Lína G. - ÍAK Einkaþjálfari

Lína G. -  ÍAK Einkaþjálfari ÍAK Einkaþjálfari - Keilir 2012
Foam Flex kennari - 2013
TFW (Traning for warriors) Instructor level 1 - 2013
TFW Instructor level 2 - 2014 www.keilir.net

Lína Guðnadóttir heiti ég og er menntaður ÍAK Einkaþjálfari frá Keili. Ég er með einka - hóp - og fjarþjálfun. Einkaþjálfun er í boði 2x eða 3x í viku eftir því hvort fólk vill. Hópþjálfun er í boði 2x í viku. Í fjarþjálfun hitti ég einstaklinga í byrjun og lok tímabilsins. Í hverri viku er sendur út matseðill ásamt ýmsum fróðleik til gagns og gamans.. Hvert tímabil er 4 vikur.
Ég fitu- og ummálsm

æli, líkamsstöðugreini og bý til prógrömm fyrir einstaklinga útfrá greiningu ásamt þeim markmiðum sem hver og einn setur sér og vill stefna að.
Ég starfa hjá HRESS á Ásvöllum í Hafnarfirði. Endilega hikaðu ekki við að hafa samband ef þú hefur frekari fyrirspurnir. [email protected] eða í síma 698 7713

Hvað er ÍAK Einkaþjálfari og hver eru markmiðin með því námi? Markmiðið með náminu er að skapa framúrskarandi einkaþjálfara sem hafa yfirgripsmikla þekkingu á heilbrigði einstaklingsins og hæfni til að búa til einstaklingsmiðaðar þjálfunaráætlanir á sviði styrktar- og þolþjálfunar sem miða að því að hámarka árangur og lágmarka meiðsl.
Þau atriði sem aðskilja ÍAK einkaþjálfaranámið frá öðrum einkaþjálfaranámum eru:
Áhersla er á heilbrigði einstaklingsins, meiðslaforvarnir og uppbyggingu eftir meiðsl. Kennt er hvernig er ákjósanlegast að setja upp æfingarkerfi með meiðslaforvarnir í huga og hvernig er hægt að þjálfa einstaklinga með væg stoðkerfameiðsl. Kenndar eru fjölda margar æfingar sem eru viðeigandi við þjálfun á einstaklingum með bak-, axlar- eða hnémeiðsl. Mikil áhersla er á verklega kennslu samhliða þeirri bóklegu þar sem starf einkaþjálfarans er fyrst og fremst verklegt starf. Farið er sérstaklega vel í allar æfingar og teygjur og nemendum skipt niður í hópa til að læra þær sem best.
Þjálfunarfræðin miðast ekki við “eitt æfingakerfi fyrir alla” heldur er nemendum kennt að greina stoðkerfi einstaklinga út frá líkamsstöðu og hreyfingu. Styrktar- og teygjuþjálfun í kjölfarið byggir á þessum greiningum til að ná hámarksárangri og lágmarka meiðsl.
Í ÍAK einkaþjálfaranáminu er kennd sálfræði með áherslu á æfingasálfræði sem snertir starf einkaþjálfara að stórum hluta. Farið er í markmiðssetningu, samskiptatækni, hvatningu og margt fleira því tengt. Djúpt er farið í næringarfræði í ÍAK einkaþjálfaranáminu þar sem skjólstæðingar einkaþjálfara gera miklar kröfur um næringarfræðiþekkingu hjá þeim. Megin áhersla er lögð á hefðbundna næringarfræði en einnig eru fleiri fletir næringarfræðinnar kynntir í formi gestafyrirlestra.
ÍAK módelið
ÍAK módelið var hannað með þjálfunarhugmyndafræði ÍAK einkaþjálfunar að leiðarljósi; að hámarka árangur og lágmarka meiðsl. Öll þjálfun hefst á neðsta þrepinu og svo er unnið upp á kerfisbundinn hátt í átt að hámarks árangri eftir því sem styrkur eykst.

...Það er kannski satt að það eigi ekki að leika sér með matinn... En það er gaman að bera hann skemmtilega fram. Hér er...
08/12/2015

...Það er kannski satt að það eigi ekki að leika sér með matinn... En það er gaman að bera hann skemmtilega fram.
Hér er ein aðventuleg hugmynd - Gúrka skorin út eins og jólatré - komið fyrir í hvítum snjó ( ídýfu ) sem gæti verið sýrður rjómi með hvítlauk eða ab mjólk með kryddi. Skreytt með viðarbútum úr saltstöngum sem er staflað upp.
Skemmtileg hugmynd á aðventu hlaðborðið ekki satt? 🎄

Það ekki bara hressir og kætir líkama og sál að hreyfa sig heldur er það gott og styrkjandi fyrir hjarta og æðakerfi. Vi...
11/09/2015

