í Evrópu. Óhætt er því að segja að hann sé eftirsóttur leikmaður.

Pétur þjálfari hafði þetta að segja:”Það er mjög sterkt að fá Kristófer Breka inn í liðið, hann er mjög hæfileikaríkur Haukastrákur og á eftir að hjálpa okkur mikið. Við viljum byggja á þeim grunni sem er í félaginu og að tryggja sér krafta Kristófers er stór liður í þeirri stefnu.”

Haukar eru mjög ánægðir með að halda Kristófer Breka áfram hjá sinu félagi en hann er lykilmaður í þeim íslenska kjarna sem liðið er byggt í kringum og eru uppaldir Haukastrákar.

Áfram Haukar 🏀❤️💪

01/06/2026

Kristófer Breki - 2ja ára samningur 🤝

LOKAHÓF MEISTARAFLOKKAUm síðustu helgi fór fram lokahóf meistaraflokkana þar sem tímabilið var gert upp og verðlaun voru...
31/05/2026

LOKAHÓF MEISTARAFLOKKA

Um síðustu helgi fór fram lokahóf meistaraflokkana þar sem tímabilið var gert upp og verðlaun voru veitt. Eftirfarandi leikmenn fengu verðlaun fyrir tímabilið.

FYRSTI LEIKUR
Ásdís Freyja Georgsdóttir
Mikael Óli Jónsson
Ævar Örn Marelsson

100 LEIKIR
Agnes Jónudóttir
Alex Rafn Guðlaugsson

150 LEIKIR
Breki Gylfason
Sigrún Björg Ólafsdóttir
Tinna Guðrún Alexandersdóttir

300 LEIKIR
Sólrún Inga Rósants Gísladóttir

350 LEIKIR
Rósa Björk Pétursdóttir
Þóra Kristín Jónsdóttir

LEIKMENN ÁRSINS AÐ MATI STUÐNINGSMANNA
Alex Rafn Guðlaugsson
Sigrún Björg Ólafsdóttir

MESTU FRAMFARIR
Ásdís Freyja Georgsdóttir
Gerardas Slapikas

VARNARMARÐUR ÁRSINS
Alex Rafn Guðlaugsson
Sigrún Björg Ólafsdóttir

EFNILEGASTI LEIKMAÐURINN
Arnheiður Ísleif Ólafsdóttir
Frosti Valgarðsson

MIKILVÆGASTI LEIKMAÐURINN
Hugi Hallgrímsson
Þóra Kristín Jónsdóttir

TAKK EMIL BARJAEmil Barja hefur ákveðið að færa sig um set og taka við karlaliði Stjörnunnar. Við í Haukum sjáum eftir m...
29/05/2026

TAKK EMIL BARJA

Emil Barja hefur ákveðið að færa sig um set og taka við karlaliði Stjörnunnar. Við í Haukum sjáum eftir mjög góðum þjálfara og persónu úr félaginu sem hefur náð frábærum árangri í gegnum árin með hina ýmsu flokka. Stærstu afrekin eru auðvitað þau sem unnust á sl. tveimur árum með kvennaliðið. Deildarmeistarar 2025 og 2026, Íslandsmeistaratitill 2025 og silfur 2026.

Emil Barja vill koma eftirfarandi á framfæri:
"Það hefur verið virkilega gaman að vinna með öllu fólkinu í kringum Hauka, leikmönnum, stjórnarfólki, sjálfboðaliðum og stuðningsmönnum. Haukar er frábær klúbbur sem ég er stoltur að hafa verið hluti af.
Takk fyrir mig, ég mun alltaf fylgjast með og óska Haukum alls hins besta áfram".

Haukar eru þegar byrjaðir að leita að eftirmanni Emils og ætti það að skýrast fljótlega.

Áfram Haukar.

Address

Ásvellir 1
Hafnarfjörður
221

Opening Hours

Monday 09:00 - 17:00
Tuesday 09:00 - 17:00
Wednesday 09:00 - 17:00
Thursday 09:00 - 17:00
Friday 09:00 - 17:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Haukar körfubolti posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share