08/09/2022
Á elliheimilinu var verið að baða Sigga, gamla, sjóara og var fengin til þess stór og stæðileg kona, komin nokkuð við aldur.
Hún drífur sig í verkið og er ekki lengi að.
Á eftir, í kaffipásu segir konan, "vitið þið hvað. Það er tattoverað á tippið á honum Sigga, orðið ADAM. Ég hef bara aldrei vitað annað eins"
Næst þegar baðað var, var þessi kona í fríi svo önnur, og yngri kona, var fengin til verksins.
Í næstu kaffipásu sagði hún.
"Bölvuð vitleysa er þetta í kellingunni. Kann hún ekki að lesa?
Það stendur Amsterdam á tippinu á Sigga, ekki Adam."