apríl 1931 var Knattspyrnufélagið Haukar stofnað af þrettán strákum á aldrinum 11 til 17 ára og þegar árið 2011 gengur í garð er því tilefni til að fagna 80 ára afmælinu með glæsibrag. Iðkendur Hauka eru nú á þriðja þúsund í s*x deildum auk öflugs starfs í öldungaráði, stuðningsmannaklúbbnum Haukar í horni og skemmtilegu og vaxandi starfi í getraunleiknum 1x2. Í hverri viku fara um 5 – 7 þúsund ma
nns í gegnum íþróttahúsið/svæðið á Ásvöllum svo það er margt um manninn og mikið um að vera. Flestir þeirra viðburða sem verða á afmælisárinu eru atburðir sem hafa verið fastir liðir hjá Haukum en verða haldnir í ár með afmælisyfirbragði. Að sjálfsögðu eru svo nýjir atburðir á dagskrá, enda gaman að gleðjast á merkum tímamótum. Herrakvöld Hauka verður á sínum stað þann 29. janúar og er búist við miklu fjölmenni enda markmiðið að slá aðsóknarmetið sem sett á var á þessu ári.
Í byrjun apríl verður opnuð sögusýning Hauka sem stendur yfir í apríl og maí. Afmælishelgin sjálf verður undirlögð af spennandi viðburðurðum. apríl verður barna- og unglingaskemmtun á Ásvöllum, laugardaginn 9. apríl tökum við daginn snemma en þá stendur Almenningsdeild Hauka fyrir afmælishlaupi með tímatöku og búningakeppni. Eftir það ættu allir að verða tilbúnir í afmælisgalakvöld þar sem þemað verður upphafsár félagsins og verður dansað fram á rauðan morgunn. Afmælisdaginn sjálfan 12. apríl verður kaffisamsæti þar sem formlega útgáfa af sögu Hauka 1991 -2011 kemur út en 1991 kom út bókin “Haukar í 60 ár” skráð af Lúðvíki Geirssyni. Fjölskyldudagur verður á Ásvöllum í júní í tengslum við íþróttaskóla Hauka og afmælisgolfmót í ágúst þar sem keppt verður um rauða jakkann enn og aftur. Í október verður svo kvennakvöldið á sínum stað. Fréttablað félagsins Haukur mun koma út í veglegri afmælisútgáfu á árinu og verður dreift á hvert heimili og fyrirtæki í Hafnarfirði. Þar verður atburðum ársins gerð góð skil, birt verða viðtöl við Hafnfirðinga á öllum aldri , farið verður yfir sögu félagsins, sagðar Haukafréttir og margt fleira. Listinn hér að ofan er engan veginn tæmandi enda mikið um að vera á hverjum degi á Ásvöllum, æfingar frá morgni til kvölds, keppnir og mót af öllum toga, alltaf stuð og stemning