Reiða Öndin

Reiða Öndin Flott íslenskt handverk fyrir veiðina

Sunrays !
16/06/2026

Sunrays !

Flottúbur.Nú í byrjun tímabils þegar göngurnar ekki þéttar og fiskurinn jafnvel dreifður þá er ekkert betra leitartæki e...
16/06/2026

Flottúbur.

Nú í byrjun tímabils þegar göngurnar ekki þéttar og fiskurinn jafnvel dreifður þá er ekkert betra leitartæki en flottúbur með löngum hárum . Reiða Öndin á margar gerðir og stærðir frá 4 cm-6-9 og 12 cm. Skoðið úrvalið á https://www.reidaondin.is/flugurnar/

Flugur fyrir alla !

Flugur vikunnar nýtt í netsölu.Flugurnar Madeline Black og Valbeinn gull og silfur voru að koma í netsölu. MB er til í s...
11/06/2026

Flugur vikunnar nýtt í netsölu.

Flugurnar Madeline Black og Valbeinn gull og silfur voru að koma í netsölu. MB er til í stærðum 14 og 16. Valli rauði gull og silfur er til í stærðinni 14. Skoðið úrvalið af flugum hjá RÖ .
https://www.reidaondin.is/flugurnar/

Flugur fyrir alla !

Lax-maður !Nú er skemmtilegur tími allt komið á fullt, hver áin á fætur annarri að opna og mjög bjart framundan. Valbein...
10/06/2026

Lax-maður !

Nú er skemmtilegur tími allt komið á fullt, hver áin á fætur annarri að opna og mjög bjart framundan. Valbeinn er að standa sig vel og hér er Ingi Fannar með fallega hrygnu af Eyrinni í Norðurá á félaga Valbein.

Bingó í Fjallasal

Fluga vikunnar og allt komið á fullt.Það er viðeigandi að birta mynd af andarútgáfunni af flugunni Stekkur Blá þar sem N...
04/06/2026

Fluga vikunnar og allt komið á fullt.

Það er viðeigandi að birta mynd af andarútgáfunni af flugunni Stekkur Blá þar sem Norðurá opnaði í morgun. Hún er fyrst hnýtt af Michael Martinek 1988 fyrir John De Berger báðir þekktir fluguveiðimenn. Flugan er ein af þekktari laxaflugum sem tengist sérstaklega Norðurá. Flugan er nefnd eftir veiðistaðnum Stekk í ánni og hefur verið notuð mikið í björtu tæru vatni. Rö heyrði líka að flugan hefði gert einhverja rosalega veiði í Laxá Í Kjós þar sem Haraldur Eiríksson var í aðalhlutverki ásamt öðrum, þannig að þegar þið hittið Halla þá liggur það ljóst fyrir að rukka hann um söguna um Stekkur Blá .

Flugur fyrir alla !

Flugur vikunnar.Hér eru fjórar flugur sem ég sjálfur myndi velja til að taka fyrstu rennslin í byrjun sumars  og hafa re...
28/05/2026

Flugur vikunnar.

Hér eru fjórar flugur sem ég sjálfur myndi velja til að taka fyrstu rennslin í byrjun sumars og hafa reynst mér vel í dæmigerðu vorvatni á dauðarekinu. Þær eru Silver Wilkinson, Haugur Gull, Collie Dog og Rip. Minnist séstaklega þegar við hjónin vorum stödd snemma í júní á Eyrinni í Norðurá búin að prufa hefðbundna pakkann án þess að hreyfa fisk þar til SW fór undir og tveggja ára hrygna reddaði deginum . Svo er það Haugur Gull sem er sennilega með þeim sterkari þar sem ég hef verið að veiða.

Flugur fyrir alla !

Flugur vikunnar frábærar fimm !Nú styttist óðum í laxveiðitímabilið, lónbúinn mættur og menn og konur að setja sig í ste...
22/05/2026

Flugur vikunnar frábærar fimm !

Nú styttist óðum í laxveiðitímabilið, lónbúinn mættur og menn og konur að setja sig í stellingar. Þá er gott að huga að flugunum og hér eru fimm flugur sem reynst hafa mér og mínum vel í nýjum laxi þá sérstaklega þegar maður er að leita í byrjun að þeim silfraða. Þessar yfirborðsflugur skanna mikið svæði og tökurnar verða svo sýnilegar og magnaðar. Þetta eru Valbeinn, Collie Dog, Evening Dress, Sunray Hallow og Hreggur.

Flugur fyrir alla !

Stardust !
15/05/2026

Stardust !

Fluga vikunnar.Hún heitir Stardust fluga sem var til á bökkum Laxá í Aðaldal og höfundurinn sá stórmerkilegi maður Art L...
14/05/2026

Fluga vikunnar.

Hún heitir Stardust fluga sem var til á bökkum Laxá í Aðaldal og höfundurinn sá stórmerkilegi maður Art Lee. Ég notaði þessa flugu mikið hér áður með góðum árangri, en svo eins og með margar flugur verða þær undir en nú verður hún yfir enda nóg til af Stardust Hjá Reiðu Öndinni.

Flugur fyrir alla RÖ

Salmon Silver !
12/05/2026

Salmon Silver !

Address

Hafnarfjörður
220

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Reiða Öndin posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share