15/06/2016
210+150+250g sem gefa mér 610kg total (og 397 Wilks stig :-P) og þó ég viti að þetta sé ekkert að marka þá er gaman að segja frá því að þessi tala hefði skilað inn gullverðlaunum í mínum þyngdarflokki (-93kg) bæði á Íslandsmótinu í klassískum kraftlyftingum í fyrra (reyndar á ÖLLUM mótum í fyrra) og á bikarmótinu sem haldið var 30 apríl síðastliðinn + ég hefði verið langléttasti keppandinn og sá eini án beltis (giska ég á). Það er að segja EF allar þessar lyftur hefðu fengið grænt ljós en það þarf ekkert að vera, ansi strangir á smáatriðunum og ég alls ekki nógu sjóaður í þessu :-P Enda er ég ekki keppnis og hef ekki áhuga á því.
Ég undirbjó mig ekkert fyrir þetta, hef haldið áfram að lyfta 12x í viku og woda 12x. Ég tók þunga beygju og bekk á laugardaginn (+wod), þungt dedd á sunnudaginn (+wod), tvær æfingar daginn fyrir (+2wod) og var meira að segja mættur aftur 3klst eftir að ég lauk þessu og tók aðra æfingu með beygjum, deddi, bekk og auðvitað wodi :-P
Ég gæti örugglega meira ef ég myndi minnka æfingaálagið aðeins (sleppa wodunum og olympísku lyftunum) og kannski hvíla í nokkra daga eins menn gera venjulega fyrir mót. En til hvers? ég æfi bara ánægjunnar vegna og til að vera í formi :-)
Þessi bekkpressa var samt alger steypa, léttasta "max" sem ég hef tekið, átti að taka 155kg, hefði alveg náð því, en ég var búinn með þrjár tilraunir. Maður verður að vera heiðarlegur :-P
Annars ég er sáttur, ég hélt nefnilega alltaf að ég væri bara stór fiskur í lítilli tjörn (hér í Hress) og yrði étinn lifandi ef ég vogaði mér út í sjóinn :-P
Daniel Már Rögnvaldsson á þakkir skildar fyrir að henda þessu videoi saman, Guð veit að ég kann ekki neitt tölvutengt og svo Svandís fyrir að hafa verið óþreytandi við að hvetja mig áfram ;-)
Ég valdi þó lagið alveg sjálfur. Ladybird með hljómsveitinni S**t and Shine... meistaraverk. Það fékk að rúlla í allri sinni dýrð (41mín langt) örugglega 4x á meðan ég var að þessu ;-)