Það ekki bara hressir og kætir líkama og sál að hreyfa sig heldur er það gott og styrkjandi fyrir hjarta og æðakerfi. Við fáum gæðaríkari svefn, léttari lund og sterkari líkama.
Gefðu þér tíma í dag fyrir heilsuna - svo hún verði ekki bara góð heldur jafnvel betri á morgun.
Ég er búin að rífa í lóðin í dag.. Hvað ætlar þú að gera?
Góða helgi

Það er fátt meira hressandi en að byrja daginn á heitu sítrónuvatni með kókosolíu. Sítrónan hjálpar líkamanum í átt að b...
09/09/2015

Það er fátt meira hressandi en að byrja daginn á heitu sítrónuvatni með kókosolíu.
Sítrónan hjálpar líkamanum í átt að basísku jafnvægi, er mjög hreinsandi og rík af C vítamíni. Kókosolían ekki bara smyr okkur að innan og hefur jákvæð áhrif á fitubrennslu og meltinguna, heldur er hún bakteríudrepandi og sótthreinsandi í leiðinni.
-Kreistu 1/4 sf sítrónu út í heitt soðið vatn og hrærðu 1 tsk sf kókosolíu útí.... Njóttu vel

Ég er einlægur aðdáandi grænna safa - og reyni að drekka glas á dag af einum slíkum. Það eru til margar góðar uppskrifti...
05/09/2015

Ég er einlægur aðdáandi grænna safa - og reyni að drekka glas á dag af einum slíkum.
Það eru til margar góðar uppskriftir og læt ég fylgja hér með eina af mínum uppáhalds
3 dl vatn
Safi úr 1/2 sítrónu eða 1 lime
3 stk grænkálsblöð
Vænn biti engifer - eftir smekk
1/3 hluti af gúrku
Nett hnefafylli af piparmyntu
1 grænt epli
Allt blandað saman í mixer - síjað í gegnum grisju eða þar tilgerðan síjupoka.
Hellt í ílát með loki - geymist í kæli í 3-4 daga

Haustið er handan við hornið - er að taka niður bókanir fyrir september - byrjum af krafti 2.september! Hikaðu ekki við ...
26/08/2014

Haustið er handan við hornið - er að taka niður bókanir fyrir september - byrjum af krafti 2.september!
Hikaðu ekki við að hafa samband - þinn tími er NÚNA!
[email protected]
kveðja Lína

Besti svaladrykkurinn í sólinni er vatnið góða. Má endilega "poppa" það upp með fallegum ávöxtum að eigin vali.. Ber eða...
28/04/2014

Besti svaladrykkurinn í sólinni er vatnið góða. Má endilega "poppa" það upp með fallegum ávöxtum að eigin vali.. Ber eða sítrus.. Já eða bara allt í bland ###

Það er bara þannig sem við "rúllum" ;)
26/04/2014

Það er bara þannig sem við "rúllum" ;)

Páskahátíðin handan við hornið. Hreyfing - góð næring og gæðastundir með fólkinu sem okkur er kært er góð leið til að nj...
16/04/2014

Páskahátíðin handan við hornið.
Hreyfing - góð næring og gæðastundir með fólkinu sem okkur er kært er góð leið til að njóta daganna ;)

Hvað ertu tilbúin/n að leggja á þig til að komast í mark? Settu þér raunhæft en krefjandi markmið innan ákveðins tímaram...
14/04/2014

Hvað ertu tilbúin/n að leggja á þig til að komast í mark? Settu þér raunhæft en krefjandi markmið innan ákveðins tímaramma ;)
Góða skemmtun!

Góð hugmynd fyrir helgina ;)
11/04/2014

Góð hugmynd fyrir helgina ;)

Klárlega sumargjöfin í ár :)
10/04/2014

Klárlega sumargjöfin í ár :)

hopkaup.is - Komdu þér í form núna! 3 mánaða sumarkort hjá Hress á aðeins 15.990 kr. (kostar 26.990 kr.). Taktu á því í sumar!

Ertu búinn að setja markmið fyrir vikuna? Hér er góð hugmynd ;)
06/04/2014

Ertu búinn að setja markmið fyrir vikuna? Hér er góð hugmynd ;)

Address

Hafnarfjörður
220

Opening Hours

Monday 06:00 - 23:00
Tuesday 17:00 - 23:00
Wednesday 17:00 - 23:00
Thursday 17:00 - 23:00
Friday 17:00 - 23:00
Saturday 17:00 - 23:00
Sunday 07:00 - 23:00

Telephone

+3546987713

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Lína G. - ÍAK Einkaþjálfari posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Lína G. - ÍAK Einkaþjálfari:

Share